Sælir,
Er einhver hérna sem vinnur sem kranastjóri á turn krönum, hefur unnið sem kranastjóri?
Hef verið tækjamaður hjá ákveðnu fyrirtæki síðan í september og er aðalega á Manitou skotbómulyftara og eitthvað á litlum fjarstýrðum krönum en nú vantar kranamenn og ég á að fara klifra uppí 60m háan turn krana og vera þar i 10-12 klst á dag og er ekki alveg tilbúinn í það á mínu núverandi tímakauði svo mig langar að forvitnast um tímakaup hjá kranastjórum, ef einhverjir íslendingar vinna við þetta ennþá haha
(veit ekkert hvar annarstaðar ég ætti að spyrja, fjölbreyttur hópur hér á vaktinni :þ)
Ein spurning, hvað er vinnuveitandi að bjóða þér í dag og hvað ætlar hann að bjóða þér aukalega fyrir að hanga þarna uppi?
Það þarf auðvitað að sækja sér krana-réttindi sem ætti að gefa þér aukatekjur þegar þú ert í krana-vinnu.
Ef ég man rétt þegar ég var í byggingavinnu þá var sá sem var uppí krana á venjulegum launum og svo kom eitthvað sem hér krana-álag ofan á þau.
russi skrifaði:Ein spurning, hvað er vinnuveitandi að bjóða þér í dag og hvað ætlar hann að bjóða þér aukalega fyrir að hanga þarna uppi?
Það þarf auðvitað að sækja sér krana-réttindi sem ætti að gefa þér aukatekjur þegar þú ert í krana-vinnu.
Ef ég man rétt þegar ég var í byggingavinnu þá var sá sem var uppí krana á venjulegum launum og svo kom eitthvað sem hér krana-álag ofan á þau.
ég er með 2800 sem tækjamaður eins og er, en hef ekkert nefnt það við yfirmanninn ennþá varðandi launa hækkun. 2800 er svosem fínt fyrir enga menntun fyrir utan nokkra daga námskeið og nokkur þúsund klst á tækjum en að vera uppí krana 10-12 tíma á dag tekur á andlega og það er mjög ábyrgðar mikið starf svo mér finnst ekki sanngjarnt að vera taka meiri ábyrgð á sömu launum. en spurning hvernig vinnuveitandinn tekur því ef maður biður um launahækkun í 3000-3200kr á tíman, erfitt að gera eitthverjar kröfur þegar maður veit ekki alveg hvað aðrir kranamenn eru að fá á tíman.
hef heyrt um þetta svo kallaða áhættuálag að mig minnir að það heiti en held að flestir séu ekkert að borga það þó ég hafi ekki hugmynd.
Þetta heitir liklegast hæðaralag, mig minnir að ef maður er að vinna i meira en 5m hæð leggist ca 20% ofan a timakaupið.
En það fer upvitað allt eftir þvi hvað kjarasamningarnir þinir segja til um þetta. Talaðu bara beint við verkaliðsfelagið þitt.
Ég vann á byggingarkrönum í denn, fyrst hjá SS byggir á Akureyri svo hjá Hagvirki síðar Hagvirki Klettur. Launin voru "crap", bara strípuð verkamannalaun sem voru réttlætt af atvinnurekanda einhvernvegin þannig að þetta væri "þægilegri" vinna en að vera úti í kuldanum.
Var á tímabili á næst stærsta krana landsins í bílastæðahúsinu neðarlega á Hverfisgötu (á móti Þjóðleikhúsinu) og síðan á stórhættulegum pinnakrana í Tónlistarhúsinu í Hafnarfirði.
Ég man sérstaklega eftir einu atviki, við vorum að steypa plötuna í tónlistarhúsinu en hún var risastór og kringlótt, tveimur pinnakrönum var stillt upp á móti hvor öðrum, báðir á járnbrautarteinum og plötunni skipt í tvennt. Við vorum með sitthvort múraragengið og steypubílar biðu í röðum enda tóku sílóin 1m3 og því bara 6 hífur að tæma bílinn. Keppnisskapið kom upp í mér og ég hífði eins og ég ætti lífið að leysa. Þegar ég var búinn með minn helming af plötunni þá átti hinn kranamaðurinn og hans gengi ennþá eftir 1.5 - 2 klukkustunda vinnu!
Þar sem ég mátti fara heim eftir steypuna þá spurði ég verkstjórann hvort ég mætti ekki skrifa jafn marga tíma og hinn kranamaðurinn (sem augljóslega var bara að chilla) en verkstjórinn sagði nei, þrátt fyrir að ég hefði rök fyrir því að ósanngjart væri að hinn fengi meiri laun fyrir að vinna hægar og tefja heilt múraragengi með í leiðinni. Svörin sem ég fékk voru eitthvað á þá leið af ef til niðurskurðar kæmi þá fengi ég áframhaldandi vinnu en hinn ekki.
Viku síðar hætti ég þarna og hef ekki stigið fæti upp í byggingarkrana síðan!
p.s. þrem vikum síðar fór Hagvirki Klettur á hausinn.