Þetta er nú ekki nákvæmt. Sá sem býður vöru til sölu er tilboðsgjafi. Það fer svo eftir því hvernig yfirlýsingin er orðuð og öðrum aðstæðum hvort að um sé að ræða eiginlegt og bindandi tilboð, þannig að samþykki gagnaðila sé nægilegt til að samningur teljist kominn á, eða óskuldbindandi hvatningu til mögulegra viðskiptavina. Held það sé nokkuð ljóst að samkvæmt íslenskum samningarétti yrði almenn auglýsing eins og um ræðir í OP talin til hið síðarnefnda, þannig að svar væntanlegs kaupanda við auglýsingunni í einkaskilaboðum myndi fela í sér bindandi tilboð sem seljandi þyrfti svo að samþykkja til að samningi verði komið á. Hitt er svo annað mál að það er almenn kurteisi að svara svörum við auglýsingu sem maður hefur birt tafarlaust, sem er kannski rótin að gremjunni hjá þeim sem um ræðir í OP.
Einungis kaupendur geta gert tilboð, seljendur geta svo komið með gagntilboð.
Uppsett verð er ekki "tilboð".
Hvenær telst tilboði vera svarað?
-
- Fiktari
- Póstar: 62
- Skráði sig: Mið 22. Jan 2014 02:12
- Staða: Ótengdur
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Last edited by Raskolnikov on Fös 15. Sep 2017 10:51, edited 1 time in total.
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Raskolnikov skrifaði:Þetta er nú ekki nákvæmt. Sá sem býður vöru til sölu er tilboðsgjafi. Það fer svo eftir því hvernig yfirlýsingin er orðuð og öðrum aðstæðum hvort að um sé að ræða eiginlegt og bindandi tilboð, þannig að samþykki gagnaðila sé nægilegt til að samningur teljist kominn á, eða óskuldbindandi hvatningu til mögulegra viðskiptavina. Held það sé nokkuð ljóst að samkvæmt íslenskum samningarétti yrði almenn auglýsing eins og um ræðir í OP talin til hið síðarnefnda, þannig að svar væntanlegs kaupanda við auglýsingunni í einkaskilaboðum myndi fela í sér bindandi tilboð sem seljandi þyrfti svo að samþykkja til að samningi verði komið á. Hitt er svo annað mál að það er almenn kurteisi að svara svörum við auglýsingu sem maður hefur birt tafarlaust, sem er kannski rótin að gremjunni hjá þeim sem um ræðir í OP.
Einungis kaupendur geta gert tilboð, seljendur geta svo komið með gagntilboð.
Uppsett verð er ekki "tilboð".
Nákvæmlega, viljayfirlýsing er einungis einn þáttur hugtaksins tilboð og í þessu tilviki var samþykki gagnaðila varla nægilegt til að samningur kæmist á. Reyndar telst vidirh varla tilboðsgjafi nema að um tilboð hafi verið að ræða.
-
- Fiktari
- Póstar: 62
- Skráði sig: Mið 22. Jan 2014 02:12
- Staða: Ótengdur
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Ég myndi segja að um hafi verið að ræða tilboð samkvæmt merkingu íslenska nafnorðsins tilboð, hann gaf boð um að kaupa hlut, og lögfræðilega væri þetta óskuldbindandi tilboð, en ekki bindandi loforð.Nákvæmlega, viljayfirlýsing er einungis einn þáttur hugtaksins tilboð og í þessu tilviki var samþykki gagnaðila varla nægilegt til að samningur kæmist á. Reyndar telst vidirh varla tilboðsgjafi nema að um tilboð hafi verið að ræða.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3525
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Það að lesa skilaboðin um að hinn sé tilbúin í að kaupa á uppsettu verði gerir engan skuldbundin til þess að selja þeim aðila.END skrifaði: Nákvæmlega, viljayfirlýsing er einungis einn þáttur hugtaksins tilboð og í þessu tilviki var samþykki gagnaðila varla nægilegt til að samningur kæmist á. Reyndar telst vidirh varla tilboðsgjafi nema að um tilboð hafi verið að ræða.
Enda hvernig ætti að leysa vandamálið ef að ég les frá 2 eða 3 aðilum um að þeir borgi uppsett verð.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Það er hægt að fara til fyrirtækis og óska eftir tilboði s.s. að fá verðtilboð án þess að skuldbinda sig til að kaupa vöruna.
