hfwf skrifaði:GuðjónR skrifaði:hfwf skrifaði:GuðjónR skrifaði:Þetta er vandamálið í dag, lykilorðið er; „Fullbólusettur Ferðamaður“ ... það eru einmitt eirðarlausir fullbólusettir ferðamenn sem eru út um allt að dreifa veirunni og þar með nýjum afbrigðum sem bólusetningin virkar ílla eða ekki á, það hefur margoft komið fram og er vitað.
Og meðan það er samþykkt hegðun þá þarf fólk að sætta sig við örvunarskammt 3-4-5-6-7-8 ...
RUV skrifaði:Fullbólusettur ferðamaður greindist með afbrigðið í Ísrael og Norðmenn eru að vinna að viðbragðsáætlun ef veiruafbrigðið skyldi berast til landsins.
RUV skrifaði:Tveir danskir prófessorar biðja fólk þó um að anda með nefinu. Því það sé ekki mikið mál að breyta bóluefnunum til að bregðast við þessu nýja afbrigði.
https://www.ruv.is/frett/2021/11/26/evr ... -afbrigdis
Fullbólusett fólk eru langt því frá að vera jafn miklar verksmiðjur á afbrigði af veirunni og óbólusett fólk er, þal er þetta bara rangt hjá þér.
Ekki setja mér orð í munn.
Ég var að tala um að landamærin leka, það hefur margoft komið fram hjá Þórólfi. Ég var ekkert að dylgja um tilurð nýrra afbrigða en það ert þú hinsvegar að gera, enda augljós sérfræðingur í veirufræðum.
Ég er ekki að setja orð í þinn munm.
Þetta er bara staðreynd.
Það er fullt af landamlæralekum, klárlega, en staðreyndin er sú að þeir sem eru full bólusettir búa ekki jafnmikið til af afbrigðum.
Þannig að það sem þú ert að segja að fullbólusettir ferðamenn séu að bera inn með sér ný afbrigði er bara rangt.
Og ég er svo sannarlega ekki að dylgja eitt eða neitt hvað það varðar.
Þú ert hinsvegar að segja að það séu fullbólusettir ferðamenn að koma inn með afbrigðin, sem er bara langt frá því að vera rétt.
Hættu að vera Coviti, Þú ert víst að leggja mér til skoðanir og snúa út úr og það er rétt eins gott að þú hættir því strax!
Ég veit alveg hvað ég er að hugsa og skrifa og þarf engan túlk á það, sérstaklega ekki rangtúlk.
Ég var að vitna í RUV með nýja afbrigðið og það sem kom fram að fullbólusettur ferðamaður hefði borið það til Ísrael.
Það er líka staðreynd að bólusettir ferðast meira einfaldlega af því að mörg lönd gera kröfu um bólusetningu og þar með eru meiri líkur á því að þeir beri veiruna milli landa. Óbólusettur ferðamaður hefði ekki borið veiruna til Ísrael því óbólusettur fær ekki að ferðast þangað.
Ég er ekki að segja að bólusettir framleiðið meira af veirum, ég er að segja að þeir ferðast meira og því fleiri sem ferðast því meiri líkur á dreifingu.
Dæmi, þú ferðast ekkert til USA nema fullbólusettur, af hverju voru USA að loka á þessu Afríkuríki núna ef það er svona lítil hætta á að bólusettir dreifi veirunni?
Samkvæmt því sem Þórólfur hefur sagt þá eru skimanir á Keflavíkurvelli búnar að stoppa hundruð smita, flest í einkennalausum fullbólusettum einstaklingum, af því að þeir veikjast minna og vita oft ekkert af því að þeir eru með veiruna í sér og eru smitberar.
Það sem ég er að segja er, og taktu nú vel eftir orðum mínum! ... það er ekki nóg að skerða ferðafrelsi óbólusettra, það þarf líka að skerða ferðafrelsi bólusettra þegar ný og óþekkt afbrigði koma upp. Það þarf bara einn ferðamann til að koma af stað bylgju, bólusettur eða óbólusettur skiptir ekki máli, það þarf bara einn!