Skrúfa í dekki
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Skrúfa í dekki
Loftið var farið að leka rólega úr, á viku fresti droppaði þrýstingurinn úr 32pund í 24pund.
Sá skýringuna í dag þegar ég var að bæta á lofti. Er hægt að ná skrúfunni úr án þess að skaða dekkið? Til dæmis með að minnka loftþrýsting niður fyrir 10 pund skrúfa skrúfuna úr með skrúfujárni og dæla síðan aftur 32 pundum af lofti. Eða ætli það þurfi að setja gúmitappa í stað skrúfunnar?

- Viðhengi
-
- 03749983-9D92-4486-8B7D-99934BDC2241.jpeg (2.19 MiB) Skoðað 4528 sinnum
-
- FC7893B3-C2CE-4FDD-BE05-3289FC51BB4F.jpeg (2.16 MiB) Skoðað 4528 sinnum
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 3992
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
Það þarf plástur hinum megin á dekkinu, þegar bílkó var og hèt kostaði það mig 1000kr
Last edited by jonsig on Fös 15. Maí 2020 23:46, edited 1 time in total.
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 3992
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
En eftir viðgerð fellur úr gildi hámarks leyfilegur aksturshraði dekksins niður í 136.794 kmh samkvæmt minni víðtæku google þekkingu.
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
-
- spjallið.is
- Póstar: 401
- Skráði sig: Mið 16. Jan 2008 12:42
- Staðsetning: Nokkuð góð!
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
Það þarf að setja tappa í þetta eða eða svepp. (tappi með bót á endanum)
Þannig að það er bara dekkjaverkstæði eða næsti jeppakarl á vinalistanum sem er með tappasett í bílnum
Þannig að það er bara dekkjaverkstæði eða næsti jeppakarl á vinalistanum sem er með tappasett í bílnum
Gigabyte Z390 Aorus Pro | I9 9900K | Corsair Vengeance 32GB | Asus RTX 2080 Ti | Samsung 970 Evo Plus 250 GB | Corsair AX 860i | Noctua NH-D15
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 3992
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
Líka hægt að taka dekkið af felgunni og líma intel 9700k yfir gatið.
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1819
- Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
- Staðsetning: 110 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
það þarf að setja Svepp innanfrá til þess að dekkið sé ennþá viðurkennt. Annað er bara fúsk.
PS, ekki taka skrúfuna úr því þá ferð það fyrst að leka að einhverju viti, um að gera að fara bara á verkstæði
PSS ekki setja tappa utanfrá nema í neyð og þú átt leið á verktæði, það er bara skítaredding og dekkið vírslitnar frekar.

Last edited by einarhr on Lau 16. Maí 2020 01:09, edited 2 times in total.
| Ryzen 7 1800X 16GB Gainward GeForce RTX 3060 Pegasus 12GB| Plex i5 6600K 16GB | Mi Poco X3 | Mi Box S |
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1819
- Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
- Staðsetning: 110 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
Hvað þarf maður mikið Thermal Paste?
jonsig skrifaði:Líka hægt að taka dekkið af felgunni og líma intel 9700k yfir gatið.
| Ryzen 7 1800X 16GB Gainward GeForce RTX 3060 Pegasus 12GB| Plex i5 6600K 16GB | Mi Poco X3 | Mi Box S |
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
Bara setja súperglue regluega utaná skrúfuna svo hún detti ekki úr = safe og fínt...
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1819
- Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
- Staðsetning: 110 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
Já svo þegar það kemur vetur aftur þá er bara að snúa henni við og þú ert setrapport skrifaði:Bara setja súperglue regluega utaná skrúfuna svo hún detti ekki úr = safe og fínt...
| Ryzen 7 1800X 16GB Gainward GeForce RTX 3060 Pegasus 12GB| Plex i5 6600K 16GB | Mi Poco X3 | Mi Box S |
Re: Skrúfa í dekki
Farðu í n1 og keyptu viðgerðarkitt fyrir dekk, kostar minnir mig im 1500kr. Öll verkfæri og leiðbeiningar fylgja.
Ég notaði þetta á Pathfinder a 33" og það svínvirkaði og hefur gert síðust liðið ár og nokkuð marga þúsund km
Ég notaði þetta á Pathfinder a 33" og það svínvirkaði og hefur gert síðust liðið ár og nokkuð marga þúsund km
Last edited by benony13 on Lau 16. Maí 2020 02:22, edited 1 time in total.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
Getur maður fyllt upp í gatið án þess að rífa dekkið af felgunni?benony13 skrifaði:Farðu í n1 og keyptu viðgerðarkitt fyrir dekk, kostar minnir mig im 1500kr. Öll verkfæri og leiðbeiningar fylgja.
