Tengja DSL

Svara

Höfundur
Pascal
Fiktari
Póstar: 66
Skráði sig: Fös 30. Júl 2010 22:42
Staða: Ótengdur

Tengja DSL

Póstur af Pascal »

Góðan daginn,
Er að reyna setja upp ljósnet hjá mömmu og pabba.
Þau búa út á landi þar sem það er besta sem er í boði.
Þegar pabbi var að gera upp húsið hefur hann rifið dósina fyrir heimasímann í burtu.
Eru búin að vera nota 4G net síðan þá.
Veit einhver hvernig ég á að tengja þetta svo eg fái netið til að koma inn.
Erum komin með router og þetta a allt að virka.
Viðhengi
20201221_141100.jpg
20201221_141100.jpg (2.96 MiB) Skoðað 1411 sinnum

peacedust
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Mán 02. Feb 2015 12:19
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af peacedust »

Það eru komin nokkur ár síðan ég vann við vdsl uppsetningar en þá settum við splitter/síu á inntakið áður en það tengdist svo í router/símtæki. Þetta var lítill svartur kubbur með þremur RJ-11 kerlingum, merktar LINE, TEL, MODEM ef ég man rétt. En mikilvægast var svo að hringja í Símann og fá þá til að færa tenginguna úr ADSL yfir í VDSL :) Þá fékk maður yfirleitt netsamband um leið.

Höfundur
Pascal
Fiktari
Póstar: 66
Skráði sig: Fös 30. Júl 2010 22:42
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af Pascal »

peacedust skrifaði:Það eru komin nokkur ár síðan ég vann við vdsl uppsetningar en þá settum við splitter/síu á inntakið áður en það tengdist svo í router/símtæki. Þetta var lítill svartur kubbur með þremur RJ-11 kerlingum, merktar LINE, TEL, MODEM ef ég man rétt. En mikilvægast var svo að hringja í Símann og fá þá til að færa tenginguna úr ADSL yfir í VDSL :) Þá fékk maður yfirleitt netsamband um leið.
Uuu jájá, pabbi sagði að þetta hafi verið svona hjá sér áður.
Hann bara pældi ekkert í því hvernig þetta var tengt þegar hann reif þetta úr.
Vodafone sagði að ég þyrfti að fá rafvirkja í þetta, þeir vissu ekkert hvernig ég ætti að tengja þetta
Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1478
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af depill »

Er þetta inntakið ( lítur ekki þannig út ). In essence lítur þetta rétt tengt út, 2 vírar í bláan sem er nóg fyrir DSL. Þér er velkomið að pinga mig og ég get kannski kíkt hvernig þetta á að vera hjá þér með inntakið ( ef þú ert hjá Voda það er ).

Spurning er hvort að guli og rauði séu basicly með DSL signalið inn til þín eða hvort þetta er þarna. Ef þú kemst í inntakið og getur tekið mynd af því ætti þetta að skýrast allt.

Höfundur
Pascal
Fiktari
Póstar: 66
Skráði sig: Fös 30. Júl 2010 22:42
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af Pascal »

depill skrifaði:Er þetta inntakið ( lítur ekki þannig út ). In essence lítur þetta rétt tengt út, 2 vírar í bláan sem er nóg fyrir DSL. Þér er velkomið að pinga mig og ég get kannski kíkt hvernig þetta á að vera hjá þér með inntakið ( ef þú ert hjá Voda það er ).

Spurning er hvort að guli og rauði séu basicly með DSL signalið inn til þín eða hvort þetta er þarna. Ef þú kemst í inntakið og getur tekið mynd af því ætti þetta að skýrast allt.
Uh tja þessi kapall kemur beint úr veggnum þar sem síminn var tengdur alltaf.
Viðhengi
20201222_164701.jpg
20201222_164701.jpg (2.99 MiB) Skoðað 1343 sinnum

Höfundur
Pascal
Fiktari
Póstar: 66
Skráði sig: Fös 30. Júl 2010 22:42
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af Pascal »

En svo er þetta víst líka, en það hefur enginn fiktað í þessu í fleiri fleiri ár síðan að það kom einhver til að laga heimasímann.
Viðhengi
20201222_165230.jpg
20201222_165230.jpg (2.75 MiB) Skoðað 1339 sinnum
Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1478
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af depill »

