Verðlag á ýmsu á Íslandi
Verðlag á ýmsu á Íslandi
Maður er að fá smá ælu upp í kok af því að fá "tilboð" eða "verðhugmyndir" frá íslenskum aðilum í hitt og þetta.
Tengist því að ég er aðeins að breyta litlu rými í íbúðinni hjá mér og er að fá allskonar hugmyndir hvað væri sniðugt að gera varðandi veggina, gólf og þvíumlíkt.
En allsstaðar fæ ég bara ógeðslega há verð, varla djók.
Var í gardínubúð í dag og spurði um verð fyrir 2 glugga, 220cm og 320cm... hún hamraði á lyklaborðinu inn allskonar kostnað og var byrjuð að þylja upp hundruðir þúsunda sem þetta kostaði mig, held 350 þúsund. Svo sé ég verð á gardínubrautinni, eitthvað um 1800 kr meterinn og 3000 kr meterinn af gardínunum, hvernig skýst verðið svona upp til tunglsins? Jú, saumaskapurinn, 90% af verðinu greinilega.
Svo vildi ég láta lagfæra einhver för á parketinu mínu (gegnheilar fiskibeinaflísar), einhver 1,2 meter að lengd. Það átti víst að kosta um 200 þús. Maður í 2 daga. Úff ef maður hefði þau laun. Og það bara vinnan, ekki efniskostnaður, og það þarf víst að pússa upp allt parketið fyrir kannski 600-700 þús. 1 milljón kall þar takk fyrir.
Sérsmíða 180 cm gler-dyragátt með hurð... um 700 þúsund.
2 pakkar af teppaflísum fyrir 8 fermetra, 100 þús (það ódýrasta)
Hljóðdempandi panelar fyrir 5 metra vegg, 270 þús.
Annarskonar veggpanelar, nærri 400 þús.
Maður er smá nöldrari já, en þessi verð eru bara doldið ga ga.
Segir manni doldið mikið.... afhverju það er svona mikið bara um að fólk máli innanhúss á Íslandi. Erlendis er miklu meira um flísar, veggpanela og þvíumlíkt, en þetta er fjandi dýrt á Íslandi.
Sendi fyrirspurn á einn aðila erlendis hvað verðið væri hjá þeim á veggpanilum, aðila sem er að selja til íslenskra verslana hér, þeir vildu ekki gefa mér upp verðið. Grunar að við séum illilega arðrænd hérna.

Last edited by appel on Fös 01. Okt 2021 22:14, edited 1 time in total.
*-*
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1288
- Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
- Staðsetning: Júpíter
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Enda kaupir enginn þessa hluti á fullu verði á Íslandi nú til dags. Nánast allir með 25-35% afslátt í gegnum tengsl við svona verslanir, sérstaklega verslanir með málningu, gólfefni og svona panel stuff. Getur farið skoðað Skanva fyrir þessa gler-dyragátt, hafa oft verið miklu ódýrari en aðrir samkeppnisaðilar á Íslandi.
Ef þetta eru þessar hvítu-hálfgegnsæju gardínur sem allir eru með í stofu þá er hægt að fá þær saumaðar skv máli frá AliExpress, margir yfir sig sáttir með þær, passa bara velja vel reviewaðan seller.

- FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
- Staðsetning: Reykjanesbær
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Hvað finnst þér sanngjarnt að borga sérhæfðum starfsmanni fyrir 2ja daga vinnu?
appel skrifaði: Svo vildi ég láta lagfæra einhver för á parketinu mínu (gegnheilar fiskibeinaflísar), einhver 1,2 meter að lengd. Það átti víst að kosta um 200 þús. Maður í 2 daga. Úff ef maður hefði þau laun.
Last edited by Hrotti on Lau 02. Okt 2021 00:37, edited 1 time in total.
Verðlöggur alltaf velkomnar.
-
- FanBoy
- Póstar: 793
- Skráði sig: Þri 18. Apr 2006 01:26
- Staðsetning: Rvk
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Hefuru aldrei farið til tannlæknis, bifreiðaverkstæði, klippingu (15mín, 5000kr)?
200 þús fyrir tveggja daga vinnu hjá fagaðla er nú bara normal.

Lenovo Legion 5 - 2020 | Zyxel NAS 16TB | LG B8 OLED | PS5 | Klipsch 5.0 | Yamaha |
-
- FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
- Staðsetning: Reykjanesbær
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Þetta er algerlega legit spurning.appel skrifaði:Furðulegt að sjá svona varnir fyrir hárri verðlagningu.
