Málið er að ég er með Plex heima sem geymir allt barnaefnið fyrir krakkana. Af og til koma inn íslenskt talsettar teiknimyndir sem eru sýndar á RÚV, Stöð 2 eða öðrum stöðvum. Mig langar svo að geta vistað þessar bíómyndir fyrir krakkana. Þetta var svo einfalt í gamla daga, bara spóla í VHS tækið og upptaka

Ég hef stundum náð að vista RÚV teiknimyndir með því að setja þær í gang á RÚV vefnum í tölvunni og nota svo screen recorder á tölvunni til að vista efnið og eiga fyrir þau.
Ég er að velta fyrir mér hvernig sé best að gera þetta með myndlykli? Nú er ég með áskrift að Stöð 2 en þú getur ekki horft á það í tölvunni á netinu.
Þyrfti maður að fara þá leið að tengja myndlykil við sjónvarpskort í tölvunni og fara þannig einhverja fjallabaksleið að þessu?