Innflutningur á skotvopnum

Allt utan efnis
Svara

Höfundur
ivar85
Græningi
Póstar: 27
Skráði sig: Fös 30. Jún 2017 10:27
Staða: Ótengdur

Innflutningur á skotvopnum

Póstur af ivar85 »

Sæl / ir
Þar sem ég veit ekki hvert ég á að leita, og flest allar gáfupöddur landsinns halda sig hér þá langaði mig að spyrja ykkur sem eru með byssuleyfi hvort þið hafið flutt inn byssu / r ?

Vitið þið um einhverja búðir sem senda vopn til landsinns ?
Eru aukagjöld við því að koma vopnum úr landi (að utan) ?
Borgar það sig að flytja inn vopn frekar en að kaupa það hér á landi ?
Skjámynd

bixer
</Snillingur>
Póstar: 1022
Skráði sig: Lau 14. Nóv 2009 14:38
Staðsetning: 101
Staða: Ótengdur

Re: Innflutningur á skotvopnum

Póstur af bixer »

Mér skilst að það borgi sig ekki að standa í þessu en getur mögulega tekið með þér byssu ef þú ert að ferðast. Nema frá bandaríkjunum þar sem þú þyrftir þá útflutningsleyfi. Þú þarft samt að sækja um leyfi fyrir innflutningnum hérna, ég myndi bara tala við Jónas hjá leyfadeildinni til að fá þetta 100%

Einhverjar byssubúðir buðu uppá sérpantanir en hættu því útaf flækjustigi og kostnaði. Ef þú ert ekki að leita að einhverju sérstöku þá myndi ég sleppa þessu. En svo eru oftast útsölur í janúar-febrúar, annars munar oft miklu á verðum á sama hlut milli byssubúða.

að hverju ertu að leita?
Skjámynd

Klaufi
Stjórnandi
Póstar: 2334
Skráði sig: Mán 28. Des 2009 04:44
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Innflutningur á skotvopnum

Póstur af Klaufi »

Talaðu við Jónas, það eru bestu svörin sem þú færð.
Stærsta vandamálið (Af minni reynslu) er að pappírarnir hér eru á Íslensku.

Varðandi útflutningsleyfið frá Bandaríkjunum, ég þurfti það líka þegar ég keypti riffil frá Danmörku, og fyrri eigandi þurfti að fá það stimplað úti, á vellinum og svo af Jónasi þegar við gerðum skiptin.
Og ég þurfti að vera búinn að sækja um að eignast riffilinn hér heima áður en hann mátti fara út úr landinu.

Ég myndi ekki standa í þessu nema þú sért að leita að einhverju sérstöku, alls ekki til að reyna að spara þúsundkalla.

P.s. "Skotveiðibúnaður til sölu/óskast" á FB.
Það koma reglulega póstar frá enskumælandi aðila(man ekki nafnið á honum) sem er að flytja inn sérvöru.
Mynd
Svara