Er þetta ekki svarti go hvíti þarna efst upp sem er ekki tengt í neitt ? Er þetta inntakið ? þar sem þetta kemur í hús

Höfundur
Pascal
Fiktari
Póstar: 66
Skráði sig: Fös 30. Júl 2010 22:42
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af Pascal »

depill skrifaði:Er þetta ekki svarti go hvíti þarna efst upp sem er ekki tengt í neitt ? Er þetta inntakið ? þar sem þetta kemur í hús
Eftir okkar bestu vitneskju, þá já.
Á eg að reyna tengja þetta bara þarna ?

arons4
Geek
Póstar: 895
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af arons4 »

Sýnist vírarnir vera eitthvað tæpt punsaðir í tengið, plús þeir snúa í vitlausa átt.

Höfundur
Pascal
Fiktari
Póstar: 66
Skráði sig: Fös 30. Júl 2010 22:42
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af Pascal »

arons4 skrifaði:Sýnist vírarnir vera eitthvað tæpt punsaðir í tengið, plús þeir snúa í vitlausa átt.
Þetta er nú bara svona tæpt sett í þar sem ég var ekki viss hvort þetta væri tengt í réttu tengin.
Ætti það að skipta einhverju máli svo lengi sem það snerti járnið í tenginu?

Höfundur
Pascal
Fiktari
Póstar: 66
Skráði sig: Fös 30. Júl 2010 22:42
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af Pascal »

Núna hef ég þrýst vírunum almennilega niður og snéri þeim rétt.
Núna blikkar internet ljósið a routernum nokkrum sinnum og slekkur á sér aftur.
Gerir þetta a svona mínútu fresti.

Hizzman
Tölvutryllir
Póstar: 637
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af Hizzman »

Er þetta dós í lofti? Það er líklegt að lausu vírarnir séu inntakið. Það er væntanlega ekki línusími virkur? Það væri ágætt að sjá mynd sem sýnir hvernig leiðslurnar koma inn í dósina.

edit: það lítur reyndar ekki út fyrir að snúran sem þú heldur á, komi í hina dósina.
Last edited by Hizzman on Þri 22. Des 2020 21:50, edited 2 times in total.

Vaktari
has spoken...
Póstar: 174
Skráði sig: Lau 08. Des 2012 21:05
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af Vaktari »

Vilt allavega ekki hafa neitt annað en 2 víra beint úr inntaki og beint í þennan tengil sem þú ert með.
Semsagt beina leið svo engar truflanir verði á leiðinni.

Ef þú ert með línuleitara þá ættirðu að geta rekið þetta að inntaki.
Er þessi dós ekki bara einhver millidós þar sem lagnirnar fara í húsinu í og svo í inntakið?

Hef aðgang vodafone megin til að sjá hvort það sé ekki örugglega búið að klára tenginguna á þessu
Last edited by Vaktari on Þri 22. Des 2020 21:15, edited 2 times in total.
Skjámynd

russi
Tölvutryllir
Póstar: 632
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af russi »

Ef routerinn er blikka í mín eða svo og hættir, þá er hann að reyna að ná synci, sem hann er ekki að ná.
Fyrst þarftu að tryggja að xDSL sé virkjað hjá þér, færð þær upplýsingar hjá Símanum eða Vodafone.

Þú þarft að finna inntakið sjálft og rekja þig þaðan, við gerum ráð fyrir því að í inntakinu sé verið að nota pr númer eitt( oft kallað sæti).
Þarft að sjá hvaða hvert sá kapall fer og rekja þig honum og sjá hvort sama par er tengt áfram og svo koll og kolli ef það eru framlengingar á þessu.

Besta leiðinn fyrir til að prófa línuna er að fara með router að inntaki og tengja beint þar og sjá hvort komi sync, myndi byrja á því áður en þú ferð að koma merkinu á annan stað í húsinu svo þú sért ekki að gera þetta bara til þess að pirra þig.

Ef þú ert ekki viss um sætin á inntakinu sendu þá mynd inn og ég skal reyna að lóðsa þig áfram
Skjámynd

oliuntitled
has spoken...
Póstar: 189
Skráði sig: Mán 29. Jún 2009 15:56
Staða: Ótengdur

Re: Tengja DSL

Póstur af oliuntitled »

Sendi þér PM :)
Svara