Ég er að undirbúa mig fyrir kaup á nýrri tölvu og mér sýnist að besta leiðin til að færa allt dótið yfir sé með því að klóna en núna er ég með gögn dreift á nokkrum drifum sem ég þyrfti þá að sameina í eitt drif á nýju tölvunni.
Hvernig er best að gera það? Maður hefur ekki mikla þekkingu á þessum hlutum enda ekki að gera þetta á hverjum degi.
Ps. þarf ég að setja upp öll forrit upp aftur og virkja þau?
Last edited by falcon1 on Mið 01. Des 2021 11:41, edited 1 time in total.
SolidFeather skrifaði:Eg held að klónun sé ekki rétta leiðin til að gera þetta. Geturðu ekki bara sett diskana í nýju vélina? Hvað er á þessum diskum?
Aðallega ljósmyndir, myndbönd, tónlist og hljóðskrár.
Þessir diskar myndu bara taka óþarflega margar tengingar (held ég) í nýju tölvunni þar sem þetta eru 500 - 750gb drif. Ég stefni líka á að halda gömlu tölvunni í einhverri virkni áfram, t.d. sem file server eða eitthvað slíkt.
Sko... ef þú ert alveg harður á því að þetta sé það sem þú viljir gera, þá ætti þetta alveg að vera hægt.
Þá myndirðu byrja á því að klóna stýriskerfisdiskinn yfir á nýja, og skoða svo tól til að klóna partitionin af restinni af diskunum yfir á nýja.
HINS VEGAR, þá mæli ég ekkert sérstaklega með þessu. Þetta verður vinna hjá þér og ekki gefið að það gangi vel.
Ég veit að það er leiðinlegt að setja upp öll forrit og virkja þau aftur, en ég mæli samt með því að fara þá leið. Ef DRM vörnin á þessum forritum er þokkaleg, þá mun hún hvort eð er pikka upp breytinguna á vélbúnaði og þá gæti orðið erfiðara að virkja aftur því kerfið gæti farið í baklás.
Sjálfur er ég forritari með alls kyns gagnagrunna, forritunarumhverfi og tól uppsett hjá mér, og það getur verið algjör hausverkur að setja það upp á nýtt og færa gögn á milli, en ég myndi samt gera það ef ég væri að fara í alls herjar uppfærslu.
Sem sagt... Það að ætla að klóna gömlu diskana á nýja verður örugglega bara meira vesen þegar upp er staðið.
Settu bara upp hreint stýrikerfi og afritaðu svo gögnin af diskunum yfir á nýja.
Last edited by Klemmi on Mið 01. Des 2021 13:45, edited 1 time in total.
ef þetta eru 2 windows tölvur geturu afritað allt á milli í gegnum netið eftir á þarft ekki að rífa neitt í sundur hefur þær bara netteingdar báðar á sama tíma í sama router með home network sem er innbigt í windows ,þarft samt að virkja það í báðum og stilla það sem þú vilt deila fínt að gera þetta svona víst þú ætlar að láta gömlu ganga leingur auðvelt og þægilegt
Asus Z390-A Prime i7 9700k CPU Thermaltake 3.0 Extreme Corsair 16GB (2x8) 3000MHz CL15 500 GB Samsung 970 EVO Plus m.2 palit 2080 super seasonic 760w 80+ platinum
ég hef verið að finna fáeinar skrár á einu af gömlu drifunum sem eru orðnar corrupted og vilja ekki kóperast yfir á backup drif, er það aðvörunarmerki að það drif sé að komast að endimörkum?
Klemmi skrifaði:Settu bara upp hreint stýrikerfi og afritaðu svo gögnin af diskunum yfir á nýja.
Já, líklega er það bara besta lausnin og taka kannski smá til í þessum gögnum í leiðinni haha... Sé það núna að maður virðist vera dáldill "data hoarder" held ég að það sé kallað.