Við í Vivaldi vorum að skrifa undur upphróp um bann á njónsnaauglýsingum, þ.e.a.s. auglýsingum þar sem safnað er gögnum um notendur og þau gögn notuð til að beina auglýsingum að þeim.
Það má lesa um þetta hér:
https://vivaldi.com/blog/letter-ban-sur ... vertising/
Okkur finnst að engin fyrirtæki hafa rétt til að safna gögnum um sína notendur og byggja grunn með þeim, til að sýna þeim auglýsingar.
Bann á njósnaauglýsingar
Re: Bann á njósnaauglýsingar
Flott ! Til Hamingju með þetta skref !
Re: Bann á njósnaauglýsingar
Takk fyrir það. Við sendum bréfið á mikinn fjölda fólks í EU og USA sem vinna með þessi mál. Höfum þegar fengið góð viðbrögð.brain skrifaði:Flott ! Til Hamingju með þetta skref !
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 3992
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Bann á njósnaauglýsingar
skref í rétta átt. En svona "böggi" yrði bara svarað með að færa ad-serverinn til kongó og málið úr sögunni amk næstu 10árin. Þetta er svo forhert lið sem þetta á að tækla.
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Re: Bann á njósnaauglýsingar
Held ekki að Google, Facebook og Microsoft flytji þjónana sína til Kongó... Þeir munu auðvitað reyna að stoppa þetta og fá breytt reglum sér í hag, en ég held að Evrópubandalagið og Bandaríkin vilji taka á þessum málum núna. Þetta er hátt á lista á báðum stöðum.jonsig skrifaði:skref í rétta átt. En svona "böggi" yrði bara svarað með að færa ad-serverinn til kongó og málið úr sögunni amk næstu 10árin. Þetta er svo forhert lið sem þetta á að tækla.
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 3992
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Bann á njósnaauglýsingar
Svo er það bara með þessa stjórnmálamenn, þetta er yfirleitt allt í kjaftinum á þeim. Síðan eru þeir minntir á með einum eða öðrum hætti hver borgar í kostningasjóðina þeirra.
Last edited by jonsig on Fös 09. Júl 2021 17:22, edited 1 time in total.
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Re: Bann á njósnaauglýsingar
Ég veit ekki hverja þú ert að tala um. Ég hef unnið með Evrópubandalaginu áður hvað varðar þessi mál og ég get sagt þér að það er mikið flott fólk að vinna þarna sem vill gera það sem er rétt og hefur mikla kunnáttu. Þarna er duglegir ráðgjafar sem hafa lesið sér til um málin og skilja oft bara nokkuð vel flókna hluti. Auðvitað þýðir það ekki alltaf að það næst að gera allt rétt, en viljinn er til staðar og þeim er ekki sama.jonsig skrifaði:Svo er það bara með þessa stjórnmálamenn, þetta er yfirleitt allt í kjaftinum á þeim. Síðan eru þeir minntir á með einum eða öðrum hætti hver borgar í kostningasjóðina þeirra.
Gefum ekki upp vonana. Það er hægt að gera góða hluti, ef við berjumst fyrir þeim.