Daginn Vaktarar, eins og þið sjáið er ég enn með þessa gömlu góðu PC og þið sjáið í undirskrift.. ótrúlegt en satt er hún búin að duga í tæp 13 ár. Hands down to gigabyte and intel! En allavega, ég er búinn að vera lenda í þessu einstakasinnum undanfarna mánuði, að þegar ég kveiki á henni kemur svona bilunarhljóð og hún startar sér ekki upp, en kveikir þó á sér.
Það hefur virkað að taka power snúruna úr skjákortinu og setja hana aftur í, taka minniskubbinn úr og aftur í. Ótrúlegt en satt.
Hvað getur þetta verið?
Skrítið hljóð þegar ég kveiki á PC tölvunni
Skrítið hljóð þegar ég kveiki á PC tölvunni
GA-P35-DS3R | Intel C2D E6850 3.0Ghz | eVGA GF 8800GTS 512mb (G92) | Corsair 4gb ram |
Re: Skrítið hljóð þegar ég kveiki á PC tölvunni
Myndi giska að power supplyið, sé það líka 13 ára, sé að gefa sig.
Re: Skrítið hljóð þegar ég kveiki á PC tölvunni
Bilunarhljóð? Meinaru svona "beep" hljóð? Algengt að litlir hátalarar sem eru tengdir við móðurborðið gefa frá sér beep þegar eitthvað fer úrskeiðis. Getur verið erfitt að vita nákvæmlega hvað það er en algengast er að spennugjafar fari.
Last edited by Hausinn on Þri 29. Sep 2020 19:10, edited 3 times in total.
Re: Skrítið hljóð þegar ég kveiki á PC tölvunni
Ef þetta er hljóð frá svona litlum hátalara tengdum við móðuborðið þá geturðu googlað mobo týpuna og fundið í manualinu beep codes og lesið út úr þeim hvað þetta þýðir. 2 stór bíb = þetta bilað, 3 stutt bíb = eitthvað annað er bilað. Osfr.
Re: Skrítið hljóð þegar ég kveiki á PC tölvunni
Þetta hljóð er stöðugt á einum tón, erfitt að lýsa þessu hljóði en það er eins og þetta komi frá tölvunni en ekki hátölurunum.
GA-P35-DS3R | Intel C2D E6850 3.0Ghz | eVGA GF 8800GTS 512mb (G92) | Corsair 4gb ram |
-
- Kóngur
- Póstar: 6079
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Skrítið hljóð þegar ég kveiki á PC tölvunni
hátíðnihljóð?pulsar skrifaði:Þetta hljóð er stöðugt á einum tón, erfitt að lýsa þessu hljóði en það er eins og þetta komi frá tölvunni en ekki hátölurunum.
mögulega coil whine en 8800gts kortin voru mörg með því vandamáli.
annars er bara kominn tími á upgrade
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL