Herman Miller sendan til Íslands? Aðrir ergonomic stólar sem þið mælið með?

Allt utan efnis
Svara

Höfundur
Runar
Ofur-Nörd
Póstar: 266
Skráði sig: Fös 27. Jún 2003 19:31
Staða: Ótengdur

Herman Miller sendan til Íslands? Aðrir ergonomic stólar sem þið mælið með?

Póstur af Runar »

Sælir!

Veit einhver um stað sem ég get pantað Herman Miller stól og fengið hann sendan til Íslands?

Búinn að skoða hjá Amazon US og Uk, svo einhverjar aðrar breskar búðir. Heimasíða Herman Miller bendir á Pennann, en að borga 312k (Aeron Remastered) og 373k (Embody) fyrir stóla sem kosta úti svona $1200-1600 er frekar mikil álagning, þótt það yrði 100k í sendingarkostnað og VSK!

Annars, er að leita af góðum stól sem er góður fyrir bakið, er alltaf að drepast í mjóbakinu eftir að hafa setið í einhvern tíma, einhverjir aðrir stólar sem þið mynduð mæla með?

Höfundur
Runar
Ofur-Nörd
Póstar: 266
Skráði sig: Fös 27. Jún 2003 19:31
Staða: Ótengdur

Re: Herman Miller sendan til Íslands? Aðrir ergonomic stólar sem þið mælið með?

Póstur af Runar »

Og já, einhver sem hefur persónulega reynslu af Aeron og Embody stólunum frá Herman Miller? Þá sérstaklega uppá sársauka í mjóbakið eftir lengri tíma í þeim.
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 5917
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Herman Miller sendan til Íslands? Aðrir ergonomic stólar sem þið mælið með?

Póstur af rapport »

Man að Kostur var að selja þá og þá frá Costco

Þetta er eitt af því fáa sem ég hef verið að vonast til að sjá ódýrt í Costco hér heima

Nú er flokkurinn bara tómur...

https://www.costco.com/herman-miller-office-chairs.html
Skjámynd

valdij
Ofur-Nörd
Póstar: 295
Skráði sig: Fim 03. Sep 2009 15:31
Staða: Ótengdur

Re: Herman Miller sendan til Íslands? Aðrir ergonomic stólar sem þið mælið með?

Póstur af valdij »

Var í svipuðum pælingum fyrir ekki svo löngu, m.a. útaf slæmu baki. Fann engan stað sem gat sent þessa stóla til Íslands án þess að það væri óheyrilegt vesen.

Eftir að hafa lesið verulega mikið um stóla í þessum kalíber þá voru Steelcase stólarnir að koma mjög vel út, þá sérstaklega Steelcase Gesture. Miðað við verð átti hann að vera litlu síðri en Herman Miller stólarnir. Athuga að Aeron stóllinn fær mjög misjafna dóma fyrir fólk með slæmt bak, Embody stóllinn á að vera töluvert betri þar.

Ég fór í InnX sem hefur umboðið með þessum Steelcase stólum á Íslandi virðist vera, og endaði á að kaupa mér Gesture eftir að hafa prófað hann. Hann er með verulega öflugan (og færanlegan) mjóbaksstuðning sem var m.a. einn af stóru plúsunum. Verðið á honum er líka töluvert betra en á Herman Miller stólunum.

Mæli með að prófa hann ef þú ert að leita að "alvöru" stól.

frappsi
Nörd
Póstar: 141
Skráði sig: Lau 08. Jún 2013 16:11
Staða: Ótengdur

Re: Herman Miller sendan til Íslands? Aðrir ergonomic stólar sem þið mælið með?

Póstur af frappsi »

Ég pantaði Embody af Amazon (OfficeDesigns búðin) og lét senda í gegnum MyUS. Komið 1,5 ár síðan minnir mig en það gekk allt eins og smurt og kom vel út. Var að panta ýmislegt annað smálegt (stóllinn var stærsti hluturinn) og mig minnir að ég hafi borgað um 180k fyrir stólinn með dýrasta áklæðinu (minnir að Penninn sé ekki með það?) og öllum gjöldum eftir að hafa skipt sendingarkostnaði niður á hluti. Skoðaði líka Aeron en leist mun betur á Embody. Ég skoðaði líka Steelcase en fór ekki langt með það.

Gamechanger að fá alvöru stól í staðinn fyrir draslið sem ég hafði notað fram að því og fann strax fyrir miklum mun. Fyrir fólk sem situr mikið er vel þess virði að fjárfesta í alvöru grip sem endist og ég sé ekki eftir stakri krónu. Ég hefði reyndar ekki borgað 370 fyrir stólinn. Hefði frekar skoðað Steelcase (sem hafa verið að koma vel út eins og valdij minntist á) betur ef innflutningur hefði ekki verið í boði.

N.B. ég lét MyUS opna kassann sem stóllinn kom í og ljósmynda allt í bak og fyrir til að ganga úr skugga um að allt væri óskemmt og eins og það átti að vera.

Höfundur
Runar
Ofur-Nörd
Póstar: 266
Skráði sig: Fös 27. Jún 2003 19:31
Staða: Ótengdur

Re: Herman Miller sendan til Íslands? Aðrir ergonomic stólar sem þið mælið með?

Póstur af Runar »

Valdij:
Hljómar mjög vel, kíki á InnX til að prófa slíkan! Og já, sá einmitt svipað um Aeron með bak vesen, að Emobdy væri hentugri. Takk fyrir ábendingarnar!

Frappsi:
Ok, þarf að kíkja á þetta MyUS þá aðeins. Einhverjir aðrir með reynslu af slíkum síðum?
Skjámynd

Moldvarpan
Of mikill frítími
Póstar: 1722
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Staða: Ótengdur

Re: Herman Miller sendan til Íslands? Aðrir ergonomic stólar sem þið mælið með?

Póstur af Moldvarpan »

Mynd

Mjög góður stóll, fékk einn svona á 28k í costco.

olihar
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 385
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Staða: Ótengdur

Re: Herman Miller sendan til Íslands? Aðrir ergonomic stólar sem þið mælið með?

Póstur af olihar »

Ég fór í Pennann um daginn að hugsa um að uppfæra minn Herman Miller Areon, reyna að fá eitthvað betra verð en þetta absúra verð sem er í gangi, ég nefni þar Bandaríkin á nafn og tala um verðið þar og afhverju það muni svona miklu. Starfsmaður Pennanns sagði þá að stólarnir í USA væru drasl og þeir væru með mikið betri stóla frá Evrópu.

Ég hef allavegana ekki ennþá keypt þennan í Pennannum, tja þó svo hann eigi að vera svona margfallt betri. Fæ að fylgjast með USA ferlinu hérna.
Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1104
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Staða: Ótengdur

Re: Herman Miller sendan til Íslands? Aðrir ergonomic stólar sem þið mælið með?

Póstur af Njall_L »

Ég keypti minn Herman Miller Mirra II í Pennanum fyrir tæpum þrem árum. Þegar ég labbaði inn um hurðina var sölukonan búinn að bjóða mér afslátt, endaði á því að versla stólinn þar á mjög sanngjörnu verði.
Aðaltölva: Dell Latitude 7480 | i7-7600u | 32GB DDR4 | 1TB SSD | 14"IPS
In-house streaming tölva: Ryzen 5600X | Gigabyte B550I Aorus Pro AX | 32GB 3600MHz | 1TB Samsung 980 Pro PCIe 4.0 | GTX960
Löglegt WinRAR leyfi

Höfundur
Runar
Ofur-Nörd
Póstar: 266
Skráði sig: Fös 27. Jún 2003 19:31
Staða: Ótengdur

Re: Herman Miller sendan til Íslands? Aðrir ergonomic stólar sem þið mælið með?

Póstur af Runar »

Fyrir þann sem vildi fylgjast með.. uppá hvort ég næði að panta að utan.. þá er ég ekki búinn að skoða það ennþá.

Prófaði stól sem heitir Capisco (https://www.skrifstofa.is/stolar/vinnus ... pisco-8106), svona hnakka stóll. Hann var mjög þæginlegur uppá bakið, neyðir þig til að sitja réttan, og meira svona fyrir standandi borð, því þú ert sitjandi hátt uppi og með lappirnar meira í svona 45° beygju í stað 90° eins og á venjulegum stólum. Hann er ætlaður til að skipta um stöðu reglulega.. hægt að sitja á honum á hlið og svo afturábak, sem sagt liggjandi á bakinu á stólnum sjálfum. Örugglega ótrúlega góður í vinnu.. en ég var að nota hann heima.. svo ég var að nota þetta í leiki og stundum til að glápa á video.. fannst ég ekki geta slakað á í honum.. sem sagt hallað mér aftur og tjillað.. svo hann hentaði mér ekki.. því miður. En ef einhver ætlar að prófa hann.. þá vill ég vara við eitt.. ef þú hefur ekki hjólað í mörg ár.. þá á þér eftir að vera illt í svæðinu milli púngsins og rassins (rassisins?) í svona 2-3 daga :P

En ég fékk einkaskilaboð frá einum sem var með nýjan Herman Miller Aeron Remastered fyrir mig.. sem hann fékk að utan einmitt og þá á góðu verði fyrir mig.. er að nota hann núna (keypti þennan Capisco með skilyrði að ég gæti skilað honum eftir viku ef hann hentaði mér ekki).. sótti hann bara í gær kvöldi og ekki komin nein reynsla ennþá að viti til að segja eitthvað um hann.

Læt vita ef hann hentar mér ekki og ég fer í annan.. yrði þá þessi Steelcase Gesture sem Valdij mældi með.. og eftir það Herman Miller Embody stóllinn. Kemur í ljós!
Svara