Núna er samsung s9+ kominn á síðustu metrana og fæ mér nýjan á næstu mánuðum og mér lýst mjög vel á xiaomi mi 11 ef hátalararnir standast kröfur mínar. En ég sé marga mismunandi pósta hér og þar að miui sé oft frekar buggy en aftur á móti losnar maður við exynos chipsettið og helmingi hraðari hleðsla á mi 11 símanum. Mun ódýrari en samsung líka
Hér er semsagt spurningin mín til xiaomi notenda. Hafið þið verið að lenda í mörgum software göllum á miui skinninu? Væri alveg til í langtíma reynslu á þessum símum.
Er búinn að nota Xiaomi í cirka 2 ár núna, átti fyrst pocophone sem var mjög góður, og á núna redmi note 8 Pro. Og ætla aftur í Xiaomi þegar ég uppfæri, UI hefur alltaf verið gott fyrir utan eftir 1 update þá voru eh instability issues en þeir voru snöggir að laga það. Hleðslan er frábær, snöggur og skilvirkur, UI er ekki of flókið, en samt gott customisation level.
Work In Progress: CPU: AMD Ryzen 3900X I GPU: Palit GameRock 3080 I Case: Lian Li O11 Dynamic Mini White.
PS5
Get ekki talað, konan er að baka brauð og ég ætla að horfa á það hefast.
Er með Redmi Note 9 Pro, 2 aðrir Mi símar á heimilinu, Mi Box S við skjávarpann, og svo eru nokkrir með Mi síma í kringum mig, eina sem ég heyri er jákvætt.
Ég er á mínum þriðja. Fyrsti entist ef ég man rétt nokkuð vel en batteríið gaf sig. Annar entist ekki lengi. Það kom blæðing í skjáinn sem kláraði hann á 2-3 dögum. Hann hlutur að hafa fengið högg en ég man samt ekki eftir að hann hafi dottið eða neitt.
Núna er ég man Mii note 8 pro. Ég keypti hann í flýti hjá Mii island þegar siðasti dó. Núna er ég í veseni með hann þvi snertilausar greiðslur virka ekki. Hann fór í viðgerð hjá þeim og ég var með skelvilegan láns síma í rúma viku. Fékk hann loksins og nú get ég ekki virkjað kort fyrir snertilasa virknin honum.
Sem símar er þetta fínasta dót. Þetta gerir allt, batteríið endist vel, myndavélin góð og svo kostar þetta ekki mikið. Ég reikna alveg með að fá mér Mii aftur en mér finnst ég samt búinn að vera frekar óheppinn með eintök.
Ef þú verslar þér hjá til dæmis Gearbest á flash sale færðu þetta mjög ódýrt.
Þannig að mii.is sér alveg um þjónustuna á þessum símum. Maður mun náttúrulega eiga gamla síman ef maður lendir í veseni. Þarf auðvitað að borga allar viðgerðir sjálfur ef maður kaupir þetta að utan. Náttúrulega best að geta keypt hann hér. Það verður amk ekki tekið af samsung að þetta eru virkilega stable símar
edit:Þetta er vinsæl síða til að kaupa kínasíma í evrópu
Samkvæmt svari frá mii.is sem var á þessa leið.
Sæll Jóhannes,
Ég vona að þú sért að eiga frábæran dag!
Við eigum von á Mi 11 vonandi í byrjun apríl. Eins og staðan er núna þá sýnist mér hann verða á sama verði og Mi 10 (139.990) en það er ekki alveg 100% staðfest. Við munum fá það staðfest þegar nær dregur
Er búinn að ákveða að fá mér mi 11 pro. Býst passlega við því að panta hann hér https://tradingshenzhen.com/en/ og flasha eu rom á hann. 160.000 hingað kominn.
Last edited by Viggi on Þri 30. Mar 2021 12:21, edited 1 time in total.
Viggi skrifaði:Er búinn að ákveða að fá mér mi 11 pro. Býst passlega við því að panta hann hér https://tradingshenzhen.com/en/ og flasha eu rom á hann. 160.000 hingað kominn.
Viggi skrifaði:Er búinn að ákveða að fá mér mi 11 pro. Býst passlega við því að panta hann hér https://tradingshenzhen.com/en/ og flasha eu rom á hann. 160.000 hingað kominn.
Svo eru menn að segja að iPhone sé dýr
Fyrir utan SE útgáfuna þá er ódýrasti Iphone 12 (mini útgáfan 64gb) á 139 þús, Iphone 12 frá 160 þús og Pro frá 199 þús.
Ps keypti Iphone 12 Mini um áramótin, hef átt Andriod síðan 2014 og var mjög vonsvikin. Svo vonsvikin að ég lét konuna hafa hann og tók Iphone SE 2020 síman hennar í staðin.
Pss, þessi Iphone SE er til sölu hér á vaktinni og það er lítill sem enginn áhugi
| Ryzen 7 1800X 16GB Gainward GeForce RTX 3060 Pegasus 12GB| Plex i5 6600K 16GB | Mi Poco X3 | Mi Box S |