ATH: Einungis er leyfð sala á tölvum og tölvutengdum búnaði.
VARÚÐ: Verðlöggur eru leyfðar með þeim takmörkunum að ýtrustu kurteysi er krafist af þeim.
Er með til sölu ~2 ára gamla Lenovo Thinkpad T480s laptop. Tölvan er lítið sem ekkert notuð og lítur út eins og ný.
Speccar:
CPU: I5-8350U
Minni: 16gb 2400mhz ram
Diskur: 256gb Samsung PCI-Express SSD
14" snertiskjár
Intel UHD620 skjástýring
Hægt að loka á vefmyndavél
Rafhlaða í góðu standi
Baklýst Íslenskt lyklaborð - prentaðir stafir
Vélin er aðeins 1.3kg
Ég hef eiginlega ekki hugmynd um hversu mikils virði þessi vél er, megið endilega hjálpa mér með verðhugmynd.
Last edited by svensven on Mið 28. Okt 2020 09:27, edited 2 times in total.
osaka skrifaði:Ég myndi segja 100þúsund til 150þúsund en það er allt eftir kaupandanum. Ég hef mjög góða reynslu af þessum vélum.
Styð þetta. Vel með farin vél með íslensku lyklaborði og góðri rafhlöðu væri nær 150 en 100.
Hinsvegar er ekkert meira virði en það sem einhver er tikbúinn að borga fyrir það.
Hafiði kíkt á ebay nýlega ?
Mér sýndist 480s með i5-8350 örgjörvanum vera á svona 650$ og upp úr.
Ebay virkar þannig að það hanga inni fullt af overpriced hlutum sem seljast aldrei, hvort sem það er skjákort eða hvaðeina. Þessvegna stillir maður á vöktun á hlutnum og grípur new listings eða uppboð sem eru að klárast á mun lægra verði.
Last edited by jonsig on Sun 01. Nóv 2020 12:01, edited 1 time in total.
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]
Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic