Núna er nb viftan hjá mér farin að láta eitthvað illa. Hún semsagt hægir á sér reglulega úr 6000 rpm í u.þ.b. 5000 rpm og þá fara að heyrast HRÆÐILEG læti í henni, svona einhvernveginn borvélahljóð eða eitthvað
Ég var ekkert mikið að pæla í þessu því þetta gerðist svo sjáldan en núna er þetta að gerast með svona 2 mín. millibili og ég er að verða gjörsamlega geðveikur
svona lítur línuritið úr abit EQ út sem sýnir hvernig hraðinn hækkar og lækkar
eruði með einhver góð ráð? (fyrir utan það að skipta um viftu )
Mysingur skrifaði:ætli ég verði þá ekki að gera það ef það finnst engin önnur lausn
en ætti þetta ekki að vera alveg nóg kæling? þarf ég enga viftu með þessu?
Ef það er chipset sem Þú ert að tala um þá þarftu enga viftu fyrir þetta
Manager1 skrifaði:Skjákortsviftan mín lét einusinni svona, ég skipti mér ekkert af þessu fyrr en ég hætti að geta sofnað fyrir látunum, þá kippti ég henni úr sambandi
Ég þori því eignlega ekki... allavega ekki með stock heatsinkinu
en vitiði hvort það er einhvernveginn hægt að sjá hitann á kubbasettinu á ai7?
Ég er með Abit AN7 móðurborð og viftan var alltaf með mikinn hávaða hjá mér þannig að ég fékk mér svona Zalman heatsink eins og einhverjir eru búnir að mæla með hérna, virkar mjög vel
Mysingur skrifaði:ætli ég verði þá ekki að gera það ef það finnst engin önnur lausn
en ætti þetta ekki að vera alveg nóg kæling? þarf ég enga viftu með þessu?
Zalman NB heatsink er fínt, eina vesenið við að setja það á og sem ég var ekki varaður við þegar ég keypti svona (þeir sögðu bara að þetta væri ekkert mál, tæki innann við 30 mín.. sem var reyndar rétt) var að það þarf að losa móðurborðið til að ná gamla draslinu af.