Að lesa auglýsingu jafngildir ekki móttöku tilboðs
Söluaðili skuldbindur sig samt almennt ekki með sölutilboði til að selja viðkomandi vöruna, bara að verð breytist ekki verði hún keypt á gildistíma tilboðsins.
Ef varan klárast eða aðrar forsendur breytast þá þarf seljandinn ekki að standa við tilboðið, ekki nema sölutilboðið hafi verið svar við útboði eða einhverju öðru sem skuldbatt viðkomandi til að standa við sitt.

Við erum ekki ósammála. Viljayfirlýsing söluaðilans uppfyllti varla hugtaksskilyrði tilboðs eins og það hefur verið skýrt í íslenskum samningarétti.urban skrifaði: Það að lesa skilaboðin um að hinn sé tilbúin í að kaupa á uppsettu verði gerir engan skuldbundin til þess að selja þeim aðila.
Enda hvernig ætti að leysa vandamálið ef að ég les frá 2 eða 3 aðilum um að þeir borgi uppsett verð.
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Var að hlæja að þessari umræðu með lögfræðingi í gær. Þetta er bara borðleggjandi þannig að ef þú býður hlut til sölu á ákveðnu verði, eins og það er orðað í þræðinum sem um ræðir, og annar aðili samþykkir á máta þannig að það berist seljanda, þá er kominn á samningur. Punktur.
Það er svo annað mál að fólki líði eins og það geti hegðað sér öðruvísi, enda ólíklegt að fólk fari í einhverja eftirfylgni þegar það kaupir tölvuíhluti á spjallborði.
Það er svo annað mál að fólki líði eins og það geti hegðað sér öðruvísi, enda ólíklegt að fólk fari í einhverja eftirfylgni þegar það kaupir tölvuíhluti á spjallborði.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3525
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Hvernig á þá að leysa vandamálið ef að ég les póst frá 3 aðilum um að þeir taki allir uppsettu verði ?Gunnar J skrifaði:Var að hlæja að þessari umræðu með lögfræðingi í gær. Þetta er bara borðleggjandi þannig að ef þú býður hlut til sölu á ákveðnu verði, eins og það er orðað í þræðinum sem um ræðir, og annar aðili samþykkir á máta þannig að það berist seljanda, þá er kominn á samningur. Punktur.
Það er svo annað mál að fólki líði eins og það geti hegðað sér öðruvísi, enda ólíklegt að fólk fari í einhverja eftirfylgni þegar það kaupir tölvuíhluti á spjallborði.
Hvernig í ósköpunum skuldbindur það mig á einhvern hátt að lesa póst á spjallborði ?
Það væri laglegt ef að það er hægt að senda manni póst á spjallborði og sá póstur skuldbindur mann á einhvern hátt.
Mér þætti gaman ef að þú gætir fengið þennan lögfræðingsvin þinn til þess að svara því hvað það við að lesa frá honum samþykki skuldbindi mig.
Semsagt, hvaða lög segja til um það.
Það er nefnilega akkurat ekkert sem að skuldbindur mig til þess að taka fyrsta boði og það er akkurat ekkert sem að skuldbindur mig til þess að selja.
Þar að auki var þetta boðið til sölu til gersamlega alls internetsins.
Svarið hjá lögfræðingnum og þér á hugsanlega við ef að ég býð einhverjum hlut til sölu persónulega, en það var aldrei.
Mátt endilega sanna mál þitt, eða fá lögfræðingin til þess að útskýra hvar samnignurinn varð.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
-
- 1+1=10
- Póstar: 1103
- Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
- Staðsetning: 104 Rvk
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
pepsico skrifaði:Hvað áttu við með þessum titil? Meinarðu "Hvenær telst boð vera samþykkt"?
Því það er einfalt svar við því: Þegar það er samþykkt. Sem gerist þegar bjóðandi fær svar þess efnis að það sé samþykkt.
