Vöntun á verði í söluþráðum
Vöntun á verði í söluþráðum
Er orðinn þreyttur á að sjá söluþræði þar sem ekkert verð né verðhugmynd er gefin upp.
Er ekki hægt að hafa það sem skyldu að ef þú ætlar að auglýsa eitthvað til sölu hérna að hafa amk einhverja verðhugmynd?
Er ekki hægt að hafa það sem skyldu að ef þú ætlar að auglýsa eitthvað til sölu hérna að hafa amk einhverja verðhugmynd?
-
- Stjórnandi
- Póstar: 1197
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Vöntun á verði í söluþráðum
Já þetta er frekar þreytt og mjög einkennandi fyrir íslendinga, við stöndum alltaf í trúnni um að það komi einhver kjáni sem er tilbúinn að borga hærra en maður telur sig eiga rétt á, en ég held það hafi bara aldrei nokkurntíman gerst að mér vitandi að einhver hafi fengið hærra greitt en hann átti von á.
Besta lausnin er að setja upp einhverja tölu, jafnvel örlítið hærri en tilfinningin segir - og láta prútta sig svo niður í það verð sem maður er sáttur við, það er mín taktík allavega. Annars á þeim erlendu spjallborðum sem ég stunda, þá er gerð krafa um að það sé sett fram verð, þ.e. söluþráðum er eytt út ef það fylgja engin verð, og ég er alveg hlynntur því að taka það upp hér líka, það myndi flýta verulega fyrir sölu og spara tíma seljanda og kaupanda.

Þegar ég var ungur og vitlaus seldi maður dót á meira en það var virði, í gegnum irkið og svona. Maður sér eiginlega eftir því, enda eiginlega predatory að selja einhverjum sem vita ekki betur fyrir tvöfallt það sem fróðir myndu borga fyrir það.
-
- Kóngur
- Póstar: 6079
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Vöntun á verði í söluþráðum
"ég veit hvað ég er með!" kemur sterkt til hugar þegar ég hugsa íslenskt viðskiptavit.kiddi skrifaði:Já þetta er frekar þreytt og mjög einkennandi fyrir íslendinga, við stöndum alltaf í trúnni um að það komi einhver kjáni sem er tilbúinn að borga hærra en maður telur sig eiga rétt á
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Vöntun á verði í söluþráðum
Sammála.
Algjör tímasóun að láta hvern og einn senda sér PM fyrir verð. Svo fær maður kannski svar viku seinna.
Ef þú veist ekki hvað þú vilt fá fyrir eitthvað, slepptu þá því að selja það.
Svo er eBay frábær leið til að vita sirka hvað eitthvað á að kosta notað.

Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Re: Vöntun á verði í söluþráðum
verð í pm
AORUS AC300W ATX Gaming Case | Gigabyte B450 AORUS PRO | AMD Ryzen™ 5 3600 | 32GB G.Skill Ripjaws V 3200MHz DDR4 | Gainward GeForce RTX 3080 Phoenix GS |SSD 970 EVO Plus NVMe M.2 250GB | SSD 860 Evo M.2 1TB | HDD 3.5" Seagate 3TB | Seasonic Focus+ Gold SSR-1000FX
-
- Vaktari
- Póstar: 2671
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Vöntun á verði í söluþráðum
Heyrðu nú mig, ég sem ætlaði að henda inn fullt af söluþráðum með hlutum sem ég hugsanlega ætlaði mér að selja ef einhver væri nógu gjafmildur að yfirbjóða raunverð í einkaskilaboðum en að sjálfsögðu bakka út ef það gengur ekki upp.
Tímasóun fyrir alla - bæði fyrir þann sem er að selja og þann sem er að leita sér að vöru
Tímasóun fyrir alla - bæði fyrir þann sem er að selja og þann sem er að leita sér að vöru
Just do IT
√
√
-
- Geek
- Póstar: 840
- Skráði sig: Þri 15. Des 2015 01:27
- Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
- Staða: Ótengdur
Re: Vöntun á verði í söluþráðum
Ég gæti hugsanlega geta gert það fyrir þig, hentu á mig skiló bara.Hjaltiatla skrifaði:Heyrðu nú mig, ég sem ætlaði að henda inn fullt af söluþráðum með hlutum sem ég hugsanlega ætlaði mér að selja ef einhver væri nógu gjafmildur að yfirbjóða raunverð í einkaskilaboðum en að sjálfsögðu bakka út ef það gengur ekki upp.
Tímasóun fyrir alla - bæði fyrir þann sem er að selja og þann sem er að leita sér að vöru
ASRock B550M Steel Legend | 2x8GB Aorus 3200Mhz | R5 3600 | RTX 2070 Super | Seasonic Focus+ Gold | Predator XB271HU
Re: Vöntun á verði í söluþráðum
Skylda verðhugmynd frekar en verð. Oft vita seljendur ekkert hvað er sanngjarnt og það er því ósniðugt að skylda verð.
Það væri fín leið til að verja alla frá okrurum sem fela sig með því að gefa hvorki upp verð né verðhugmynd en segja svo fimmtán mismunandi einstaklingum sem vita ekki neitt og biðja um slíkt "Att pm" því þeir vita að verðin eru svívirðileg og að fólk hér myndi benda á það.
Það væri fín leið til að verja alla frá okrurum sem fela sig með því að gefa hvorki upp verð né verðhugmynd en segja svo fimmtán mismunandi einstaklingum sem vita ekki neitt og biðja um slíkt "Att pm" því þeir vita að verðin eru svívirðileg og að fólk hér myndi benda á það.
Re: Vöntun á verði í söluþráðum
Dæmi:
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=80395
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=80787
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=80421
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=78616
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=80710
Bara efri helmingur af fyrstu síðu af Til Sölu þræðinum
Frekar þreytandi.

og fleiri
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=80687
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=80761
Virðist að mestu vera einhverjir hit-and-run notendur af bland.is
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=80687
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=80761
Virðist að mestu vera einhverjir hit-and-run notendur af bland.is