Uppfæra diska eða kaupa nýja tölvu?
-
Höfundur - Ofur-Nörd
- Póstar: 299
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Uppfæra diska eða kaupa nýja tölvu?
Sælir Vaktarar,
ég er að verða búinn með allt geymsluplássið á tölvunni sem ég er að nota og þarf að minnsta kosti að uppfæra það vel á næstunni. Ég fór hinsvegar að spá í hvort að maður ætti að skella sér á nýja tölvu, þessi gamla er orðin 9 ára gömul en keyrir ennþá flest forrit vel en hún gæti verið hraðvirkari þegar maður er í myndbandagerð (full-hd) og ég efast um að hún myndi ráða mikið við 4k myndbandavinnslu. Gamla er með Intel i5-3570K @ 3.4GHz örgjörva. Ég er reyndar hissa á hvað hún hefur dugað mér lengi og vel fram að þessu.
Tölvan er notuð mest í mynd- og hljóðvinnslu.
Hvað segið þið, er eitthvað vit í því að auka við geymslumagnið gömlu í staðinn fyrir að uppfæra í nýja tölvu fljótlega?
Ég hef ekkert pælt í þessu lengi þannig að ég er alveg dottinn út úr tengslum við hvað er gott/best í dag í tölvukaupum.

Last edited by falcon1 on Mán 29. Mar 2021 11:19, edited 1 time in total.
Re: Uppfæra diska eða kaupa nýja tölvu?
Fyrst þú ert farinn að finna fyrir takmörkunum með núverandi vélbúnaði er það alveg góð hvatning til að endurnýja tölvuna, að undanskyldu skjákorti miðað við markaðinn í dag.
Miðað við þá vinnslu sem þú lýsir, mynd- og hljóðvinnsla, er sennilega best fyrir þig að skoða Ryzen 5000 örgjörva, nóg af vinnsluminni og hraða gagnageymslu.
Miðað við þá vinnslu sem þú lýsir, mynd- og hljóðvinnsla, er sennilega best fyrir þig að skoða Ryzen 5000 örgjörva, nóg af vinnsluminni og hraða gagnageymslu.
Aðaltölva: Dell Latitude 7480 | i7-7600u | 32GB DDR4 | 1TB SSD | 14"IPS
In-house streaming tölva: Ryzen 5600X | Gigabyte B550I Aorus Pro AX | 32GB 3600MHz | 1TB Samsung 980 Pro PCIe 4.0 | GTX960
Löglegt WinRAR leyfi
In-house streaming tölva: Ryzen 5600X | Gigabyte B550I Aorus Pro AX | 32GB 3600MHz | 1TB Samsung 980 Pro PCIe 4.0 | GTX960
Löglegt WinRAR leyfi
Re: Uppfæra diska eða kaupa nýja tölvu?
Þetta eru í rauninni 2 ótengd vandamál.
Geymslupláss er yfirleitt flutt milli tölva hvort eð er, og gamlir staðlar fyrir tengingar á diskum eru studdir lengi.
Hvað ertu með mikið pláss í dag? Það er yfirleitt mjög auðvelt að bæta bara við einum disk í viðbót í vélina.
Hvað varðar að byggja nýja vél í myndbandagerð, þá myndi ég alltaf mæla með að gera vél með eins mörgum kjörnum, eins miklu minni og eins stóru skjákorti og peningarnir þínir leifa.
Hvað viltu eyða miklum pening í nýja vél? Hvaða forrit ertu að nota? Ertu bara að klippa, eða ertu að gera VFX í AE eða álíka forritum?
AMD Ryzen línan + hellingur af RAM + Nvidia kort með helling af CUDA klikkar yfirleitt ekki, en það er bara spurning hvar skynsemis/peninga mörkin liggja.

Last edited by gnarr on Mán 29. Mar 2021 11:29, edited 1 time in total.
"Give what you can, take what you need."
-
Höfundur - Ofur-Nörd
- Póstar: 299
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Uppfæra diska eða kaupa nýja tölvu?
Er skjákortið ekki eins mikilvægt og var í gamla daga?Njall_L skrifaði:Fyrst þú ert farinn að finna fyrir takmörkunum með núverandi vélbúnaði er það alveg góð hvatning til að endurnýja tölvuna, að undanskyldu skjákorti miðað við markaðinn í dag.
-
Höfundur - Ofur-Nörd
- Póstar: 299
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Uppfæra diska eða kaupa nýja tölvu?
Ég kaupi yfirleitt vél sem ég býst við að endist í sirka 10 ár, gamla er að nálgast það óðfluga en er samt ótrúlega spræk miðað við aldur. Ég reyndar er ekkert í neinum tölvuleikjum í henni þannig að kannski myndi sjást á henni ef ég myndi reyna það.gnarr skrifaði:Þetta eru í rauninni 2 ótengd vandamál.
Geymslupláss er yfirleitt flutt milli tölva hvort eð er, og gamlir staðlar fyrir tengingar á diskum eru studdir lengi.