Þú talar um almenna skynsemi; ef ég stend fyrir framan þig og segi "ég býð þér þessa kókdós á fimm hundruð kall" og þú segir "ég tek því" viltu virkilega meina að þar sé ekki um samning að ræða?
hmm það gæti fari eftir því hvort viðkomandi sé að beina sölutali/skrifum sínu til 1 eða margra aðila
ef ég kalla á þig "viltu kaupa dós á 500kr", á móti því að ég kalla yfir hóp af fólki "viltu kaupa dós á 500kr".
annars sjálfur sem góð regla gegn V&V (vonbrigðum og veseni) þá geng ég út frá því að á óformlegum vettvöngum þá sé ekkert afgerandi til sölu eða óskað keypt fyrr en ég er búinn að borga eða fá borgað, enda ekki um venjulegan "búðarrekstur" að ræða og margt sem getur haf áhrif á þróun mála yfir margar mínútur/klukkustundir/daga eins og eitthver annar bauð miklu betur eða hætt var við boðið af eitthverjum öðrum ástæðum.
s.s. Góð regla að búast við að TS/ÓE aðilar áskilji sér allan rétt til að hætta við á hvaða stigi málsins sem er, á meðan samþykktir fjármunir hafa ekki skipts um hendur.
Tölva og Stuffz..
Viðskiptarándýr&bráð.
Viðskiptarándýr&bráð.
-
- Kóngur
- Póstar: 6079
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
held að þú sért að rugla sölu milli einstaklinga og fyrirtækja, en reglur þar á milli eru allt öðruvísi.Gunnar J skrifaði:Var að hlæja að þessari umræðu með lögfræðingi í gær. Þetta er bara borðleggjandi þannig að ef þú býður hlut til sölu á ákveðnu verði, eins og það er orðað í þræðinum sem um ræðir, og annar aðili samþykkir á máta þannig að það berist seljanda, þá er kominn á samningur. Punktur.
Það er svo annað mál að fólki líði eins og það geti hegðað sér öðruvísi, enda ólíklegt að fólk fari í einhverja eftirfylgni þegar það kaupir tölvuíhluti á spjallborði.
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
-
- has spoken...
- Póstar: 159
- Skráði sig: Fös 16. Jan 2015 23:57
- Staðsetning: 105
- Staða: Ótengdur
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
For starters maybe use common sense. You sell the goods to the one who sent the first message. And instead of being quiet you politely answer to the other two that a person contacted you before them and that it's soldurban skrifaði:Hvernig á þá að leysa vandamálið ef að ég les póst frá 3 aðilum um að þeir taki allir uppsettu verði ?Gunnar J skrifaði:Var að hlæja að þessari umræðu með lögfræðingi í gær. Þetta er bara borðleggjandi þannig að ef þú býður hlut til sölu á ákveðnu verði, eins og það er orðað í þræðinum sem um ræðir, og annar aðili samþykkir á máta þannig að það berist seljanda, þá er kominn á samningur. Punktur.
Það er svo annað mál að fólki líði eins og það geti hegðað sér öðruvísi, enda ólíklegt að fólk fari í einhverja eftirfylgni þegar það kaupir tölvuíhluti á spjallborði.
Hvernig í ósköpunum skuldbindur það mig á einhvern hátt að lesa póst á spjallborði ?
Það væri laglegt ef að það er hægt að senda manni póst á spjallborði og sá póstur skuldbindur mann á einhvern hátt.
Mér þætti gaman ef að þú gætir fengið þennan lögfræðingsvin þinn til þess að svara því hvað það við að lesa frá honum samþykki skuldbindi mig.
Semsagt, hvaða lög segja til um það.
Það er nefnilega akkurat ekkert sem að skuldbindur mig til þess að taka fyrsta boði og það er akkurat ekkert sem að skuldbindur mig til þess að selja.
Þar að auki var þetta boðið til sölu til gersamlega alls internetsins.
Svarið hjá lögfræðingnum og þér á hugsanlega við ef að ég býð einhverjum hlut til sölu persónulega, en það var aldrei.
Mátt endilega sanna mál þitt, eða fá lögfræðingin til þess að útskýra hvar samnignurinn varð.
i7 8700K - H100i GTX - Asus Z370-A Prime - GTX 1080 STRIX - Corsair Vengeance 16GB 2400mhz DDR4 - Samsung 970 EVO+ 250GB NVMe - Samsung 850 Pro 512GB - 4TB HDD - Corsair RM1000 - Corsair Obsidian 450D - 34" LG 34UC87M-B - Logitech G9x - Logitech Z623
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Jonssi89 skrifaði:For starters maybe use common sense. You sell the goods to the one who sent the first message. And instead of being quiet you politely answer to the other two that a person contacted you before them and that it's soldurban skrifaði:Hvernig á þá að leysa vandamálið ef að ég les póst frá 3 aðilum um að þeir taki allir uppsettu verði ?Gunnar J skrifaði:Var að hlæja að þessari umræðu með lögfræðingi í gær. Þetta er bara borðleggjandi þannig að ef þú býður hlut til sölu á ákveðnu verði, eins og það er orðað í þræðinum sem um ræðir, og annar aðili samþykkir á máta þannig að það berist seljanda, þá er kominn á samningur. Punktur.
Það er svo annað mál að fólki líði eins og það geti hegðað sér öðruvísi, enda ólíklegt að fólk fari í einhverja eftirfylgni þegar það kaupir tölvuíhluti á spjallborði.
Hvernig í ósköpunum skuldbindur það mig á einhvern hátt að lesa póst á spjallborði ?
Það væri laglegt ef að það er hægt að senda manni póst á spjallborði og sá póstur skuldbindur mann á einhvern hátt.
Mér þætti gaman ef að þú gætir fengið þennan lögfræðingsvin þinn til þess að svara því hvað það við að lesa frá honum samþykki skuldbindi mig.
Semsagt, hvaða lög segja til um það.
Það er nefnilega akkurat ekkert sem að skuldbindur mig til þess að taka fyrsta boði og það er akkurat ekkert sem að skuldbindur mig til þess að selja.
Þar að auki var þetta boðið til sölu til gersamlega alls internetsins.
Svarið hjá lögfræðingnum og þér á hugsanlega við ef að ég býð einhverjum hlut til sölu persónulega, en það var aldrei.
Mátt endilega sanna mál þitt, eða fá lögfræðingin til þess að útskýra hvar samnignurinn varð.
Why answer before an agreement has been made about the sale?
Why not contact bidders one at a time and when you have reached an agreement, you let other bidders know the item has been sold.
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Mér var hugsað til þessa þráðar nýlega og fannst það hljóma vel að endurlífga hann í ljósi þess hve oft það virðist ennþá koma fyrir að fólk hagi sér ekki eins og siðuðu fólki ber:
Notandinn urban kom hérna með nokkra punkta/spurningar en áður en ég svara þeim langar mig að spyrja ykkur öll sömul spurningar:
Þegar notandi býður vöru til sölu á segjum 5.000 krónur hérna og ég sendi honum skilaboðin "Ég er til í þetta. Myndi helst vilja sækja þetta milli 17:30 og 22:30", og umræddur notandi les skilaboðin (það er hægt að sjá að það hafi gerst á þessu spjallborði), finnst ykkur ég vera búinn að skuldbinda mig (samningsbinda mig) til að kaupa umrædda vöru á 5.000 krónur?
Ef ykkur finnst það þá er ég algjörlega sammála. En fyrir þau sem eru sammála en eru samt á þeirri skoðun að umræddur notandi sé ekki búinn að samningsbinda sig er ég með aðra spurningu: Hvernig réttlætið þið það að annar aðili í samning geti verið samningsbundinn en ekki hinn? Hvernig getur það eiginlega staðist? Það er með öllu ósamræmanlegt við hugtakið. Það stenst enga skoðun. En samt eru margir hérna sem telja það standast skoðun af mjög vafasömum og sjálfselskum ástæðum.
(Og fyrir þau, ef einhver eru, sem eru ekki einu sinni sammála því að ég sé búinn að skuldbinda mig veit ég ekki hvað ég á að segja..)
Ein slík ástæða, sem urban minntist á, er "Hvað ef að 4 aðilar hefðu sent mér 'Ég er tilbúinn að taka vöruna á 5.000 krónur'", og svarið er einfaldlega að þú varðst samningsbundinn þeim sem þú last skilaboðin fyrst frá um leið og þú last þau--og ekki hinum. Gagnvart öllum hinum aðilunum hefurðu nefnilega gilda ástæðu til að selja þeim ekki vöruna og hún er sú að engin leið er til að selja fleiri en einum aðila einu vöruna sem var í boði: https://en.wikipedia.org/wiki/Impossibility
Það rífur hins vegar ekki á neinn gildan máta samninginn að þú lest síðan einhver önnur skilaboð viku seinna, eða hvenær sem það er, um boð upp á 5.000 kr. eða 5.100 kr.
Spurning frá urban var "Hvað ef sá fimmti bauð 500 kr og ég las það líka." og svarið er það sama.
Spurning frá urban var "Á ég þá að selja öllum sama draslið ?" og svarið er það sama.
Spurning frá urban var "Hvernig á ég að splitta draslinu á milli þeirra eða fjölfalda það ?" og svarið er það sama.
Spurning frá urban var "Eða á ég kannski bara að staðfesta við þennan sem að bauð 500 krónur og láta hann hafa það." og svarið er það sama.
Spurningarnar "Hvað ef einhver stal vörunni í millitíðinni(eða á hvaða tímapunkti sem er fyrir afhendingu)", "Hvað ef það kviknaði í húsinu og varan brann til kaldra kola", og ótal fleiri sambærilegar spurningar hafa nákvæmlega sama svar.
Lokapunkturinn "Ég verð að staðfesta að þú fáir draslið, þannig er kominn samningur" er einfaldlega ekki réttur því samningur myndaðist við það að þú last skilaboðin um að einhver var af þínum sama huga og hafði samþykkt þitt boð. Um leið og þú last þau.
Ef þú ert á því máli þá vil ég vita af hverju hinn aðilinn ætti ekki líka að fá að segja "Ég verð að staðfesta að ég samþykki að ég fái draslið, þannig er kominn samningur" og svo það sama aftur til baka frá seljanda, og það sama aftur til baka frá kaupanda, og svo framvegis, og svo framvegis því niðurstaðan verður nefnilega sú að það sé engin leið til að samningsbinda neinn.
Það er eitt að svíkjast undan samningum en það er annað að gera það og vera líka í afneitun um að það sé það sem maður sé að gera. Það er samt snilldar hugmynd ef maður er að því á annað borð því þá þarf manni ekki einu sinni að líða illa með það.

Nei, engan vegin það er engin samningur komin neinstaðar.pepsico skrifaði:Mér var hugsað til þessa þráðar nýlega og fannst það hljóma vel að endurlífga hann í ljósi þess hve oft það virðist ennþá koma fyrir að fólk hagi sér ekki eins og siðuðu fólki ber:
Notandinn urban kom hérna með nokkra punkta/spurningar en áður en ég svara þeim langar mig að spyrja ykkur öll sömul spurningar:
Þegar notandi býður vöru til sölu á segjum 5.000 krónur hérna og ég sendi honum skilaboðin "Ég er til í þetta. Myndi helst vilja sækja þetta milli 17:30 og 22:30", og umræddur notandi les skilaboðin (það er hægt að sjá að það hafi gerst á þessu spjallborði), finnst ykkur ég vera búinn að skuldbinda mig (samningsbinda mig) til að kaupa umrædda vöru á 5.000 krónur?
Þú ert aftur á móti búin að gera tilboð.
Ég var með hlut til sölu, þú gerðir tilboð, það getur verið bindandi fyrir þig að standa við tilboðið ef að ég tek því, þá er nefnilega komin samningur sjáðu til.
Seljandi er ekki sá sem að er með tilboð.pepsico skrifaði:Ef ykkur finnst það þá er ég algjörlega sammála. En fyrir þau sem eru sammála en eru samt á þeirri skoðun að umræddur notandi sé ekki búinn að samningsbinda sig er ég með aðra spurningu: Hvernig réttlætið þið það að annar aðili í samning geti verið samningsbundinn en ekki hinn? Hvernig getur það eiginlega staðist? Það er með öllu ósamræmanlegt við hugtakið. Það stenst enga skoðun. En samt eru margir hérna sem telja það standast skoðun af mjög vafasömum og sjálfselskum ástæðum.
(Og fyrir þau, ef einhver eru, sem eru ekki einu sinni sammála því að ég sé búinn að skuldbinda mig veit ég ekki hvað ég á að segja..)
Kaupandi er með tilboð, alveg sama þó svo að hann bjóði uppsett verð, þá er hann samt að setja tilboð í hlutinn.
Tilboð er samngingsbundið ef að því er tekið, eftir að það er samþykkt.
Lestur á tilboði jafngildir ekki samþykkt á tilboði.
Ég get bara ekki skilið á hvaða ótrúlega heimskulega hátt þetta ætti að eiga sér stað.pepsico skrifaði: Lokapunkturinn "Ég verð að staðfesta að þú fáir draslið, þannig er kominn samningur" er einfaldlega ekki réttur því samningur myndaðist við það að þú last skilaboðin um að einhver var af þínum sama huga og hafði samþykkt þitt boð. Um leið og þú last þau.
Hvað ef að ég las nú ekki tilboðið, Litli bró skaust t.d. bara í tölvuna hjá mér og opnaði þetta.
Hvað ef að ég opnaði 2 skilaboð á nákvæmlega sama tíma ?
Hvað ef þetta og hvað ef hitt.
Veistu, þetta lagast allt ef að þú fattar þennan rosalega einfaldla en rosalega mikilvæga hlut í þessu öllu.
Sá sme að er að kaupa hlutinn gerir tilboð.
Sá sem að er að selja hann þarf að samþykkja það tilboð, hann þarf að svara að því tilboði sé tekið.
Annars er engin samningur um kaup og sölu.
Vertu ekki að þessu bulli.pepsico skrifaði:Ef þú ert á því máli þá vil ég vita af hverju hinn aðilinn ætti ekki líka að fá að segja "Ég verð að staðfesta að ég samþykki að ég fái draslið, þannig er kominn samningur" og svo það sama aftur til baka frá seljanda, og það sama aftur til baka frá kaupanda, og svo framvegis, og svo framvegis því niðurstaðan verður nefnilega sú að það sé engin leið til að samningsbinda neinn.
Það þurfa bara báðir aðilar að vera komnir með á hreint hvert kaupverð sé og báðir aðilar að vera komnir með það á hreint að tilboði sé tekið.
Fyrir utan að þarna kickar það inn að þú ert skuldbundinn að standa við tilboðið sem að þú bauðst í hlutinn.
Þú átt að standa við það eftir að það var samþykkt.
Það að svíkjast undan samningum er ógeðslegt.pepsico skrifaði:Það er eitt að svíkjast undan samningum en það er annað að gera það og vera líka í afneitun um að það sé það sem maður sé að gera. Það er samt snilldar hugmynd ef maður er að því á annað borð því þá þarf manni ekki einu sinni að líða illa með það.
Það að halda því fram að það sé kominn samningur með lestri á tilboði er vitleysa.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Lestur á skilaboðum/tilboði er ekki sama og samþykki.
Getur t.d. horft á fasteignaviðskipti, þó þú sért fyrstur og bjóðir uppsett verð, þá er ekki víst að þú fáir eignina.
Seljandi þarf að samþykkja tilboðið.
Þetta er ekki flókið, um leið og seljandi svarar og segist ætla að selja þér vöruna, þá er kominn samningur, ekki fyrr.
Einnig kemur ýmislegt annað en verð inn í dæmið, svo sem afhending og greiðslur. Maður er oft frekar tilbúinn til að taka tilboði þar sem hluturinn er sóttur og staðgreiddur strax.
Fúlt að fá ekki eitthvað sem manni langaði í, en seljandi er engan vegin skuldbundinn þér eftir að hafa einungis lesið skilaboð.
Það er þó almenn kurteisi að svara skilaboðum í beinu framhaldi af því að þú lest þau, en það er svo annað mál.

www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Ég honestly geri aldrei ráð fyrir því að viðskipti gangi í gegn fyrr en viðskiptin eru búin.
En að því sögðu hef ég aldrei lent í slæmri reynslu hér á vaktinni.
En að því sögðu hef ég aldrei lent í slæmri reynslu hér á vaktinni.
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Þú skuldar mér milljón!
Ef þú last setninguna hér á undan þá er kominn á samningur, sendu mér PM og ég sendi þér bankaupplýsingarnar mínar...
^^Þetta^^ meikar ekki sense... að lesa eða móttaka eitthvað skuldbindur fólk ekki, ekki nema um einhverskoanr tilkynningu byggða á lögum eða öðrum samnigi sé að ræða, og þá er talað um "að það sé komið til vitundar", en það á ekki við að koma á samning.
Dæmi um slíka "tilkynningu" væri að senda uppsagnabréf í ábyrgðapósti en uppsögnin byggist á ráðningasamningi og kjarasamningum = það er búið að semja um hvað hún táknar og hernig skuli standa að henni.

Ég skil ekki þennan mótþróa hvað varðar að skilaboðin séu lesin. Þetta kjánalega komment frá rapport sem dæmi. Þó þið séuð ósammála með öllu hljótið þið að vera sammála því að ef að þið eins og þið kallið það "samþykkið" "tilboðið" þá sé hinn aðilinn ekki skuldbundinn því ef honum berst aldrei samþykkið ykkar. Sama hvort það er vegna þess að notandinn kemur aldrei aftur hingað, þið eyðið þeim áður en þau berast eða af því að skilaboðin hurfu af vefþjóninum. Það er ástæðan fyrir því að ég er að hamra á því að skilaboðin verði að vera lesin og að við það eitt myndist samningur.