Hvað finnst þér sanngjarnt að borga sérhæfðum starfsmanni fyrir 2ja daga vinnu?
Verðlöggur alltaf velkomnar.
-
- Kóngur
- Póstar: 6079
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
besta ráðið sem ég get gefið þér er að vingast við fagaðila
skipti um ofna í íbúðinni nýlega og kostaði mig lítið sem ekkert þar sem vinur minn er pípari og þegar ég flutti inn þurfti ég að skipta út öllum rafmagnsdósum (sem voru utanáliggjandi með enga jörð) í allri íbúðinni og bora dósir í veggina til að innfella þær og félagi minn sem er rafvirki reddaði mér á spott prís
það er gotta að eiga góða vini

CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
-
- Kóngur
- Póstar: 4139
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Furðulegt? Örugglega enginn iðnaðarmaður selur sig ódýrara en 10.000kr per tímann, og ætti enginn að selja sig ódýrara en það.appel skrifaði:Furðulegt að sjá svona varnir fyrir hárri verðlagningu.
Muna þarf að þessi 200 þús kall sem hann sagði þér er með VSK, þarf að duga fyrir uppihaldi á verkfærum, farartæki til að koma öllu á milli staðar, vinnufatnaði og það sem eftir er hefur aðilinn í laun. Og rétt vona ég að þeir iðnaðarmenn sem starfa sjálfstætt séu flestir með í kringum milljón eða uppúr í tekjur.
Sálfræðingur er 18-20 þús per tímann. Lögfræðingar 25 þús og uppúr. Maður borgar 20 þús fyrir hálftíma hjá tannlækni. Af hverju á þá iðnaðarmaður að vinna fyrir lítið?
massabon.is
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Það er svakalegt hvað skattar og gjöld eru há á Íslandi, sem er aðalástæðan fyrir þessum háu verðum.
Iðnaðarmaður sem rukkar 12.250 kr. á tímann borgar um það bil:
-2.750 kr. í staðgreiðslu
-2.250 kr. í virðisaukaskatt
-1.000 kr. mótframlag
-700 kr. í tryggingagjald
-400 kr. í lífeyrissjóð
-400 kr. í séreignasparnað
Svo fær sjálfstætt starfandi iðnaðarmaður ekki greitt sumarfrí(ca. 24 dagar) eða frídaga(ca. 10 dagar?) sem væri hægt að reikna sem frádrátt líka.
-1.000 kr. í frídaga
= 3.750 kr. á tímann
Svo þarf að borga fyrir bíl, verkfæri og efni ofl. Er enginn sérfræðingur í þessu og þetta eru kannski ekki hárnákvæmar tölur, en þetta gefur einhverja hugmynd um hvernig það er að vera iðnaðarmaður án þess að vinna svart.

Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Mátt endilega koma með svar, finnst áhugavert hvað þú metur iðnaðarmenn lítið.Hrotti skrifaði:Hvað finnst þér sanngjarnt að borga sérhæfðum starfsmanni fyrir 2ja daga vinnu?
appel skrifaði: Svo vildi ég láta lagfæra einhver för á parketinu mínu (gegnheilar fiskibeinaflísar), einhver 1,2 meter að lengd. Það átti víst að kosta um 200 þús. Maður í 2 daga. Úff ef maður hefði þau laun.
Við hvað vinnur þú ? lögfræðingur ? forritari ? þar sem klst verðið er 20þ og upp úr. Getur svosem bara hent þér í skóla og lært fagið.
Finnst alltaf sorglegt að sjá þegar menn ráðast á iðnaðarmenn sem vilja fá sæmileg og þurfi ekki að vinna lengur 12+ klst daga.
Mæli líka með að kynna þér kostnaðinn sýnist þú ekki skilja muninn á tímakaupi vs útseldri vinnu, skattar og gjöld er mjög stór hluti af þessu verði og síðan tækjabúnaður og ýmislegt annað.
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1288
- Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
- Staðsetning: Júpíter
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Má nú ekki fara færa eitthvað af þessum blessaða tekjuskatti yfir á helvítis útgerðirnar?Sallarólegur skrifaði:Það er svakalegt hvað skattar og gjöld eru há á Íslandi, sem er aðalástæðan fyrir þessum háu verðum.