Hvað ertu með mikið pláss í dag? Það er yfirleitt mjög auðvelt að bæta bara við einum disk í viðbót í vélina.
Hvað varðar að byggja nýja vél í myndbandagerð, þá myndi ég alltaf mæla með að gera vél með eins mörgum kjörnum, eins miklu minni og eins stóru skjákorti og peningarnir þínir leifa.
Hvað viltu eyða miklum pening í nýja vél? Hvaða forrit ertu að nota? Ertu bara að klippa, eða ertu að gera VFX í AE eða álíka forritum?
AMD Ryzen línan + hellingur af RAM + Nvidia kort með helling af CUDA klikkar yfirleitt ekki, en það er bara spurning hvar skynsemis/peninga mörkin liggja.
Ég er með sirka 9TB pláss og það er svona 10-15% eftir af því á gömlu. Allar disktengingar eru í notkun.
Max budget væri svona í kringum 300 þúsund krónur.
Helstu forrit sem ég er að nota er Photoshop, Capture One Pro, Cyberlink PowerDirector (færi kannski meira í Adobe Premier ef myndbandsvinnslan fer á flug), Sibelius (nótunaskrift), Reaper (hljóðvinnsla), Native Kontakt (tónlist)
Ekki mikið að gera 3d módel eða effecta í AE hingað til.
Re: Uppfæra diska eða kaupa nýja tölvu?
Vissulega mikilvægt en spurning hvernig gengur að finna kort á lager þessa mánuðinafalcon1 skrifaði:Er skjákortið ekki eins mikilvægt og var í gamla daga?Njall_L skrifaði:Fyrst þú ert farinn að finna fyrir takmörkunum með núverandi vélbúnaði er það alveg góð hvatning til að endurnýja tölvuna, að undanskyldu skjákorti miðað við markaðinn í dag.
Aðaltölva: Dell Latitude 7480 | i7-7600u | 32GB DDR4 | 1TB SSD | 14"IPS
In-house streaming tölva: Ryzen 5600X | Gigabyte B550I Aorus Pro AX | 32GB 3600MHz | 1TB Samsung 980 Pro PCIe 4.0 | GTX960
Löglegt WinRAR leyfi
In-house streaming tölva: Ryzen 5600X | Gigabyte B550I Aorus Pro AX | 32GB 3600MHz | 1TB Samsung 980 Pro PCIe 4.0 | GTX960
Löglegt WinRAR leyfi
-
Höfundur - Ofur-Nörd
- Póstar: 299
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Uppfæra diska eða kaupa nýja tölvu?
Já, er orðinn mikill skortur?Njall_L skrifaði:Vissulega mikilvægt en spurning hvernig gengur að finna kort á lager þessa mánuðinafalcon1 skrifaði:Er skjákortið ekki eins mikilvægt og var í gamla daga?Njall_L skrifaði:Fyrst þú ert farinn að finna fyrir takmörkunum með núverandi vélbúnaði er það alveg góð hvatning til að endurnýja tölvuna, að undanskyldu skjákorti miðað við markaðinn í dag.
-
Höfundur - Ofur-Nörd
- Póstar: 299
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Uppfæra diska eða kaupa nýja tölvu?
Hvaða MOBO mynduð þið mæla með?
-
Höfundur - Ofur-Nörd
- Póstar: 299
- Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Uppfæra diska eða kaupa nýja tölvu?
Hversu miklu betri eru örgjörvar í dag miðað við þann örgjörva (Intel i5-3570K @ 3.4GHz) sem er í gömlu tölvunni? Mér hefur sýnst að það hafi hægst á þróuninni síðustu ár en kannski bara vegna þess að ég hef verið sáttur og ekki fylgst vel með þróuninni.
Re: Uppfæra diska eða kaupa nýja tölvu?
Hér geturu td. séð samanburð á þínum núverandi og ódýrasta af 5000 seríunni frá AMD og dýrasta frá 3000 seríunnifalcon1 skrifaði:Hversu miklu betri eru örgjörvar í dag miðað við þann örgjörva (Intel i5-3570K @ 3.4GHz) sem er í gömlu tölvunni? Mér hefur sýnst að það hafi hægst á þróuninni síðustu ár en kannski bara vegna þess að ég hef verið sáttur og ekki fylgst vel með þróuninni.
https://www.cpubenchmark.net/compare/In ... 3859vs3598
Munurinn á single-threaded frammistöðu er ekki svo svakalegur, en mesta bætingin undanfarin ár hefur held ég verið með því að fjölga kjörnum:
Þeir frá single thread score: 2045, 3380 og 2745
Svo eru þeir með "CPU Mark": 4919, 22192 og 39246
Þetta CPU mark er meðaltal 8 prófa sem þú getur lesið um hér: https://www.cpubenchmark.net/cpu_test_info.html
Held það sé ekki spurning að þú myndir finna fyrir töluverðri bætingu í myndbandagerð. Ég held þú myndir fá mest út úr því að kaupa þér CPU með fleiri kjörnum heldur en hraðari tíðni ef þú ert fyrst og fremst að nota tölvuna fyrir vinnu en ekki leiki.