Góðan og blessaðan daginn.
Pabbi spurði hvernig fartölvu hann ætti að kaupa sem þolir hnjask og er þokkalega öflug í myndbandsvinnslu. Ég er ekki lengur eins sleipur á svellinu og ég var en ég sagði honum að kaupa Lenovo umfram annað þar sem ég hef mjög góða reynslu af þeim.
Hann býr í Noregi og fann síðu sem selur refurbished vélar og mér líst þokkalega á þær en datt í hug að spyrja hér hvaða vél af þessum menn myndu helst mæla með.
https://www.pcdeal.no/pc-nettbrett/pc-baerbar/lenovo
Kv. Dagur
(Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
-
Höfundur - ÜberAdmin
- Póstar: 1317
- Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
- Staðsetning: Lýtó
- Staða: Ótengdur
(Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: (Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
Myndvinnsla er líklega best á Apple
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 267
- Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
- Staða: Ótengdur
Re: (Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
Hann gæti farið í öflugri tölvur frá Thinkpad eins og W540, W541 eða P51 sem eru til sölu þarna. Sýnist þær allar koma með i7 quad core og 16 gb vinnsluminni. Thinkpad er líka með TP útgáfur eins og T540P og T460P. Dell og HP eru líklegast með sambærilegar útgáfur.
Eldri gerðirnar eru líklegast bara með VGA porti út ef hann ætlar að nota aukaskjá.
En þessar tölvur eru ekki léttar, nær þremur kg líklegast. Sterklega byggðar og ættu að þola hnjask.
P.S. 40 týpurnar frá Lenovo koma með mús/snertifleti sem margir myndu lýsa sem ekki þeim vinsælasta. Góðu fréttirnar eru þær að það er frekar auðvelt að skipta um músina sjálfur.

Last edited by mjolkurdreytill on Lau 13. Feb 2021 18:28, edited 1 time in total.
-
Höfundur - ÜberAdmin
- Póstar: 1317
- Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
- Staðsetning: Lýtó
- Staða: Ótengdur
Re: (Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
Takk fyrir svörin, við skoðum þetta betur
Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!
Re: (Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
Held að flest Thinkpad módel séu með mini dp. Er sjálfur með 431s og það er þannig á henni.mjolkurdreytill skrifaði:Eldri gerðirnar eru líklegast bara með VGA porti út ef hann ætlar að nota aukaskjá.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 267
- Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
- Staða: Ótengdur
Re: (Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
Það er líklegast rétt hjá þér. Mér hefur einhvern veginn alltaf tekist að láta þessa mDP útganga fara framhjá mér.einarn skrifaði:Held að flest Thinkpad módel séu með mini dp. Er sjálfur með 431s og það er þannig á henni.mjolkurdreytill skrifaði:Eldri gerðirnar eru líklegast bara með VGA porti út ef hann ætlar að nota aukaskjá.
W540/1 og T550 koma þá einnig með VGA útgangi en P50 og yngri módelin eru einnig með HDMI útgangi.
-
Höfundur - ÜberAdmin
- Póstar: 1317
- Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
- Staðsetning: Lýtó
- Staða: Ótengdur
Re: (Hjálp) Pabbi spurði mig hvaða tölvu hann ætti að kaupa..
Hann fer líklega í W540 fyrir skjástærðina og kaupir svo dokku seinna ef hann vantar hdmi eða dvi skjátengi
Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!