Ég er með tveggja ára gamlan Sampo (19") skjá sem keyptur var í tölvulistanum. Núna er skyndilega komin bleik eða ljósrauð slikja yfir allan skjáinn - vitið þið hvað það er eða hvar/hvernig er best að laga það?
Skjárinn er held ég kominn úr ábyrgð - hvert er best/órdýrast að fara með hann í viðgerð?
Getur maður nokkuð lagað þetta sjálfur?
Palm skrifaði:Ég er með tveggja ára gamlan Sampo (19") skjá sem keyptur var í tölvulistanum. Núna er skyndilega komin bleik eða ljósrauð slikja yfir allan skjáinn - vitið þið hvað það er eða hvar/hvernig er best að laga það?
Skjárinn er held ég kominn úr ábyrgð - hvert er best/órdýrast að fara með hann í viðgerð?
Getur maður nokkuð lagað þetta sjálfur?
ég lenti nú í því að sony skjárinn minn varð allt í einu grænn ...
þá var hann bara ekki alveg í sambandi við skjákortið .. gætir ath hvort það sé eitthvað sambandsleysi
Takk kærlega fyrir öll þessi svör.
Prófaði að hreyfa snúruna til og liturinn breyttist á skjánum - úr því að vera bleikur yfir í að vera grænn og svo yfir í eðlilegan lit.
Þarf greinilega að skipta um snúru - takk fyrir þetta - var næstum rokinn af stað með skjáinn