Ég er búinn að ákveða að uppfæra hjá mér sem verðlaun á 4 ára edrúafmælinu mínu 4 október og jólagjöf saman
Ég ákvað að prófa að fara yfir í amd núna en hef alltaf verið intel maður. Móðurborðið sem ég ákvað að fara í er ASRock X570 Steel Legend https://kisildalur.is/?p=2&id=4051 og svo tek ég örgjörvann AMD Ryzen 9 3950X sennilega í byrjun desember. Það tekur tíma að safna fyrir þessu en verður sko algjörlega þess virði held ég Er eitthvað fleira sem væri sniðugt að safna fyrir eftir þetta ? Ég er með 750w aflgjafa, rtx 2060 kort, m.2 disk og slatta af geymsludiskum. Endilega komið með hugmyndir fyrir mig
Allagvega frá mínum skilning þá er 3950x alveg overkill ef þú ert ekki að streama, spila 2 leiki í einu osfv mæli með að þú sparir smá pening og færð þér bara 3800x sem er alveg öruglega að fara að performa það sama og 3950x nema þú sért undir heavy multitaski, Enn til hamingju með edrú afmælið. Frábært hjá þér!
Ég er búinn að ákveða að uppfæra hjá mér sem verðlaun á 4 ára edrúafmælinu mínu 4 október og jólagjöf saman
Ég ákvað að prófa að fara yfir í amd núna en hef alltaf verið intel maður. Móðurborðið sem ég ákvað að fara í er ASRock X570 Steel Legend https://kisildalur.is/?p=2&id=4051 og svo tek ég örgjörvann AMD Ryzen 9 3950X sennilega í byrjun desember. Það tekur tíma að safna fyrir þessu en verður sko algjörlega þess virði held ég Er eitthvað fleira sem væri sniðugt að safna fyrir eftir þetta ? Ég er með 750w aflgjafa, rtx 2060 kort, m.2 disk og slatta af geymsludiskum. Endilega komið með hugmyndir fyrir mig
Glæsilegt
Innilega til hamingju með 4 árin
Þetta verður massa vél.
Ég var að hugsa um að fara kannski bara í 3900x og taka vatnskælingu og svo 3200 minni. Hvaða vatnskælingar passa á þetta væri flott að fá einhver góð ráð með það.
emil40 skrifaði:Ég var að hugsa um að fara kannski bara í 3900x og taka vatnskælingu og svo 3200 minni. Hvaða vatnskælingar passa á þetta væri flott að fá einhver góð ráð með það.
Flottur 3900x á alveg að höndla rosalegt multi task og álag með leikjaspilun, Ef ég má gefa smá innskot á hvernig þú gætir sparað þér smá pening á kaupinu á 3900x mæli ég með að setja notification á það á amazon, þú ert alveg að fara að spara Vel, meira segja eftir skatt, eina sem er sama virði eftir innfluttnings skatt er 3700x , enn 3900x er á okur verði hérlendis afþví það er erfitt að fá hann svo margir sem vilja hann, Enn samt lítið mál ef þú setur bara notification á honum sjálfur og verður snöggur að gera order þegar það kemur á amazon sem gerist alveg daglega.
Ég er kominn á biðlista eftir 3900x hjá computer.is hann verður á 90þ þar. Ég ætlaði upphaflega í 3950x en ákvað að væri það besta fyrir peninginn. Fæ mér síðan vatnskælingu og 3200 mhz minni seinna. Byrja á að nota 2400 mhz minnið 32 gb.
emil40 skrifaði:Ég er kominn á biðlista eftir 3900x hjá computer.is hann verður á 90þ þar. Ég ætlaði upphaflega í 3950x en ákvað að væri það besta fyrir peninginn. Fæ mér síðan vatnskælingu og 3200 mhz minni seinna. Byrja á að nota 2400 mhz minnið 32 gb.
Veistu hvenær 3900X kemur til þeirra? Hvernig vatnskælingu ætlar þú að fá þér? Er nefnilega í sömu sporum og þú, að ákveða hvernig kælingu og minni mig langar í
Þeir eru ekki með dagsetningu ennþá en hringja í mig þegar þeir eru komnir með dagsetningu
Ég er kominn á biðlista eftir 3900x hjá computer.is hann verður á 90þ þar. Ég ætlaði upphaflega í 3950x en ákvað að væri það besta fyrir peninginn. Fæ mér síðan vatnskælingu og 3200 mhz minni seinna. Byrja á að nota 2400 mhz minnið 32 gb.[/quote]
Veistu hvenær 3900X kemur til þeirra? Hvernig vatnskælingu ætlar þú að fá þér? Er nefnilega í sömu sporum og þú, að ákveða hvernig kælingu og minni mig langar í
Móðurborðið komið í hús og ég pantaði í dag 3900x hjá kísildal þar sem þeir hjá computer.is vissu ekki hvenær þeir fengju hann né hvort að verðið sem þeir eru með á honum núna myndi örugglega standast. Núna er bara að bíða spenntur
emil40 skrifaði:Móðurborðið komið í hús og ég pantaði í dag 3900x hjá kísildal þar sem þeir hjá computer.is vissu ekki hvenær þeir fengju hann né hvort að verðið sem þeir eru með á honum núna myndi örugglega standast. Núna er bara að bíða spenntur
Kísildalur á 1stk á lager (núna kl 10 í morgun alla vegna) þar sem ég var að sækja minn og spurði hve magar þeir ættu eftir þannig að þú getur bara rúllað og sótt hann held ég.
Þú verður sáttur með 3900x, þú ert ekki að fara að fá 1 meira fps einusinni í neinum leik, eða meira segja ef þú ert að spila og streama og horfa á einhvað í sömu tölvunni þá verður það nákvæmlega sama og 3950x, allavegana svo var mér sagt af einum snilling, 3950x er bara að fara að gera betra fyrir einhver vinnu forrit
Þá er ég búinn að ganga frá greiðslunni á 3900x og að sjálfsögðu verslaði ég við KÍSILDAL þar sem ég keypti móðurborðið líka. Hann er uppseldur í augnablikinu en ég reiknaði líka með því þar sem ég gat ekki klárað málið fyrir mánaðarmótin. Hlakka bara mikið til þess að byrja að nota hann þegar hann kemur á klakann aftur. Það er móttó hjá mér að staðgreiða allt nenni engu veseni. Ég geri það jafnvel þótt að ég þurfi að bíða aðeins lengur eftir hlutunum
Jæja ég er loksins kominn með 3900x örrann í hendurnar. Núna á bara eftir að setja þetta saman, leyfi ykkur að fylgjast með hvernig þetta verður allt saman