Ég er allveg uppiskroppa með staði til að kíkja á. Ég er mikill áhugaljósmyndari og buinn að skoða alla helstu staðina við þjóðveginn. Mig langar endilega fá hugmyndir af stöðum sem eru kannski ekki jafn þekktir og þessir vinsælu staðir, þurfa ekki að vera langt í burtu en væri helst til í að gera dagsferð úr því um helgar tildæmis. Fór tildæmis í Kjós í gær og í Mosfellsdal að skoða Helgufoss, Þórufoss og Tröllafoss, æðislegir staðir ekki svo langt í burtu. Opinn fyrir öllu
Tungufoss í Krappa er skemmtilegt svæði líka. 15 mín frá þjóðveginum hjá Hvolsvelli.
þarna eru engir. Stór gjóturð í fossinum, þetta er lágr foss og flott efni fyrir svona ND filter tímamynd.
Ertu ekki með Flickr, 500px, Instagram eða eitthvað til að sýna okkur?
Annars er endalaust af svæðum utan alfaraleiðar. Ertu búinn að fara að mynda uppi í Veiðivötnum? Kjölur og Kerlingarfjöll. Margir staðir á Fjallabaksleið og við Láka. Vestfirðir. Hér fyrir sunnan gætir þú kíkt í Sogin og þá í kring. Ýmislegt áhugavert á Suðurstandarleið. Osfrv
Nóg til að mynda, best nota map.is og skoða ákveðið svæði sem á að taka í gegn og google-a fram og tilbaka
lika hægt nota flickr map og sjá öll gps-tagged myndir frá ákveðnu svæði
Last edited by Labtec on Fim 22. Okt 2020 09:53, edited 1 time in total.
AORUS AC300W ATX Gaming Case | Gigabyte B450 AORUS PRO | AMD Ryzen™ 5 3600 | 32GB G.Skill Ripjaws V 3200MHz DDR4 | Gainward GeForce RTX 3080 Phoenix GS |SSD 970 EVO Plus NVMe M.2 250GB | SSD 860 Evo M.2 1TB | HDD 3.5" Seagate 3TB | Seasonic Focus+ Gold SSR-1000FX
Hér er líka mitt Flickr. Ekki sett mikið þar inn undanfarið þar sem ég í ljósmyndalegu "slumpi" og nenni ekki að mynda eða vinna myndirnar mínar. ...en það kemur aftur.
Hauxon skrifaði:Hér er líka mitt Flickr. Ekki sett mikið þar inn undanfarið þar sem ég í ljósmyndalegu "slumpi" og nenni ekki að mynda eða vinna myndirnar mínar. ...en það kemur aftur.
Margir lunknir ljósmyndarar hér inni enda græjufíkn og ljósmynda(græju)áhugi sama hliðin á sama peningnum...
Verst hvað tímanir bunað breytast og gamla góða ljósmyndakeppni.is datt ut, það spjall var gull þegar það kom að öllu tengdu því
sjálfur hef ég verið i nokkra ára pásu, dustaði rykið af 5Dmk2 í fyrra, fékk mér drona og skellti mér nýlega á Huwaei p30 Pro, það hjálpaði manni fá soldið áhuga aftur
sími með 40megapixla raw myndir, installað lightroom mobile með öll presets sem eg bjó til á PC er smá game changer fyrir mér
AORUS AC300W ATX Gaming Case | Gigabyte B450 AORUS PRO | AMD Ryzen™ 5 3600 | 32GB G.Skill Ripjaws V 3200MHz DDR4 | Gainward GeForce RTX 3080 Phoenix GS |SSD 970 EVO Plus NVMe M.2 250GB | SSD 860 Evo M.2 1TB | HDD 3.5" Seagate 3TB | Seasonic Focus+ Gold SSR-1000FX
Það er missir af gömlu ljosmyndakeppni.is. Það sorglega er að eigandinn lét þessu blæða út með því að sinna þessu ekkert og þiggja hjálp við að halda þessu gangandi. Flest svona spjallborð hafa lifað af tilkomu Facebook þó þau séu kannski ekki eins virk.
Annars veit ég ekki hvers vegna ég er hættur að nenna þessu. Ekki eru það græjurnar, bæði með fínar vél/linsur og myndvinnsluvél. Kannski bara ekki eins spennandi og áður en túristasprengjan sprakk. ..ea bara aumingjaskapur.. hahaha