Þeir munu gjörsamlega hrauna yfir okkur.mikkimás skrifaði:Flott, þá getum við mjólkað ferðamennina næstu árin.
Jarðskjálftar...
Re: Jarðskjálftar...
Re: Jarðskjálftar...
þessir sem tala í fjölmiðla eru að hugsa um að 'EKKI ALA Á ÓTTA ALMENNINGS' - við erum bara eins og börn sem þarf að hlífa við óþægilegum upplýsingummikkimás skrifaði: Ég hef ekki heyrt eina einustu manneskju með þekkingu á sviði jarðeðlisfræði tala um raunhæfan möguleika á stórgosi á þessum slóðum,
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 267
- Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
Eigum við ekki aðeins að slaka á og hafa rétt eftir fólki.
Þorvaldur Þórðarson sagði ekki að gos þarna myndi standa í 250-500 ár eða talaði um sérstakan möguleika á því. Hann sagði að gos hefði líklegast staðið yfir í Skjaldbreið í 250-500 ár miðað við útreikninga þeirra. Eitthvað sem ég efast um að hann hafi birt í ritrýndri grein.
Ég veit ekki hverjir "við" erum í þessu samhengi en grunar að hann sé að tala um sig og Einar Bessa Gestsson (náttúruvársérfræðing hjá veðurstofunni) sem skrifaði BSc verkefnið sitt um Þingvallahraun undir leiðsögn Þorvaldar. (https://skemman.is/bitstream/1946/21553 ... 0Bessi.pdf). Útreikningar Einars eru í kafla 4.4.
Vel að merkja er Skjaldbreiður næstum 100 km í burtu frá Geldingadal. Tilheyrir allt öðru eldfjallakerfi og gaus fyrir 9 þúsund árum síðan. Á svipuðum tíma og leifar ísaldarjökulsins eru að hverfa. Sem þýðir að gosið er líklegast afleiðing möttulbráðnunar vegna fargléttingar skorpunnar. Heiðin há sem Þorvaldur nefnir einnig er talin vera 7500 ára gömul.
Ég veit ekki hvort það eru yngri gos á því svæði en þau eru tæplegast mikið yngri en þau sem eru til staðar (sunnan við Langjökul).
Til samanburðar má nefna það að líklegast hefur gosið á Reykjanesskaganum 20 sinnum á síðustu tvö þúsund árum. Frá landnámi líklegast 12 sinnum hið minnsta. Síðasta gosið er eins og mögulega hefur komið fram hérna, um árið 1340 sem þýðir það það gaus þarna um 12 sinnum á tæplega 500 ára tímabili.
Þorvaldur Þórðarson sagði ekki að gos þarna myndi standa í 250-500 ár eða talaði um sérstakan möguleika á því. Hann sagði að gos hefði líklegast staðið yfir í Skjaldbreið í 250-500 ár miðað við útreikninga þeirra. Eitthvað sem ég efast um að hann hafi birt í ritrýndri grein.
Feitletrun er mín.Þorvaldur Þórðarson skrifaði:Við gerðum þetta fyrir ákveðið svæði og margfölduðum upp. Við vorum að leika okkur með Þingvallahraunið sem er gömul dyngja og Skjaldbreið og við vorum að fá goslengd upp á 250 til 500 ár fyrir stóru dyngjurnar, og þá vorum við jafnvel of rausnarlegir í framleiðninni.“
Þorvaldur segir þetta ekki beint segja okkur hversu lengi gos sem mynda stórar dyngjur vara, en samt sem áður að dyngjur séu myndaðar í mjög löngum gosum.
Ég veit ekki hverjir "við" erum í þessu samhengi en grunar að hann sé að tala um sig og Einar Bessa Gestsson (náttúruvársérfræðing hjá veðurstofunni) sem skrifaði BSc verkefnið sitt um Þingvallahraun undir leiðsögn Þorvaldar. (https://skemman.is/bitstream/1946/21553 ... 0Bessi.pdf). Útreikningar Einars eru í kafla 4.4.
Vel að merkja er Skjaldbreiður næstum 100 km í burtu frá Geldingadal. Tilheyrir allt öðru eldfjallakerfi og gaus fyrir 9 þúsund árum síðan. Á svipuðum tíma og leifar ísaldarjökulsins eru að hverfa. Sem þýðir að gosið er líklegast afleiðing möttulbráðnunar vegna fargléttingar skorpunnar. Heiðin há sem Þorvaldur nefnir einnig er talin vera 7500 ára gömul.
Ég veit ekki hvort það eru yngri gos á því svæði en þau eru tæplegast mikið yngri en þau sem eru til staðar (sunnan við Langjökul).
Til samanburðar má nefna það að líklegast hefur gosið á Reykjanesskaganum 20 sinnum á síðustu tvö þúsund árum. Frá landnámi líklegast 12 sinnum hið minnsta. Síðasta gosið er eins og mögulega hefur komið fram hérna, um árið 1340 sem þýðir það það gaus þarna um 12 sinnum á tæplega 500 ára tímabili.