Ég notaði þetta á Pathfinder a 33" og það svínvirkaði og hefur gert síðust liðið ár og nokkuð marga þúsund km
Þ.e. lagað þetta utanfrá?
Re: Skrúfa í dekki
Ég fékk skrúfu í dekkið á skódanum mínum í fyrrasumar. Keypti mér svona tappakitt þegar ég átti leið í Byko og gerði við. Má vera að það sé fúsk að gera þetta svona án þess að taka dekkið af felgunni og heilnudda það með ilmolíum, en það hefur a.m.k. ekki lekið síðan.GuðjónR skrifaði:Getur maður fyllt upp í gatið án þess að rífa dekkið af felgunni?benony13 skrifaði:Farðu í n1 og keyptu viðgerðarkitt fyrir dekk, kostar minnir mig im 1500kr. Öll verkfæri og leiðbeiningar fylgja.
Ég notaði þetta á Pathfinder a 33" og það svínvirkaði og hefur gert síðust liðið ár og nokkuð marga þúsund km
Þ.e. lagað þetta utanfrá?
PS komst að því þá að varadekkið hafði legið ónotað í skottinu í 17 ár. Þurfti bara aðeins að bæta lofti á það, en ég komst a.m.k. út á bensínstöð á því.
Re: Skrúfa í dekki
Ja ekkert mál.GuðjónR skrifaði:Getur maður fyllt upp í gatið án þess að rífa dekkið af felgunni?benony13 skrifaði:Farðu í n1 og keyptu viðgerðarkitt fyrir dekk, kostar minnir mig im 1500kr. Öll verkfæri og leiðbeiningar fylgja.
Ég notaði þetta á Pathfinder a 33" og það svínvirkaði og hefur gert síðust liðið ár og nokkuð marga þúsund km
Þ.e. lagað þetta utanfrá?
1. Þú tjakkar upp bílinn
2. Tekur skrúfuna úr
3. Notar tólið sem er beitt of riflum til að stækka sárið og hreinsa það
4. Setur gúmmí drulluna í nálaraugað og treður því í gatið og losar.
5. Skerð endann stendur uppúr og vola! Tilbúið
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 3992
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
Held að vandamálið við kúkmix reddingu að líkurnar á að dekkið hvellspringi á mikilli ferð aukast.
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Re: Skrúfa í dekki
Vertu öruggur vinur. Farðu á næsta dekkjaverkstæði og láttu setja svepp að innanverðu í dekkið.
Seinasta sem þú vilt að gerist fyrir þig á 90km/klst hraða er að skítamix viðgerð gefi sig. Hugsaðu um allt sem þú eyðir peningum í að staðaldri og hvort þetta sé eitthvað sem þú viljir spara nokkra þúsunda kalla með.
Seinasta sem þú vilt að gerist fyrir þig á 90km/klst hraða er að skítamix viðgerð gefi sig. Hugsaðu um allt sem þú eyðir peningum í að staðaldri og hvort þetta sé eitthvað sem þú viljir spara nokkra þúsunda kalla með.
-
- spjallið.is
- Póstar: 401
- Skráði sig: Mið 16. Jan 2008 12:42
- Staðsetning: Nokkuð góð!
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
Skulum nú aðeins róa okkur hérna. Aðferðarfræðin við tappa og svepp er nákvæmlegta eins nema að nálin fyrir sveppinn er minni þannig að það þarf ekki að rífa gatið eins mikið út og fyrir tappa. (það er samt rifið út) Sveppurinn er öruggari viðgerð til að halda lofti en hefur ekki allt að segja með öryggi dekksins því það er aðskotahluturinn (skrúfan) sem hefur mögulega vírslitið það. Rétt settur tappi losnar vanalega ekki úr en getur lekið.
Þannig að dekk hvellspringa ekki útaf tappa eða svepp heldur útaf vírsliti, skemmdum eða göllum. Það er eitthvað sem viðgerðarmaðurinn dæmir þegar hann skoðar dekkið, hvort það eigi að laga eða henda.
Dekk vírslitna svo stundum án allrar aðstoðar og þá kemur skallablettur á þau, þannig að það er ágætis regla að gjóa augunum á þau öðru hverju.
Þannig að dekk hvellspringa ekki útaf tappa eða svepp heldur útaf vírsliti, skemmdum eða göllum. Það er eitthvað sem viðgerðarmaðurinn dæmir þegar hann skoðar dekkið, hvort það eigi að laga eða henda.