Iðnaðarmaður sem rukkar 12.250 kr. á tímann borgar um það bil:
-2.750 kr. í staðgreiðslu
-2.250 kr. í virðisaukaskatt
-1.000 kr. mótframlag
-700 kr. í tryggingagjald
-400 kr. í lífeyrissjóð
-400 kr. í séreignasparnað
Svo fær sjálfstætt starfandi iðnaðarmaður ekki greitt sumarfrí(ca. 24 dagar) eða frídaga(ca. 10 dagar?) sem væri hægt að reikna sem frádrátt líka.
-1.000 kr. í frídaga
= 3.750 kr. á tímann
Svo þarf að borga fyrir bíl, verkfæri og efni ofl. Er enginn sérfræðingur í þessu og þetta eru kannski ekki hárnákvæmar tölur, en þetta gefur einhverja hugmynd um hvernig það er að vera iðnaðarmaður án þess að vinna svart.
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Nei það má ekki. Amk. samkvæmt sjöllum.Lexxinn skrifaði:Má nú ekki fara færa eitthvað af þessum blessaða tekjuskatti yfir á helvítis útgerðirnar?Sallarólegur skrifaði:Það er svakalegt hvað skattar og gjöld eru há á Íslandi, sem er aðalástæðan fyrir þessum háu verðum.
Iðnaðarmaður sem rukkar 12.250 kr. á tímann borgar um það bil:
-2.750 kr. í staðgreiðslu
-2.250 kr. í virðisaukaskatt
-1.000 kr. mótframlag
-700 kr. í tryggingagjald
-400 kr. í lífeyrissjóð
-400 kr. í séreignasparnað
Svo fær sjálfstætt starfandi iðnaðarmaður ekki greitt sumarfrí(ca. 24 dagar) eða frídaga(ca. 10 dagar?) sem væri hægt að reikna sem frádrátt líka.
-1.000 kr. í frídaga
= 3.750 kr. á tímann
Svo þarf að borga fyrir bíl, verkfæri og efni ofl. Er enginn sérfræðingur í þessu og þetta eru kannski ekki hárnákvæmar tölur, en þetta gefur einhverja hugmynd um hvernig það er að vera iðnaðarmaður án þess að vinna svart.
Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.

- Póstar: 773
- Skráði sig: Þri 08. Apr 2003 04:01
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
bara gera þetta sjálfur, allt á youtube.
en já þú ert svoldið seinn í partíið, í byrjun síðasta árs var þetta efni á þokkalegu verði, en útaf eftirspurn og hærri flutningsgjöldum hefur þetta allt rokið upp.. t.d timbur búið að hækka um ca 80% á milli ára, þannig satt að segja hefur aldrei verið dýrara en einmitt í dag að fara í framkvæmdir sama hvað það er því allt er á topp verði.

I9 10900k | Zotac RTX 3090 Trinity | Samsung Odyssey G7 32" | Corsair H100x | Gigabyte Z490 Aorus Elite | G.SKILL Trident Z 32GB @ 3600mhz | Lian-Li O11 XL ROG | XPG Pro 512GB | Seasonic Focus 850W Gold | Corsair K95 Platinum | Logitech G502 Hero | Steelseries Arctis Pro Wireless | Honda Civic Type R GT 2018
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
appel er núna að naga sig í handarbakið yfir að hafa ekki kosið sósíalistaflokkinn.
Have never lost an argument. Fact.
-
- Græningi
- Póstar: 35
- Skráði sig: Sun 01. Des 2019 06:52
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Þú ert að telja þarna til kostnað sem almennir launamenn þurfa líka að greiða. Ef þú vilt sanngjarnan samanburð við tekjur launamanna verðurðu að telja það til hjá báðum eða hvorugum.Sallarólegur skrifaði: Iðnaðarmaður sem rukkar 12.250 kr. á tímann borgar um það bil:
-2.750 kr. í staðgreiðslu
-2.250 kr. í virðisaukaskatt
-1.000 kr. mótframlag
-700 kr. í tryggingagjald
-400 kr. í lífeyrissjóð
-400 kr. í séreignasparnað
Svo fær sjálfstætt starfandi iðnaðarmaður ekki greitt sumarfrí(ca. 24 dagar) eða frídaga(ca. 10 dagar?) sem væri hægt að reikna sem frádrátt líka.
-1.000 kr. í frídaga
= 3.750 7150 kr. á tímann
Eftir vask eru þetta 10.000kr á tímann. Það sinnum 168 tímar á mánuði gera 1.680.000 úr að spila á mánuði. M.v. 4% lífeyrissjóð, 4% séreign, 10% mótframlag, 7% í tryggingagjald er skattstofninn 1.300.000kr á mánuði og gera 450.000kr í staðgreiðslu eða 850.000kr eftir skatt. Það má draga eitthvað af þessu til að vega á móti frídögum en það er alveg ljóst að enginn þarf að vorkenna manni með 12.250kr á tímann jafnvel þótt eitthvað eigi eftir að telja.
En auðvitað kemur á móti að fæstir sjálfstætt starfandi ná að rukka 168 tíma á mánuði svo þessar tölur eru verulega hærri en rauntekjur í flestum tilfellum.
Palit RTX 3080 Gamerock OC, Ryzen 7 3800X, 32 GB Corsair Vengeance LPX 3200MHz, Gigabyte X570 Aorus Pro, Corsair RM750X, 2 TB Samsung 980 Pro + 2 TB Samsung 970 Evo Plus, GameMax Black Hole, Be Quiet! Dark Rock Pro 4 | 65" LG B9 OLED
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Launatengd gjöld, og há laun á Ísland er alveg umræðuefni.
Ef launin eru orðin þannig að maður getur ekki fengið mann í einn dag því manni ofbýður, þá er eitthvað að.
En mikið af þessum vörum sem ég er að skoða eru innfluttar, og verðið er svimandi hátt á fermeterinn. Þannig að íslenskur launakostnaður skýrir það ekki, nema auðvitað álagning verslana hér vegna innlends launakostnaðar og vegna yfirbyggingar hérlendis.

- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 345
- Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
- Staðsetning: Reykjavik
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Voðalegt tuð er þetta. Þetta er svona first world problem. Ég vil láta sérsmíða hjá mér hluti í húsnæðið og tími ekki að borga fyrir þetta.
Spurning um að kíkja í IKEA ef þetta er of dýrt?

ps5 ¦ zephyrus G14
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1288
- Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
- Staðsetning: Júpíter
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Mótframlag, tryggingagjald og lífeyrissjóður er alltaf greitt aukalega af vinnuveitanda. Samanber: https://payday.is/is/reiknivelnjordur9000 skrifaði:Þú ert að telja þarna til kostnað sem almennir launamenn þurfa líka að greiða. Ef þú vilt sanngjarnan samanburð við tekjur launamanna verðurðu að telja það til hjá báðum eða hvorugum.Sallarólegur skrifaði: Iðnaðarmaður sem rukkar 12.250 kr. á tímann borgar um það bil:
-2.750 kr. í staðgreiðslu
-2.250 kr. í virðisaukaskatt
-1.000 kr. mótframlag
-700 kr. í tryggingagjald
-400 kr. í lífeyrissjóð
-400 kr. í séreignasparnað
Svo fær sjálfstætt starfandi iðnaðarmaður ekki greitt sumarfrí(ca. 24 dagar) eða frídaga(ca. 10 dagar?) sem væri hægt að reikna sem frádrátt líka.
-1.000 kr. í frídaga
= 3.750 7150 kr. á tímann
-
- Kerfisstjóri
- Póstar: 1288
- Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
- Staðsetning: Júpíter
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Verslanir í þessum bransa á Íslandi samanber Birgisson, Parki, Harðviðarval og fleir verslanir smyrja töluvert meira ofan á en framleiðandinn sjálfur. Það er eitthver FB groupa þar sem fólk er að fara til Póllands og kaupa í gáma til að spara sér frá þessum Íslensku verslunum. Minnir hún heitir Kaupfélagið Pólland.appel skrifaði:Launatengd gjöld, og há laun á Ísland er alveg umræðuefni.
Ef launin eru orðin þannig að maður getur ekki fengið mann í einn dag því manni ofbýður, þá er eitthvað að.
En mikið af þessum vörum sem ég er að skoða eru innfluttar, og verðið er svimandi hátt á fermeterinn. Þannig að íslenskur launakostnaður skýrir það ekki, nema auðvitað álagning verslana hér vegna innlends launakostnaðar og vegna yfirbyggingar hérlendis.
-
- Græningi
- Póstar: 35
- Skráði sig: Sun 01. Des 2019 06:52
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Mótframlag og tryggingagjald er greitt aukalega af vinnuveitanda. "Mót"framlagið kemur á móti 4% lífeyrissjóðsgreiðslu, og mögulega 2-4% séreignagreiðslu, sem launþegi borgar sjálfur en telst þó ekki til skattstofns.Lexxinn skrifaði:Mótframlag, tryggingagjald og lífeyrissjóður er alltaf greitt aukalega af vinnuveitanda. Samanber: https://payday.is/is/reiknivelnjordur9000 skrifaði:Þú ert að telja þarna til kostnað sem almennir launamenn þurfa líka að greiða. Ef þú vilt sanngjarnan samanburð við tekjur launamanna verðurðu að telja það til hjá báðum eða hvorugum.Sallarólegur skrifaði: Iðnaðarmaður sem rukkar 12.250 kr. á tímann borgar um það bil:
-2.750 kr. í staðgreiðslu
-2.250 kr. í virðisaukaskatt
-1.000 kr. mótframlag
-700 kr. í tryggingagjald
-400 kr. í lífeyrissjóð
-400 kr. í séreignasparnað
Svo fær sjálfstætt starfandi iðnaðarmaður ekki greitt sumarfrí(ca. 24 dagar) eða frídaga(ca. 10 dagar?) sem væri hægt að reikna sem frádrátt líka.
-1.000 kr. í frídaga
= 3.750 7150 kr. á tímann
Ef þú vilt bera saman nafnlaun launamanns og tekjur sjálfstætt starfandi verktaka verðurðu þess vegna að draga mótframlagið og tryggingagjaldið frá en annað ætti að vera inni.
Palit RTX 3080 Gamerock OC, Ryzen 7 3800X, 32 GB Corsair Vengeance LPX 3200MHz, Gigabyte X570 Aorus Pro, Corsair RM750X, 2 TB Samsung 980 Pro + 2 TB Samsung 970 Evo Plus, GameMax Black Hole, Be Quiet! Dark Rock Pro 4 | 65" LG B9 OLED
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Gaman að sjá að þér finnst verkfæri, bílar og rekstrakostnaður vega ekkert í þessu.njordur9000 skrifaði:Þú ert að telja þarna til kostnað sem almennir launamenn þurfa líka að greiða. Ef þú vilt sanngjarnan samanburð við tekjur launamanna verðurðu að telja það til hjá báðum eða hvorugum.Sallarólegur skrifaði: Iðnaðarmaður sem rukkar 12.250 kr. á tímann borgar um það bil:
-2.750 kr. í staðgreiðslu
-2.250 kr. í virðisaukaskatt
-1.000 kr. mótframlag
-700 kr. í tryggingagjald
-400 kr. í lífeyrissjóð
-400 kr. í séreignasparnað
Svo fær sjálfstætt starfandi iðnaðarmaður ekki greitt sumarfrí(ca. 24 dagar) eða frídaga(ca. 10 dagar?) sem væri hægt að reikna sem frádrátt líka.
-1.000 kr. í frídaga
= 3.750 7150 kr. á tímann
Eftir vask eru þetta 10.000kr á tímann. Það sinnum 168 tímar á mánuði gera 1.680.000 úr að spila á mánuði. M.v. 4% lífeyrissjóð, 4% séreign, 10% mótframlag, 7% í tryggingagjald er skattstofninn 1.300.000kr á mánuði og gera 450.000kr í staðgreiðslu eða 850.000kr eftir skatt. Það má draga eitthvað af þessu til að vega á móti frídögum en það er alveg ljóst að enginn þarf að vorkenna manni með 12.250kr á tímann jafnvel þótt eitthvað eigi eftir að telja.
En auðvitað kemur á móti að fæstir sjálfstætt starfandi ná að rukka 168 tíma á mánuði svo þessar tölur eru verulega hærri en rauntekjur í flestum tilfellum.
Hrotti skrifaði:Þetta er algerlega legit spurning.appel skrifaði:Furðulegt að sjá svona varnir fyrir hárri verðlagningu.
Hvað finnst þér sanngjarnt að borga sérhæfðum starfsmanni fyrir 2ja daga vinnu?
Er en að bíða eftir svari frá þér hvað þér finnst eðilegt að greiða iðnaðarmanni í útseldri vinnu ? eða getur þú bara ekki svarað þessu.
-
- Vaktari
- Póstar: 2671
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Marg borgar sig að gera verðsamanburð, skiptir í raun ekki máli hvaða þjónusta það er.Þótt maður skilji að fólk vilji fá borgað sómasamleg laun þá vill maður ekki borga Premium gjald nema það sé virkilega þess virði.
Ég þarf að skipta út 2 STK HDD sem ég treysti ekki lengur vegna aldurs og var að skoða WD Blue 4 TB og hann kostar hérna heima 24.995.
Get fengið 2 stk sent til mín með öllum gjöldum á 29.400 kr frá Amazon. Personulega líður mér betur með auka 20.000 kr á milli handanna.
Ég gat allavegana ekki reiknað út að þjónustan við að versla af íslensku fyrirtæki sé 20.000 kr virði í þessu tilfelli, þá eðlilega fer ég að skoða aðra möguleika í stöðunni.
Allt í góðu að blása út annað slagið

Last edited by Hjaltiatla on Lau 02. Okt 2021 14:52, edited 1 time in total.
Just do IT
√
√
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1676
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
"Ef þú ert puttaður nógu oft í ********* venst það á endanum" er klárlega mottó ansi margra hérna á Vaktinni
Last edited by ZiRiuS on Lau 02. Okt 2021 14:58, edited 1 time in total.
Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe
-
- Græningi
- Póstar: 35
- Skráði sig: Sun 01. Des 2019 06:52
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Flestir launamenn eiga bíla en geta ekki afskrifað akstur sem rekstrarkostnað fyrir skattaafslátt. Auðvitað fylgir kostnaður þessu öllu en ég get lofað þér því að það eru ekki bílar og verkfæri sem útskýra þessi verð fyrir langstærstan meirhluta sjálfstætt starfandi iðnaðarmanna.Dúlli skrifaði:Gaman að sjá að þér finnst verkfæri, bílar og rekstrakostnaður vega ekkert í þessu.njordur9000 skrifaði:Þú ert að telja þarna til kostnað sem almennir launamenn þurfa líka að greiða. Ef þú vilt sanngjarnan samanburð við tekjur launamanna verðurðu að telja það til hjá báðum eða hvorugum.Sallarólegur skrifaði: Iðnaðarmaður sem rukkar 12.250 kr. á tímann borgar um það bil:
-2.750 kr. í staðgreiðslu
-2.250 kr. í virðisaukaskatt
-1.000 kr. mótframlag
-700 kr. í tryggingagjald
-400 kr. í lífeyrissjóð
-400 kr. í séreignasparnað
Svo fær sjálfstætt starfandi iðnaðarmaður ekki greitt sumarfrí(ca. 24 dagar) eða frídaga(ca. 10 dagar?) sem væri hægt að reikna sem frádrátt líka.
-1.000 kr. í frídaga
= 3.750 7150 kr. á tímann
Eftir vask eru þetta 10.000kr á tímann. Það sinnum 168 tímar á mánuði gera 1.680.000 úr að spila á mánuði. M.v. 4% lífeyrissjóð, 4% séreign, 10% mótframlag, 7% í tryggingagjald er skattstofninn 1.300.000kr á mánuði og gera 450.000kr í staðgreiðslu eða 850.000kr eftir skatt. Það má draga eitthvað af þessu til að vega á móti frídögum en það er alveg ljóst að enginn þarf að vorkenna manni með 12.250kr á tímann jafnvel þótt eitthvað eigi eftir að telja.
En auðvitað kemur á móti að fæstir sjálfstætt starfandi ná að rukka 168 tíma á mánuði svo þessar tölur eru verulega hærri en rauntekjur í flestum tilfellum.
Palit RTX 3080 Gamerock OC, Ryzen 7 3800X, 32 GB Corsair Vengeance LPX 3200MHz, Gigabyte X570 Aorus Pro, Corsair RM750X, 2 TB Samsung 980 Pro + 2 TB Samsung 970 Evo Plus, GameMax Black Hole, Be Quiet! Dark Rock Pro 4 | 65" LG B9 OLED
-
- Græningi
- Póstar: 35
- Skráði sig: Sun 01. Des 2019 06:52
- Staða: Ótengdur
Re: Verðlag á ýmsu á Íslandi
Sjálfur er ég því sem næst hættur að líta á verðin hjá innlendum verslunum og versla bara á Amazon eða Overclockers. Ég vildi gjarnan styðja þær en að borga 20-50%+ ofan á það sem varan með hraðsendingu frá annarri heimsálfu heim að dyrum myndi kosta með öllum gjöldum er einfaldlega galið.Hjaltiatla skrifaði:Marg borgar sig að gera verðsamanburð, skiptir í raun ekki máli hvaða þjónusta það er.Þótt maður skilji að fólk vilji fá borgað sómasamleg laun þá vill maður ekki borga Premium gjald nema það sé virkilega þess virði.