Þetta er beintengt spurningunni þinni "Hvað ef að ég las nú ekki tilboðið, Litli bró skaust t.d. bara í tölvuna hjá mér og opnaði þetta.". Þessar spurningar svara sér sjálfar ekki satt? Var ég að einhverju leyti óskýr hvað þetta varðar? Ég sagði "við það að þú last". Þó það geti enginn sannað hvort það varst þú eða páfagaukurinn þinn sem olli því að skilaboðin voru merkt sem lesin hér á Vaktinni þá er það á þér og ekki neinum öðrum að standa rétt að.
Þið eruð af þeirri skoðun að þegar fólk setur inn þræði með verðum og upplýsingum um hvar megi sækja vöruna sé það bara auglýsing. Ég er af þeirri skoðun að það sé tilboð.
Þ.a.l. myndi ég t.d. umrita þín orð á þennan máta:
"Fyrir utan að þarna kickar það inn að þú ert skuldbundinn að standa við tilboðið um að selja hlutinn á verðinu þínu.
Þú átt að standa við það eftir að það var samþykkt."

Ha?pepsico skrifaði:Rant...
Vilt þú semsagt meina að ef þú sendir mér að þú sért tilbúinn að kaupa vöru á uppsettu verði og að ég lesi skilaboðin frá þér þá sé ég tilneyddur til að selja þér umrædda vöru óháð öllu vegna þess að ég las skilaboðin, eða er ég að misskilja eitthvað? Að þessi "samningur" sem þú ert alltaf að tala um verði til við það eitt að ég lesi skilaboðin?
Hvað þá ef allir aðrir notendur spjallborðsins eru búnir að segjast ætla að kaupa vöruna á uppsettu verði á undan þér og ég sé að bíða eftir að einhver sæki, hvað setur þig framar í röðina. Eða hvað með að mig langi bara ekki að eiga í viðskiptum við þig persónulega?
Samningurinn verður varla til fyrr en að ég svara þér og segist vera tilbúinn að láta þig hafa vöruna? Þá erum við báðir sammála og samningurinn verður til.
Aðaltölva: Dell Latitude 7480 | i7-7600u | 32GB DDR4 | 1TB SSD | 14"IPS
In-house streaming tölva: Ryzen 5600X | Gigabyte B550I Aorus Pro AX | 32GB 3600MHz | 1TB Samsung 980 Pro PCIe 4.0 | GTX960
Löglegt WinRAR leyfi
In-house streaming tölva: Ryzen 5600X | Gigabyte B550I Aorus Pro AX | 32GB 3600MHz | 1TB Samsung 980 Pro PCIe 4.0 | GTX960
Löglegt WinRAR leyfi
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3525
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
pepsico skrifaði:Ég skil ekki þennan mótþróa hvað varðar að skilaboðin séu lesin. Þetta kjánalega komment frá rapport sem dæmi. Þó þið séuð ósammála með öllu hljótið þið að vera sammála því að ef að þið eins og þið kallið það "samþykkið" "tilboðið" þá sé hinn aðilinn ekki skuldbundinn því ef honum berst aldrei samþykkið ykkar. Sama hvort það er vegna þess að notandinn kemur aldrei aftur hingað, þið eyðið þeim áður en þau berast eða af því að skilaboðin hurfu af vefþjóninum. Það er ástæðan fyrir því að ég er að hamra á því að skilaboðin verði að vera lesin og að við það eitt myndist samningur.
Þetta er beintengt spurningunni þinni "Hvað ef að ég las nú ekki tilboðið, Litli bró skaust t.d. bara í tölvuna hjá mér og opnaði þetta.". Þessar spurningar svara sér sjálfar ekki satt? Var ég að einhverju leyti óskýr hvað þetta varðar? Ég sagði "við það að þú last". Þó það geti enginn sannað hvort það varst þú eða páfagaukurinn þinn sem olli því að skilaboðin voru merkt sem lesin hér á Vaktinni þá er það á þér og ekki neinum öðrum að standa rétt að.
Þið eruð af þeirri skoðun að þegar fólk setur inn þræði með verðum og upplýsingum um hvar megi sækja vöruna sé það bara auglýsing. Ég er af þeirri skoðun að það sé tilboð.
