16 Bit MS-DOS-Windows error

Svara

Höfundur
so
Ofur-Nörd
Póstar: 234
Skráði sig: Mið 07. Jan 2004 20:07
Staðsetning: Hornafjörður
Staða: Ótengdur

16 Bit MS-DOS-Windows error

Póstur af so »

Sælir félagar, á í smá vanda.

Ætlaði að installera gömlum leik (98) og gamalli orðabók inn á ferðavél systur minnar, en fékk þá upp villuboðin:

16-bit MS-DOS Subsystem C:\Windows\System32\Autoexec.nt The system file is not suitable for running MS-DOS and Microsoft Windows applications.

Svo var hægt að velja Close eða Ignor en ekki hægt að hald áfram.

Googlaði þessum villuboðum og fékk þá upp að sennilega væri Config.nt - Autoexec.nt eða command.com skrá skemmd eða ónýt og þyrfti að sækja hana aftur frá OS diskinum.
http://support.microsoft.com/default.as ... -us;324767

Hún er með XP home og HP vél en tók náttúrulega ekki með sér stýrikerfisdiskinn heim í jólafrí. Konan mín á svipaða HP vél með xp home en vélarnar er báðar með eyrnamerktum stýrikerfum frá framleiðanda vélanna.

Þá kemur að spurningunum: Er í lagi að nota disk konunnar til að sækja þessar skrár eða verða vandræði eða get ég sótt þessar skrár einhver staðar annarstaðar í vélinni og sett á réttann stað.

Eða á ég að gera þetta einhvernvegin allt öðruvísi.

Það er ekkert mál að installera nýrra dóti á vélina og hún hefur verið að nota þessa orðabók á þessari vél áður svo þetta er tiltölulega nýuppkomið hjá henni. Virðist bara tengt 16 bita forritum.

Hafiði lent í þessu. Allar hugmyndir og vangaveltur vel þegnar.
Last edited by so on Fim 23. Des 2004 17:28, edited 1 time in total.
Athlon64 X2 5000+, Gigabyte GA-MA-770-DS3, 4GB Corsair, 2* Seagate 500GB, Xerox 19", Neovo 20" LCD skjáir

gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Póstur af gumol »

Ég giska á að það sé alveg í lagi. Taktu bara backup af fileunum sem eru núþegar á tölvunni svo þú lendir ekki í vanda.

Höfundur
so
Ofur-Nörd
Póstar: 234
Skráði sig: Mið 07. Jan 2004 20:07
Staðsetning: Hornafjörður
Staða: Ótengdur

Póstur af so »

Þetta gekk fínt, takk gumol :D
Athlon64 X2 5000+, Gigabyte GA-MA-770-DS3, 4GB Corsair, 2* Seagate 500GB, Xerox 19", Neovo 20" LCD skjáir

w.rooney
Nörd
Póstar: 125
Skráði sig: Fim 14. Okt 2004 22:50
Staða: Ótengdur

Póstur af w.rooney »

það er kaski fullseint í rassinn gripið en það er líka hægt að fara í repair möppuna á vélinni og taka autoexec skjalið og copera og setja i windows möppuna...
Svara