Jæja Núna er ég að pæla í að kaupa nýja tölvu. Ég hef verið að spá og spekúlera lengi og hér er listinn yfir það sem ég hef sett saman .
Asus P4C800 Intel P4 2,4 ghz 800 fsb Kingston HyperX KHX3200/512 512MB DDR 400MHz Dragon kassi
Samtals ætti þetta að kosta ca 76000
Síðan ætla ég að kaupa mér 120 gb WD hdd seinna Ég ætla að bíða með að kaupa skjákort og nota mitt gamal Geforce MX 440 . Er það þess virði að kaupa sér 2x 512 mb vinnsluminni?... dugar ekki 512 alveg eitt fyrir mig? Er ekki rétti tíminn til að kaupa tölvudót núna?? ætti ég að bíða lengur? Er mikill hávaði í PSU viftunni í dragon kassanum? Haldiði að ég þurfi eitthvað að kæla betur? Er þessi list ekki skotheldur hjá mér
Viftan á PSU-inu í Dragon kassanum er mjög hljóðlát. Hún er ekki hljóð laus en ég myndi giska á að hún væri um 28db. En það fylgir ein vifta sem er á hurðinni og sú viftar er mjög hávær og þar að auki gerir hún lítið sem ekkert gagn þar sem hún blæs bara loftinu til hliðar(ekki beint áfram).
Svo er það með þennan kassa að hann virkar eins og magnari á annan hávaða að því mér finnst. Samt er ég mjög ánægður með minn.
Svo eru þeir á svo sanngjörnu verði
Þetta er akkurat eins uppfærsla og ég ætlaði að fá mér, ég er meirasegja líka með GF4 MX 440
Ég verð bara að kaupa lappa fyrir skólann og á ekki pening
En... Er ekki alveg öruggt fyrir mig að vera með þetta í gangi í nokkra daga? þarf ég að fá betri kælingu til þess? Og er þessi kassi rosaþungur? mikið þyngri enn aðrir?
Ekoc skrifaði:En... Er ekki alveg öruggt fyrir mig að vera með þetta í gangi í nokkra daga? þarf ég að fá betri kælingu til þess? Og er þessi kassi rosaþungur? mikið þyngri enn aðrir?
Það er hægt að fá ál-útgáfu af honum(fæst í tölvulistanum, hugveri o.fl.) sem er aðeins 6kg og kostar held ég 3000-4000 kalli meira.
Þetta verður fyrsta skiptið sem ég set svona tölvu saman . Þarf ég að kaupa einhverja kapla eða eitthvað svoleiðis ?? Fylgja þeir ekki með móðurborðinu??
Og einn önnur spurning
Hvort ætti ég að fá mér 2,4 800 fsb kr 23.655- eða 2,66 533 fsb kr 22.980-
Og líka það að það er miklu betri þjónusta í Tölvuvirkni en Computer.is
Með fyrirfram þökk
Ekoc skrifaði:Og einn önnur spurning
Hvort ætti ég að fá mér 2,4 800 fsb kr 23.655- eða 2,66 533 fsb kr 22.980-
Og líka það að það er miklu betri þjónusta í Tölvuvirkni en Computer.is
Með fyrirfram þökk
Veldu frekar hærri FSB en hærri MHz þú færð betri performance úr því þú getur skoðað það á AnandTech eða á Tom's Hardware og þar sérðu að 2.4 á 800 er að outperforma meira að segja 2.8 á 533(toms í winrar)