-
- FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
Stærstu gossprungur á Reykjanesi geta náð 20 til 40 km lengd eftir því hvaða eldstöð gýs og hvar gýs og hvernig eldgos verður. Hluti af sprungusveim Krýsuvíkur liggur upp í Mosfellsdal þar sem leifar af kulnaðri eldstöð eru. Það er mjög líklegt að sprungusveimur eldstöðvarinnar Reykjanes (vestan við Grindavík) nái til Reykjavíkur samkvæmt jarðfræðikorti sem ég á en mörkin eru ekki skráð á kortið þar sem þau eru undir sjó eða ekki þekkt.mikkimás skrifaði:Ég hef ekki heyrt eina einustu manneskju með þekkingu á sviði jarðeðlisfræði tala um raunhæfan möguleika á stórgosi á þessum slóðum, burtséð frá kvikusöfnun og þrýstingi, nú eða þá að hraun úr þessu gosi muni flæða yfir Grindavík á endanum. Þú veist að það er ekki langt í sjóinn frá gosinu?jonfr1900 skrifaði:Það er kvikusöfnun í gagni vestan við Grindavík sem á uppruna sinn í djúpu kvikuhólfi. Það er væntanlega ekki ennþá komið að eldgosi þar alveg strax en teljarinn í það eldgos er orðinn mjög stuttur tel ég. Það er fyrir utan þetta eldgos í Geldingadalir sem mun renna þangað hægt og rólega eftir að eldgosið er búið er að fylla upp í alla dali sem þarna eru í dag.mikkimás skrifaði:Lol þú mátt spara stóru orðin.
Dyngjur eru einnig mjög sérstök eldgos.
Hvað er dyngjugos? (Vísindavefurinn)
Edit: Bætti aðeins við textann.
Fyrir ári síðan þegar landris stóð yfir við Þorbjörn talaði Maggi Tumi m.a.s. um að yrði gos þarna yrði það *ekki* stórt.
Þú getur keypt þetta jarðfræðikort hérna. Upplýsingar á kortinu eru frá 2009 held ég eða í kringum það ár og því vantar nýrri rannsóknir inná þetta kort.
Höggunarkort (Forlagið)
Last edited by jonfr1900 on Þri 30. Mar 2021 22:30, edited 1 time in total.
-
- FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
Samkvæmt sérfræðingum Háskóla Íslands þá eru komnar fram vísbendingar sem væntanlega verða staðfestar í næstu mælingu hvort að þessu eldgosi sé að ljúka eða ekki.
Eldgos í Geldingadölum (Háskóli Íslands)
Eldgos í Geldingadölum (Háskóli Íslands)
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 267
- Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
Það er bara Kjalarnesið sem er í hættu.appel skrifaði:Þarf maður að fara flýja reykjavík?
STÓRHÆTTU!
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
Hættu að hræða mig!!!!mjolkurdreytill skrifaði:Það er bara Kjalarnesið sem er í hættu.appel skrifaði:Þarf maður að fara flýja reykjavík?
STÓRHÆTTU!
Re: Jarðskjálftar...
Athyglisvert, virðist vera að koma upp rautt hraun að einhvrerju leiti... nýjir rauðhólar að myndast?
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
GuðjónR skrifaði:Hættu að hræða mig!!!!mjolkurdreytill skrifaði:Það er bara Kjalarnesið sem er í hættu.appel skrifaði:Þarf maður að fara flýja reykjavík?
STÓRHÆTTU!
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
1. apríl er ekki fyrr en á morgun! hahaha ...rapport skrifaði:Capture.PNGGuðjónR skrifaði:Hættu að hræða mig!!!!mjolkurdreytill skrifaði:Það er bara Kjalarnesið sem er í hættu.appel skrifaði:Þarf maður að fara flýja reykjavík?
STÓRHÆTTU!
Kann betur við þessa fyrirsögn þó...
- Viðhengi
-
- Screenshot 2021-03-31 at 14.05.09.png (823.59 KiB) Skoðað 1935 sinnum
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 267
- Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
thorhs skrifaði:Athyglisvert, virðist vera að koma upp rautt hraun að einhvrerju leiti... nýjir rauðhólar að myndast?
Nei. Rauðhólar mynduðust þegar hraun fór yfir mýri eða votlendi.
Helsta ástæðan fyrir því að hraun verður rautt er að það oxist og myndi járnoxíð. Gerist oftar en ekki þegar það kemst í snertingu við vatn.
Mig grunar að þessi rauði litur sé einhverskonar sjónhverfing af völdum hita eða gass. Ef ekki þá væri nálægasta skýringin rigning eða snjókoma sem ég myndi ekki alveg veðja á sjálfur.
Last edited by mjolkurdreytill on Mið 31. Mar 2021 20:19, edited 1 time in total.
-
- FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
Hérna er talað um að ef eldgosið verður áfram í gangi eftir 3 mánuði þá verða öll lægri svæði þarna orðin full af hrauni.
Dalurinn hægt og rólega að fyllast (mbl.is)
Dalurinn hægt og rólega að fyllast (mbl.is)
Re: Jarðskjálftar...
