Mjög óskýr mynd, en það lítur út fyrir að það séu allavega 9 beyglaðir pinnar þarna,en á meðan þeir eru ekki brotnir þá er möguleiki á að beygja þá til baka. En myndi byrja á að hafa samband við þann sem seldi þér borðið.
Akúrat það sé mer sýndist. Buinn að vera i iþessu i 20ár en vildi fá staðfestingu. fyrsta skipti sem ég lendi í að fá ónýtan hlut herna á vaktinni i viðskiptum.
GPU: Asus Turbo 2080 ti - GA z590 gaming X - Intel Core i7 11700k - Corsair Rm750x - Noctua-U12S - iCUE 465X RGB Mid-Tower- AORUS RGB Memory DDR4 16GB x4 3733MHz - Samsung 970 EVO 1TB M.2 2280 SSD - Win 10 Pro 64bit - ASUS ROG Swift Curved PG348Q @ 100mhz
Ég átti eitt sinn 1151 móðurborð, ég lenti í því að ég var að þrífa með tusku í kassanum og missti hana síðan óvart ofan í kassann og örrinn ekki í socektinu, fibre tuska (yay). Tók hana rólega og náði að beygla fullt af pinnum, geggjað! En allavega, ég náði að smala allri þolinmæði saman og rétti pinnana við, tölvan runnar enn og engin vandræði. En þetta sýnist mér allavega vera ónýtt m.v það eru nú ekki einu sinni pinnar á sumum stöðum.
mér finnst þetta bara vera brenndir pinnar.. athugaðu nú hvort hann vilji ekki endurgreiða þér þetta sá sem seldi þér þetta. lágmark að selja hluti hérna í góðu lagi. sammála þér þarna samt. hef ekki einu sinni fengið keypt skemmdan hlut á vaktinni. maður selur ekkert sem er "kannski" í lagi. hafa þetta bara heiðarlegt. vertu ekki að setja örgjörva og reyna keyra þetta upp.. gætir bara skemmt örgjörvan ef eitthvað er að leiða saman þarna.
Vaktin hefur gott orð á sér fyrir góða viðskiptahætti. fáðu þetta bara endurgreitt og finndu annað borð.. svona áður en eitthvað annað skemmist útfrá þessu. en það er bara mitt álit.. getur kannski rétt úr pinnunum, en þú átt ekkert að þurfa gera það. átt bara að fá það sem varst að borga fyrir
Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.
Ef þeir eru beyglaðir en enn til staðar, þá má með lagni og heppni rétta pinnana. Heppni segi ég, því það fer eftir því hversu mikið þeir hafa beyglast hvort að þeir brotni við það að rétta þá.
Ég myndi allavega heyra í seljanda áður en þú ferð út í einhverjar æfingar, spyrja hvort hann vilji að þú reynir að rétta pinnana en þá alfarið á hans ábyrgð. Ef það takist ekki, þá fá að fullu endurgreitt, annars spurning ef þér tekst að laga þá, hvort það sé við hæfi að biðja um hlutaendurgreiðslu/afslátt af kaupvirði vegna vesensins.