Þ.a.l. myndi ég t.d. umrita þín orð á þennan máta:
"Fyrir utan að þarna kickar það inn að þú ert skuldbundinn að standa við tilboðið um að selja hlutinn á verðinu þínu.
Þú átt að standa við það eftir að það var samþykkt."
Þú verður að átta þig á því að það er kaupandinn sem að er að gera tilboðið.
Seljandinn verður að samþykkja tilboðið.
Þetta sem að þú ert að halda fram að söluauglýsing sé tilboðið og að svar um það sé samþykkt á tilboði gengur bara ekki upp.
Það bara getur ekki gengið upp.
Það er alltaf kaupandi sem að gerir tilboð.
Það er alltaf seljandi sem að þarf að samþykkja tilboð.
Allar pælingar sem að hugsa þetta út frá einhverju öðru eru bara alger vitleysa, þar sem að það er alveg grunn hugsunin á bakvið það sem að er vitlaus.
Seljandi verður alltaf að samþykkja kauptilboð frá kaupanda.
Alveg sama þó svo að kauptilboðið frá kaupanda sé það sama og seljandi var með uppsett verð á.
Annars geta hlutirnir ekki gengið upp.
Annars er aldrei kominn neinn sölu samningur.
Það að þú haldir að það sé kominn sölusamningur við það að þú sendir kauptilboð er allan tíman vitleysan sem að þú ert að halda fram hérna, alveg sama hversu oft þú reynir að halda einhverju álíka fram, þá ert það áfram þú sem að ert að fara með rangt mál.
Kaupandi gerir tilboð.
Seljandi samþykkir tilboðið.
Þá er kominn samningur.
Ekki
Seljandi gerir tilboð með því að bjóða hlutinn til sölu.
Kaupandi samþykkir tilboð með því að senda svar um það.
Seljandi les "samþykkið frá kaupanda"
Þannig er ekki kominn samningur.
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
pepsico skrifaði:Ég skil ekki þennan mótþróa hvað varðar að skilaboðin séu lesin. Þetta kjánalega komment frá rapport sem dæmi. Þó þið séuð ósammála með öllu hljótið þið að vera sammála því að ef að þið eins og þið kallið það "samþykkið" "tilboðið" þá sé hinn aðilinn ekki skuldbundinn því ef honum berst aldrei samþykkið ykkar. Sama hvort það er vegna þess að notandinn kemur aldrei aftur hingað, þið eyðið þeim áður en þau berast eða af því að skilaboðin hurfu af vefþjóninum. Það er ástæðan fyrir því að ég er að hamra á því að skilaboðin verði að vera lesin og að við það eitt myndist samningur.
Þetta er beintengt spurningunni þinni "Hvað ef að ég las nú ekki tilboðið, Litli bró skaust t.d. bara í tölvuna hjá mér og opnaði þetta.". Þessar spurningar svara sér sjálfar ekki satt? Var ég að einhverju leyti óskýr hvað þetta varðar? Ég sagði "við það að þú last". Þó það geti enginn sannað hvort það varst þú eða páfagaukurinn þinn sem olli því að skilaboðin voru merkt sem lesin hér á Vaktinni þá er það á þér og ekki neinum öðrum að standa rétt að.
Þið eruð af þeirri skoðun að þegar fólk setur inn þræði með verðum og upplýsingum um hvar megi sækja vöruna sé það bara auglýsing. Ég er af þeirri skoðun að það sé tilboð.
Þ.a.l. myndi ég t.d. umrita þín orð á þennan máta:
"Fyrir utan að þarna kickar það inn að þú ert skuldbundinn að standa við tilboðið um að selja hlutinn á verðinu þínu.
Þú átt að standa við það eftir að það var samþykkt."
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Ég botna ekkert í þessum þræði, en margir ykkar hræða mig.
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
Eftir að hafa lesið þennan þráð þá skil ég hvers vegna fólk fremur sjálfsmorð
Have never lost an argument. Fact.
-
- Vaktari
- Póstar: 2257
- Skráði sig: Fös 08. Ágú 2008 00:11
- Staðsetning: 109 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Hvenær telst tilboði vera svarað?
pepsico þvi miður en þú ert bókstaflega eina manneskjan inná þessu spjalli sem finnst þetta.
Segir það þér ekkert? Að þú hafir rangt fyrir þér? Alls ekkert að því að hafa stundum rangt fyrir sér....
En það er allaveganna buið að rökræða þetta í 5 hringi og enginn tilgangur að rökræða þetta áfram.