Þótt dalurinn fyllist er ekki þar með sagt að strax byrji að leita í aðrar lægðir, heldur er einnig möguleiki að það nái að taka á sig dyngjulögun og þá verður hraunflæðið ekki út á við heldur fer það að flæða jafnt yfir gígveggina hringinn um kring og mynda hefðbundna dyngju.
Til sölu í augnablikinu: Sennheiser HD600 heyrnatól
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 267
- Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
Hraunflæðið hefur tekið breytingum síðan það hófst.
Í upphafi var það helluhraun en núna er það farið að hegða sér meira eins og apalhraun.
Á sumum stöðum sést hvar hraunjaðarinn er farinn að ýta öllu á undan sér.
Hraunið er svolítið innilokað og gæti alveg þykknað inni í dalnum án þess að leita mikið út úr honum.
Í upphafi var það helluhraun en núna er það farið að hegða sér meira eins og apalhraun.
Á sumum stöðum sést hvar hraunjaðarinn er farinn að ýta öllu á undan sér.
Hraunið er svolítið innilokað og gæti alveg þykknað inni í dalnum án þess að leita mikið út úr honum.
Re: Jarðskjálftar...
Have never lost an argument. Fact.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 267
- Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
Hvað hefur gígurinn eiginlega gert þér?Graven skrifaði:Nennir einhver að henda þessum aumingjum í gíginn!
https://youtu.be/BA-9QzIcr3c
12:57:54
Re: Jarðskjálftar...
Þetta var aðeins of mikið cringe moment.
Til sölu í augnablikinu: Sennheiser HD600 heyrnatól
-
- FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
Íslendingar halda áfram að haga sér eins og fífl fyrir framan vefmyndavél Rúv.
-
- Geek
- Póstar: 840
- Skráði sig: Þri 15. Des 2015 01:27
- Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
This is why we can’t have nice things, alltaf að vera eyðileggja fyrir aðra
ASRock B550M Steel Legend | 2x8GB Aorus 3200Mhz | R5 3600 | RTX 2070 Super | Seasonic Focus+ Gold | Predator XB271HU
-
- FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
Hérna er frétt Rúv um fólkið sem er að trufla vefmyndavélina.
Skemma beint streymi frá eldgosinu með stælum
Skemma beint streymi frá eldgosinu með stælum
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1676
- Skráði sig: Þri 08. Nóv 2005 15:19
- Staðsetning: Við tölvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
Er útvarp saga hætt eða?
Turn: Cooler Master Mastercase H500M Móðurborð: Asus ROG Maximus XI Hero CPU: Intel Core i9-9900K 3.6GHz (Coffee Lake) GPU: EVGA GeForce RTX 2080 Super FTW3 Ultra Gaming RAM: Corsair Vengeance LPX 32GB (4x8GB) DDR4 PC4-28800C18 3600MHz Quad Channel Kit PSU: Corsair AX850 Titanium 80 Plus Titanium Modular SSD: Samsung 970 PRO 512GB M.2 2280 PCI-e 3.0 x4 NVMe
-
- FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
Það er orðin stór spurning hvort að það fari að gjósa við Keili. Það er áhugaverð og stöðug smáskjálftavirkni þarna núna, ekki mjög mikil en það þarf ekki að segja mikið.
Re: Jarðskjálftar...
Mér sýnist að eitthvað hafi hægt á gosinu eftir jarðskjálftann í gær, er það vitleysa í mér?
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 267
- Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
- Staða: Ótengdur
Re: Jarðskjálftar...
Það er vont að bera saman glóandi kvikuna í myrkri og svo aftur í dagsbirtu en ég held að það sé ekki hægt að neita því að núna í morgunsárið dró verulega úr virkninni í gígunum.falcon1 skrifaði:Mér sýnist að eitthvað hafi hægt á gosinu eftir jarðskjálftann í gær, er það vitleysa í mér?
Það þarf samt að hafa í huga að skjálftavirknin á því svæði, sem hefur verið stöðug undanfarnar vikur, er að mestu (ekki öllu) leyti að eiga sér stað á 5-6 km dýpi og skjálftarnir þarna eru smáir.jonfr1900 skrifaði:Það er orðin stór spurning hvort að það fari að gjósa við Keili. Það er áhugaverð og stöðug smáskjálftavirkni þarna núna, ekki mjög mikil en það þarf ekki að segja mikið.
Hér er t.d. virknin á 3-10 km dýpi.
Hér er svo virknin á 3km dýpi og minna.
Tímabilið á þessum myndum er 19 mars til dagsins í dag.
Getið séð þetta á skjálftavefsjánni.
https://skjalftalisa.vedur.is/index.html#/page/map
----------------------
Ætla að skjóta inn virkninni á 5 km dýpi og meira bara svo fólk sjái hvað mikið af þessari virkni er að eiga sér stað á +5 km dýpi.
Last edited by mjolkurdreytill on Mán 05. Apr 2021 11:01, edited 2 times in total.