Var að kaupa þennan glæsilega Honda Accord 2006 og það er smá reykingalykt inni í honum.
Vantar að láta djúphreinsa teppi, sæti og loft. Ekki verra ef það væri um helgina.
Hver getur bent mér á góða aðila?
Er alveg til í að greiða vel fyrir gott verk.
Djúphreinsun á heilan bíl
-
Höfundur - Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Djúphreinsun á heilan bíl
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller

- Kóngur
- Póstar: 4139
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Djúphreinsun á heilan bíl
Ég gæti tekið þetta að mér eftir helgi. Skalt passa uppá að sá aðili sem þú ferð til djúphreinsi ekki loftið. Getur það skemmt klæðninguna þar sem hún er oft fest með lími og getur farið öll í klessu þegar mikið vatn er notað. Það getur oft verið smá verkefni að ná reykingarlykt almennilega úr bílum þar sem hún laumast í allt saman.
Svo ég mæli með að djúphreinsa sæti og gólf. Lofta vel úr bílnum og skipta um frjókornasíu í miðstöðinni þar sem hún gæti hafa drukkið í sig reykingarlykt.

massabon.is
Re: Djúphreinsun á heilan bíl
Keypti mér BMW sem var með smá reykingarlykt. Hreinsaði teppið, þreif leðrið og setti svo þennan djöful í gang í bílnum með miðstöðina í botni. Fór allveg.
-
Höfundur - Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Djúphreinsun á heilan bíl
Takk fyrir svörin, tek síuna í gegn. Það var ein bónstöð sem hafði samband og ég ætla að byrja á þeirri djúphreinsun á eftir.
Hvar fæ ég svona græju?PikNik skrifaði:Keypti mér BMW sem var með smá reykingarlykt. Hreinsaði teppið, þreif leðrið og setti svo þennan djöful í gang í bílnum með miðstöðina í botni. Fór allveg.
[img]Meguiar's%20Air%20Freshener[/img]
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Re: Djúphreinsun á heilan bíl
Færð þetta í Málningarvörum og Toyota Kauptúni.Sallarólegur skrifaði:Takk fyrir svörin, tek síuna í gegn. Það var ein bónstöð sem hafði samband og ég ætla að byrja á þeirri djúphreinsun á eftir.