Vantar ráðleggingar

Svara

Höfundur
Palm
has spoken...
Póstar: 175
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
Staða: Ótengdur

Vantar ráðleggingar

Póstur af Palm »

Ég er að spá að kaupa mér harðan disk til að geyma afrit af myndum á.
Hann þarf líklega að vera 200-300GB að stærð (eftir því sem er hagstæðast).

Ég bý erlendis og er að spá að kaupa hann af þessari síðu:
http://www.datorbutiken.com/b2b/
Ferð svo í harddiskar í vinstri dálk.
Ég ætla að hafa diskinn í svona exernal USB boxi sem ég á.

1. Hver er munurinn á IDE 3.5 / Serial ATA og IDE 2.5 diskum?
2. Þarna eru nokkrar gerðir af diskum - getið þið ráðlagt mér hvern ég ætti að kaupa frekar en annan. Hvernig get ég séð að diskurinn hafi fengið góða dóma og endist vel?

Palm

arnifa
Nörd
Póstar: 105
Skráði sig: Þri 15. Feb 2005 00:14
Staða: Ótengdur

Póstur af arnifa »

2.5 er fyrir fartölvur.
P4 2.66GHz * 2x256mb 266mhz * ATi Radeon 9600XT 256mb

axyne
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1695
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Póstur af axyne »

allt sama ruslið, sömu kínakallarnir að setja þetta saman, bara öðruvísi pakkningar. :D

Höfundur
Palm
has spoken...
Póstar: 175
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
Staða: Ótengdur

Póstur af Palm »

takk fyrir þessi svör.

Getið þið sagt mér hver sé munurinn á IDE 3.5 og Serial ATA - hvernig á ég að vita hvort ég þarf að kaupa ef ég er með svona USB box sem ég ætla að setja þetta í?

Á maður bara að kaupa þann ódýrasta?

Palm

2pac
Nýliði
Póstar: 9
Skráði sig: Mið 06. Okt 2004 17:10
Staðsetning: Hfj
Staða: Ótengdur

Póstur af 2pac »

Ummmm... boxin koma bæði fyrir sata og ide tengi svo malið er bara hvernig box ertu með. :D Bara kaupa ódýrasta diskinn eru mín ráð nema þú eigir uppáhaldsframleiðanda.

Höfundur
Palm
has spoken...
Póstar: 175
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
Staða: Ótengdur

Póstur af Palm »

Takk fyrir þessi ráð öllsömul.

Hvernig get ég séð hvort það er tengið það er sem er í boxinu?

Palm

FrankC
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Lau 30. Ágú 2003 10:24
Staða: Ótengdur

Póstur af FrankC »

það er auðvelt að sjá muninn á IDE og SATA tengjunum, IDE er stórt og klunnalegt, ílangt með fullt fullt af götum (eru þau ekki 80? man ekki...) á meðan SATA er lítið og nett, svona á stærð við USB tengi kannski...

Höfundur
Palm
has spoken...
Póstar: 175
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
Staða: Ótengdur

Póstur af Palm »

Takk kærlega fyrir þessi svör.

Palm

Manager1
Gúrú
Póstar: 551
Skráði sig: Þri 16. Mar 2004 21:28
Staða: Ótengdur

Póstur af Manager1 »

Ertu að tala um að geyma ljósmyndir á disknum?

Ef þú ert að tala um ljósmyndir skiptir auðvitað öllu máli að kaupa sem öruggastan disk, sjálfur veit ég ekki hver er öruggastur en ég hugsa að enginn mæli með Western Digital :)

300gb er yfirleitt hagstæðara en 200gb, þ.e. hver mb kostar minna á 300gb disknum en 200gb disknum.

Gangi þér svo vel með ljósmyndunina :)
Intel i7 2600k @ 3.4GHz | Asus P8P67 PRO | Corsair Vengeance 16gb 1600Mhz | Geforce GTX 1070 | BenQ EW2430 24"

Höfundur
Palm
has spoken...
Póstar: 175
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 21:01
Staða: Ótengdur

Póstur af Palm »

Takk fyrir þessar ráðleggingar.

"Ertu að tala um að geyma ljósmyndir á disknum?"

Já - já rétt - hann þarf að vera öruggur.

"Gangi þér svo vel með ljósmyndunina "
Takk takk. :)

Palm
Skjámynd

skipio
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Þri 02. Sep 2003 14:52
Staða: Ótengdur

Póstur af skipio »

Ég hugsa að ég myndi kaupa Seagate Barracuda 200 GB. Þeir virðast vera á nokkuð hagstæðu verði - allavega á Íslandi.
Íslenskar gæsalappir eru „ og “ (99 og 66). Þær má framkalla með alt-0132 og alt-0147.
Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6208
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Póstur af gnarr »

það er enginn diskur öruggur! taktu allaveganna 2 diska og settu þá í raid1. ef þú hefur efni á meira en 2 diskum, þá ættiru að spá í raid 5
"Give what you can, take what you need."
Svara