Dekk vírslitna svo stundum án allrar aðstoðar og þá kemur skallablettur á þau, þannig að það er ágætis regla að gjóa augunum á þau öðru hverju.
Gigabyte Z390 Aorus Pro | I9 9900K | Corsair Vengeance 32GB | Asus RTX 2080 Ti | Samsung 970 Evo Plus 250 GB | Corsair AX 860i | Noctua NH-D15
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
Takk fyrir öll svörin, ætla ekki að taka neina áhættu heldur fara með dekkið í viðgerð eftir helgi. Alveg magnað samt hvað það lekur hægt úr dekkinu.
Re: Skrúfa í dekki
Þegar götin eru lítil eins og eftir skrúfu eða nagla, þá eru dekkjaverkstæði að setja tappa í utanfrá, eins sumir hér kalla skíta reddingu, ég hef gert þetta nokkuð oft síðust 25 ár eða svo, aldrei klikkað, þannig að þú ert nú ekki að taka neina stóra áhættu með þessu.
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 3992
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
Fólk sem býr útá landi þarf góð dekk.
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Re: Skrúfa í dekki
með mentun frá michelin(jonsig), þá segi ég þér að fara á næsta verkstæði og setja svepp í dekkið hjá n1
var að vinna við þetta í 10 ár, hef séð alskonar fúsk við viðgerðir á öllum dekkjaverkstæðum hérna heima þegar ég kíkji í heimsókn og shit hvað ég vildi ekki að þetta væri dekkið mitt oftast (bæði hjá n1 og sólning) en ég færi frekar í n1, og frekar á fellsmúla( ef það er sama þjónusta er þar og þegar ég var í þessu) eða á ásbrú reykjanesbæ, eða bara fara í costco og fá sér ný
ALLTAF energy saver sem sumar dekk
x-ice sem vetrar (heilsárs)
xice-north ef þú vilt nelgd dekk
alpin endast ekki voða vel ekki eins og xice

Asus Maximus Xiii hero (WiFi)- Intel i5 11900K - Corsair Vengeance RGB PRO 4x8GB 3600MHz CL18 - Asus Strix 2080 - Samsung 1TB 980 PRO - samsung 500gb 970 evo plus - WD 12TB - Corsair RM750x - Corsair H150i pro - Corsair 678C Corsair virtuoso - Asus 27" - Corsair k95 platinum - Corsair Harpoon RGB - Lenovo G27Q-20 165hz 1440p
Re: Skrúfa í dekki
Ég myndi bara setja tappa í þetta utanfrá og gleyma þessu, það er ekki eins og þú sért á einhverjum kappakstursbíl eða eitthvað , það er ekkert að fara hvellspringa eða neitt
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
Getur einhvern bent mér á hvar er hægt að kaupa svona ódýrt "tappa kit" ?
Re: Skrúfa í dekki
Artic Trucks eru með solid tappasett. Annars ættiru að fá útá næstu bensínstöð sett.
-Need more computer stuff-
Re: Skrúfa í dekki
Þau skipti sem ég hef fengið skrúfu eða glerbrot í dekk, þá hef ég farið á dekkjaverkstæði til að láta gera við.
Alltaf fundist þessi dekkjakit fyrir einstaklinga hálfgert mix.
Alltaf fundist þessi dekkjakit fyrir einstaklinga hálfgert mix.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Skrúfa í dekki
Já, dekkið kostar 11k nýtt og er meira en hálfslitið. Ég hringdi á dekkjaverkstæði og þeir rukka 6k fyrir að setja tappann í. Borgar sig þá frekar að kaupa nýtt dekk.Tbot skrifaði:Þau skipti sem ég hef fengið skrúfu eða glerbrot í dekk, þá hef ég farið á dekkjaverkstæði til að láta gera við.
Alltaf fundist þessi dekkjakit fyrir einstaklinga hálfgert mix.
Hringdi á AB-Varahluti þeir áttu svona 1000 kr. sett með nokkrum töppum, en það er löngu uppselt og ekkert á leiðini. Bílanaust á sett sem kostar 15.000 og eitthvað annað sem ég hringdi í á sama sett á 17.000 , bæði í stálkassa með 100 töppum.
Búinn að hringja á Olís og N1 bensínstöðvar en enginn kannast við svona.
Fékk beint númer á dekkjaverkstæðinu í mosó, en það númer hringir alltaf út.
Ótrúlega flókið að finna eitthvað svona einfalt