Þar sem 10850K kostar 90 þús. ódýrastur og það eru bara tvö Z490 móðurborð sem kosta 30 þús. eða minna þá erum við að velja á milli uATX Gigabyte móðurborðsins og ATX Gigabyte móðurborðsins og ég myndi persónulega mæla með ATX útgáfu yfir uATX útgáfu á sama verði: https://www.computer.is/is/product/modu ... 490-ud-atx
En það er ástæða fyrir því að þetta móðurborð er svona ódýrt - VRMin (rafmagnsbúnaðurinn sem sér um að gefa örgjörvanum að borða) á því eru ekki upp á sitt besta og hitna miklu meira en á réttsvo dýrari móðurborðum. Því er ekki endilega von á góðu ef þú parar það við 10900K með vatnskælingu (minna/ekkert loftflæði yfir VRM). En þetta mun alveg virka saman.
ok en segjum að ég hafi aðeins meira budget hvað er ódýrasta móður borð hér heima sem þið munduð þora að para þetta við því ég nenni ekki hita veseni og langar að hann geti gert það sem hann á að gera !
edit: er með fína kælingu be quite dark rock 4 pro
Last edited by RikkzY on Lau 21. Nóv 2020 01:56, edited 1 time in total.