Ábyrgð á raftækjum á íslandi

Allt utan efnis
Skjámynd

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 3981
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Staða: Ótengdur

Re: Ábyrgð á raftækjum á íslandi

Póstur af Klemmi »

arnarj skrifaði: Lögfræðingurinn benti mér á eins og ég er að gera að það er rangt að nota orðalagið úrskurður eins og þú gerir hér eins og í fyrri pósti, seljandi er ekki á neinn hátt skyldugur að fara eftir ÁLITI nefndarinnar.
Það er örugglega rétt hjá þér að úrskurður sé ekki rétta orðalagið, þó svo að nefndin sé flokkuð sem úrskurðarnefnd hjá Stjórnarráðinu :)

Ritgerðin sem frappsi bendir á er mjög áhugaverð, og maður spyr sig hvort það væri ekki ráð að gera niðurstöður nefndarinnar bindandi, þá allavega fyrir ágreininga upp að einhverri X krónutölu, s.s. 500þús.
www.laptop.is
www.ferdaleit.is

kjarnorkudori
Nörd
Póstar: 126
Skráði sig: Fim 09. Nóv 2006 22:14
Staða: Ótengdur

Re: Ábyrgð á raftækjum á íslandi

Póstur af kjarnorkudori »

Sallarólegur skrifaði:
GuðjónR skrifaði: Til dæmis hvernig bílaumboðin haga sér, bjóða 2-3-7 ára ábyrgð, en gegn hverju? Að þú komir með bílinn á hverju einasta ári í rándýrar skoðanir og allt sem hugsanlega er að bila eða er orðið slitið er lagað á þinn kostnað. Þegar upp er staðið þá ertu kannski búinn að borga hálfa milljón í eitthvað skoðunarkjaftæði til að viðhalda einhverri ímyndaðir ábyrgð sem er svo engin ábyrgð. Þetta ætti að banna.
Þessi svokallaða "ábyrgð" er einmitt eitt mesta peningaplokk sem íslenskir neytendur eru plataðir út í. Oft á tíðum kosta þessar árlegu "skoðanir" þeirra 50-100 þ. í hvert skipti.

Eitthvað sem venjulegt verkstæði rukkar 20-30 kall fyrir.

Bílar falla svo sannarlega undir þessa 5 ára reglu hvort sem er.
Fór í eins árs skoðun með minn Hyundai í desember. Kostaði rétt undir 20k og þeir smurðu hann ásamt því að skipta um loftsíu. Þeir skutluðu mér líka þangað sem ég þurfti að fara. Get ekki kvartað.
Svara