Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
-
Höfundur - has spoken...
- Póstar: 150
- Skráði sig: Sun 29. Sep 2002 00:19
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
Sælir vaktarar.
Þannig er mál með vexti að fyrir ca. sólarhring síðan þá datt út hljóðið úr Amino A140 afruglara (Vodafone) sem ég er með tengdan við Samsung Smart TV (UE55MU6175, Tizen Os).
Hefur virkað fullkomnlega þar til í gær, fór í dag og skipti um afruglara en það er sama vesenið, ekkert hljóð. Myndin fín.
Afruglarinn er tengdur í ljósleiðara (Gagnaveita Reykjavíkur) og með HDMI í sjónvarpið, búinn að prufa öll HDMI tengi sem eru í boði á sjónvarpinu, skipta um HDMI snúru, endurnýja LAN-kapalinn, tengja önnur tæki við HDMI 1 sem ég hef verið að nota við afruglarann og það svínvirkar allt, sem sagt allt efni sem ég spila í TV virkar, hvort sem mynd og hljóð kemur að innan (efni spilað úr IPTV, USB, þurfti að nota vafrann í TV svo það væri hægt að ná Eurovision t.d.) eða utan (BLURAY) nema blessaði afruglarinn, þar virkar bara mynd.
Á eftir að fara aftur á morgun og skipta einu sinni enn um afruglara, en datt í hug hvort einhver hafi lent í sama og ef svo er, hvernig vandamálið var leyst?

Q: Why can' t you get a cup of tea at Old Trafford?
A: All the mugs are on the field and all the cups are at Anfield.
A: All the mugs are on the field and all the cups are at Anfield.
Re: Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
Ég lenti í svipuðu eftir að ég skipti um HDMI snúru, setti 7.5 metra high speed 18Gbps snúru í staðinn fyrir HDBaseT extender sem var með signal drop vandamál. Við þetta missti ég einmitt hljóðið via HDMI í Amino A140 afruglara en myndin virkaði vel og öll önnur source virkuðu vel, bæði hljóð og mynd. Ég fann bara ekkert útúr því, endaði á að tengja optical snúru úr afruglaranum í magnarann og fæ hljóðið þannig.
Þessir Amino afruglarar eru alveg skelfilegir. Hægvirkir og óstöðugir. Svo hitnar þetta drasl eins og eldavélahella. Ótrúlegt að Vodafone sé enn að bjóða uppá þennan búnað óbreyttan frá því IPTV sjónvarpsdreifingin hófst hjá þeim fyrir, hvað, 10 árum?
Get ekki beðið eftir nýja Samsung afruglaranum sem er víst "alveg að koma".

- /dev/null
- Póstar: 1385
- Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
Lenti í þessu um daginn. Þetta lagaðist eftir að ég breytti hljóðstillingum í afruglaranum. Fór úr Dolby í PCM eða eitthvað álíka (er ekki heima, get ekki skoðað). Það voru 2 valmöguleikar hjá mér. Valdi það sem ekki var Dolby og hljóðið hrökk í gang eftir restart.
Worth a shot.
Worth a shot.
7700K | Maximus IX Hero | 32GB | 1TB 960 Pro m.2 | GTX 1080 Ti | Corsair AX1200i | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
Mesta rusl sem hefur komið út á Íslandi.
Fáránlegt að enginn sjái leik á borði og bjóði upp á samkeppni í þessum málum, IPTV á ljósi.
Þetta hljómar samt eins og vefstraumurinn sem þú færð sé hljóðlaus, miðað við að það sé búið að skipta öllu út.

Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller

- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
Gæti verið að sjónvarpið sé stillt á deep-color eða eitthvað sambærilegt?
Ef ég stilli LG sjónvarpið mitt á deep color þá dettur hljóðið út nema ég noti optical þráð með Amino.
Ef ég stilli LG sjónvarpið mitt á deep color þá dettur hljóðið út nema ég noti optical þráð með Amino.
Re: Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
Ég lenti lika í þessu með gamla samsung sjónvarpið , var með deep color (eða hvað það heitir í samsung) á On á viðkomandi HDMI útgangi , slökkti á þvi og hljóðið virkaði strax.GuðjónR skrifaði:Gæti verið að sjónvarpið sé stillt á deep-color eða eitthvað sambærilegt?
Ef ég stilli LG sjónvarpið mitt á deep color þá dettur hljóðið út nema ég noti optical þráð með Amino.
-
Höfundur - has spoken...
- Póstar: 150
- Skráði sig: Sun 29. Sep 2002 00:19
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
Þetta hafðist, var UHD stillingaratriði í þessari týpu af sjónvarpi, um leið og ég afvirkjaði það af HDMI 1 þá kom hljóðið um leið.
Kærar þakkir fyrir þetta input.
Kærar þakkir fyrir þetta input.
Q: Why can' t you get a cup of tea at Old Trafford?
A: All the mugs are on the field and all the cups are at Anfield.
A: All the mugs are on the field and all the cups are at Anfield.
Re: Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
Sallarólegur skrifaði:Mesta rusl sem hefur komið út á Íslandi.
Fáránlegt að enginn sjái leik á borði og bjóði upp á samkeppni í þessum málum, IPTV á ljósi.
eða bara alvöru IPTV, sem er ekki fast við einhvern ISP og getur virkað í algengum boxum (mag og android td) og smartTV
klárlega gott tækifæri, þessi fákeppnisstaða er óþolandi
Re: Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
"Nýr" Samsung myndlykill átti að koma í nóvember 2017, ekkert að gerast í maí 2018.
https://vodafone.is/vodafone/fjolmidlat ... d-i-haust/
https://vodafone.is/vodafone/fjolmidlat ... d-i-haust/
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
Alveg epic, maður kaupir sér 65" UHD OLED sjónvarp og uppfærir AppleTV í 4K lætur svo sérpanta fyrir sig rándýra 48Gbps UltraHD HDMI kapla sem styðja 4K@60Hz, 4:4:4 chroma, and Deep Color en svo lendir maður í því að þurfa að slökkva á öllu sem heitir UHD og notast við HD/SD af því að veiki linkurinn í keðjunni er einhver fornaldar IPTV (Amino 140) kassi frá Vodafone sem styður ekki nútímann.Le Drum skrifaði:Þetta hafðist, var UHD stillingaratriði í þessari týpu af sjónvarpi, um leið og ég afvirkjaði það af HDMI 1 þá kom hljóðið um leið.
Kærar þakkir fyrir þetta input.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
Vodafone eru að bíða eftir því að þessi lykill verði úreldur, þá fá þeir hann með afslætti og ljúga síðan að þér að þetta sé það nýjasta og flottasta.Starman skrifaði:"Nýr" Samsung myndlykill átti að koma í nóvember 2017, ekkert að gerast í maí 2018.
https://vodafone.is/vodafone/fjolmidlat ... d-i-haust/
-
- FanBoy
- Póstar: 733
- Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
- Staðsetning: Hvammstangi
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
Ef þú ert að kaupa HDMI kapla dýru verði þá er verið að svindla á þér. Það er tengið í búnaðinum sem skiptir máli og ódýr kapall og dýr kapall gera nákvæmlega það sama. Ef þú ert með HDMI v2.0 þá virkar allt hjá þér fram að þeirri útgáfu. Miðað við að HDMI v2.1 kom eingöngu út árið 2017 og allur búnaður þangað til var með HDMI 2.0 (4K UHD sjónvörp). Ástæðan fyrir því afhverju kapalinn skiptir ekki máli í HDMi er að merkið sem fer um kapalinn er stafrænt (TMDS mótun)GuðjónR skrifaði:Alveg epic, maður kaupir sér 65" UHD OLED sjónvarp og uppfærir AppleTV í 4K lætur svo sérpanta fyrir sig rándýra 48Gbps UltraHD HDMI kapla sem styðja 4K@60Hz, 4:4:4 chroma, and Deep Color en svo lendir maður í því að þurfa að slökkva á öllu sem heitir UHD og notast við HD/SD af því að veiki linkurinn í keðjunni er einhver fornaldar IPTV (Amino 140) kassi frá Vodafone sem styður ekki nútímann.Le Drum skrifaði:Þetta hafðist, var UHD stillingaratriði í þessari týpu af sjónvarpi, um leið og ég afvirkjaði það af HDMI 1 þá kom hljóðið um leið.
Kærar þakkir fyrir þetta input.
Það sem væntanlega vandamálið með þessa afruglara er að þeir eru að keyra svo gamla útgáfu af HDMI að það er orðið vandamál. Væntanlega er verið að nota HDMI 1.3a til 1.4a-b í þessum afruglum.
Þú getur síðan keypt hdmi kapla ódýrt af Amazon US og fengið sent til Íslands. Þeir dýrustu kosta $30 (án tolla og vsk). Óþarfi að láta sérpanta fyrir sig. Tími fyrir slíkt er liðinn á Íslandi.
-
- Tölvutryllir
- Póstar: 632
- Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
- Staðsetning: Terran Empire
- Staða: Ótengdur
Re: Ekkert hljóð úr Amino 140 afruglara
Æjj fyrir mitt leiti og reynslu þegar kemur að IPTV og Samsung þá eru Samsung með skítin í buxunum og miklu meira en það. Miðað við það semég hef upplifað hjá þeim þá kæmi mér ekkert á óvart að Vodafone sé að kanna betur stöðu sína í þessum efnum.
Annar punktur, það er búin að vera samruna-ferli í gangi hjá Vodafone og 365 síðan þessi tilkynning kom og hefur sú vinna alveg örugglega haft einhver áhrif, hvort það sé gild afsökun er annað mál og vísa ég því í upphafspunktin í innleggi mínu frekar