Jæja, ég held að ég sé búin að finna 2 bestu móðurborðin á markaðnum í dag, kanski eru til betri og aðrir ósammála, enn ég er að spá svona hvort móðurborðið þeir myndu taka, og afhverju!
Hefurðu lesið póstinn "ASUS P4C800 Deluxe vandræði" sem er hérna neðar? Ég keypti mér svona móðurborð og þau eru mjööög erfið. EFtir að mitt móðurborð hafði virkað fínt í 4 daga dó það og steikti örrann í leiðinni. Þeir á verkstæðinu í Tæknibæ reyndu að setja nýtt móðurborð í, en það virkaði engan veginn þannig að ég fékk mér MSI 875P Neo í staðin. Ef þú leitar í Google að "ASUS P4C800 Deluxe problem" færðu óteljandi svör og fullt af forumum þar sem fólk er í vandræðum með það....... þannig að ég get ekki mælt með þessu eftir hrakfarir mínar.
Vinur minn var einmitt að kaupa sér svona asus móðurborð er bara að bíða eftir vélinni, tölvuvirkni eru að setja hana upp, kemur í ljós hvernig gengur hjá honum
Ég fékk félaga minn til að hjálpa mér að setja tölvuna saman og hann er kerfisstjóri hjá Norðurljósum og hefur sett upp slatta af tölvum. Kælingin ætti að hafa verið nóg, því retail viftan sem fylgdi örranum var á honum og ekkert oc í gangi. Tæknibær reyndi svo að setja upp annað eins móðurborð án árangurs og viðurkenndi svo að hafa fengið nokkur svona móðurborð aftur í hausinn frá kúnnum. Þessi móðurborð eru bara eitthvað klikk...
Þetta var allt saman í ábyrgð. Ég fór líka bara með kassann upp í Tæknibæ þannig að þeir sáu að það var ekkert að ísetningunni. Annars hefði þetta líklega ekki verið bætt ef þetta hefði verið léleg ísetning.
kannski úrelt já, enn ódýrara og alveg jafn gott fyrir því
þar sem ég ætla ekki að eyða meira enn 120 þúsund í uppfærslu þá væri alveg fínt að það myndi lækka um einhverjar krónur
Asus P4P800 - DeLuxe er líka nokkuð gott. Ég er með þannig og er mjög ánægður með það, engin vandræði eða neitt. Þetta móðurborð er líka búið að fá þónokkur verðlaun/viðurkenningar, en engin eins flott og gigabyte móðurborð-ið hérna fyrir ofan. Eini gallinn við það er að það er ekki með APG 8X - PRO sem sagt bara 8X á 3.3v ekki 1.5v eins og nýjustu Radeon kortin. En annars fínasta kort og ekki svo dýrt.
Damien skrifaði:Asus P4P800 - DeLuxe er líka nokkuð gott. Ég er með þannig og er mjög ánægður með það, engin vandræði eða neitt. Þetta móðurborð er líka búið að fá þónokkur verðlaun/viðurkenningar, en engin eins flott og gigabyte móðurborð-ið hérna fyrir ofan. Eini gallinn við það er að það er ekki með APG 8X - PRO sem sagt bara 8X á 3.3v ekki 1.5v eins og nýjustu Radeon kortin. En annars fínasta kort og ekki svo dýrt.
Já ég veit þetta er eitthvað bull því ég er með Radeon 9700 Pro og þetta móðurborð og þegar ég keyri 3D Mark þá kemur í report að ég sé að keyra á 4x AGP. En ég hef fengið mismunandi niðurstöður úr öðrum svipuðum forritum, flakkar á milli AGP 8x og 4x. Ég skil þetta ekki allveg...
Kannski er ég bara að bulla...