
þetta er tölvan https://www.epli.is/mac/imac-2017/imac- ... d2017.html
kv
vil geta unnið myndir baæði heima hjá mér og í stúdíóinu mínu, og þarf því að fá mér aðra tölvu, er bara með pc heima, fékk mér imac til að vera með í stúdíóinuSolidFeather skrifaði:Afhverju ertu að flakka á milli véla? Hvernig er vinnuferlið þitt?
humm ok svo ég spurji nú eins og bjáni haha hvernig virkar það, er tölvan þá bara algjörlega eins og pc tölva í einu og öllu eða ? vá það væri auðvitað masta snilldin, það er að segja ef maður er ekki að lenda í veseni með það :/Mossi__ skrifaði:Heyrðu.
'Eg kommentaði aldrei á hinn þráðinn þinn, en ég var að fylgjast með honum.
Sko, þú gætir sett upp Windows á Makkanum. Það gengur hnökralaust fyrir sig.
Mun mun mun frekar en að skilja við þessa. Þetta eru svakalega góðar vélar og góð kaup sem munu endast þér lengi.
Svona windows skjátölvur hafa ekki tærnar þarsem Makkinn hefur hælana m.t.t. til vélbúnaðar og endinu, hvað þá skjásins.
en verð ég þá ekki með hægari tölvu fyrir vikið ?Mossi__ skrifaði:Gekk hnökralaust fyrir sig þegar ég gerði þetta við minn makka.
Það var samt fyrir alveg 12 árum![]()
Ættir ekki að lenda í veseni með þetta. Held alveg ábyggilega að þetta virki 100%. Hef samt ekki verið að fylgjast með í vel 10 ár.
Enjamm, þá ertu bara með venjulegt Windows.
Virkar þannig að þú getur valið á mili þess að fara í Makka eða PC þegar þú ræsir tölvuna, og ef ég man rétt stillt þannig að hún ræsir sig sjálfkrafa í PC, þannig að þú tapar engu.
Tjékkaðu á þessu
já ég er eiginlega viss um að ég nái alveg að læra á þetta, en það er samt svo margt sem mér finst verra í þessu, eins og bara það eitt að geta stungið flakkara í samband og flett á milli mynda (hljómar kanski asnarlega, en mér fanst það stór galli að geta ekki gert það og er bara að lenda í allskonar svona einföldum aðgerðum sem þarf að fara einhverjar krókaleiðir til að gerarussi skrifaði:Ef þú ert aðallega í PS og LR vinnslu þá ættiru að vera fljót að ná tökum á þessu, munur er ekki mikill þar.
En svo er það auðvitað eitt í þessu, þú ert með annað viðmót og nokkur atriði sem eru öðruvísi, það tekur smá tíma að ná tökum á því en það kemur. Það besta sem þú getur gert er bara að vera frekar mikið í vélinni fyrstu dagana og þá kemur þetta. Það er að vera bara með hann heima hjá sér til að byrja með meðan þú ert að ná tökum á þessu, það tók mig 1 dag að gera það en svona 3 daga til að mastera stýrikerfið. Tökum það inní í dæmið að ég er tölvunörd þannig það að neyða sig sem hefðbundin notandi í 1-2 vikur ætti að duga og vera bara þolinmóð, þú munnt ekki sjá eftir því.
Ef ég gat kennt mömmu gömlu að nota makka á 2 dögum og hún er tölvufötluð þá hlýtur þú að geta þetta auðveldlega.
BootCamp möguleikin er auðvitað alltaf ágætur ef þessi munur er ofmikil í þínum augum og frekar einfald, bara muna að gera Driver Disk áður,,, getur gert það á USB
Haha já ætti kanski að gera þaðTiger skrifaði:Held þú ættir bara að biðja einhvern ættingaja, vin eða annað sem hefur verið með MAC í einhvern tíma til að setjst niður hjá þér í klukkutíma, ferð aldrei aftur í Windows óneydd!
Eins og Russi segir t.d. með quick look, easy písí og svona er það flest.
Hæ. Er vandamálið sem sagt að þú ert með flakkara sem þú ert vön að nota í Windows vélinni þinni sem þú getur lesið á makkanum en ekki gert neinar breytingar?IM666 skrifaði:...eins og bara það eitt að geta stungið flakkara í samband og flett á milli mynda...
já það er einmitt þetta sem ég er að tala um og já þarf að skoða þettaasgeirbjarnason skrifaði:Hæ. Er vandamálið sem sagt að þú ert með flakkara sem þú ert vön að nota í Windows vélinni þinni sem þú getur lesið á makkanum en ekki gert neinar breytingar?IM666 skrifaði:...eins og bara það eitt að geta stungið flakkara í samband og flett á milli mynda...
Ef svo er þá er undirliggjandi vandamálið að Windows og macOS nota mismunandi skráarkerfi. Það eru tvær lausnir á þessu; getur annað hvort (1) breytt skráarkerfinu á flakkaranum eða (2) sett inn hugbúnað á makkanum sem leyfir þér að skrifa á Windows skráarkerfið.
Leið 1:
Þarft að breyta skráarkerfinu í ExFAT, sem er skráarkerfi sem bæði stýrikerfin geta skrifað á.
Getur gert þetta annað hvort á makkanum eða á Windows vélinni þinni, en þar sem ert vanari Windows er líklegra betra að gera þetta á Windows. Það sem þú gerir er að tengja flakkarann við tölvuna, afritar allt á flakkaranum tímabundið yfir á tölvuna og hægrismellir síðan á diskinn í Windows Explorer og velur Format. Í format skjánum þarftu að sjá til þess að ExFAT sé valið og ýtir síðan á Format takkann.
Leið 2:
Þessi leið er aðeins flóknari svo hún er ekki þess virði ef þú þarft bara að skrifa á þennan eina flakkara. Ef eru ágætar líkur á því að þurfa að skrifa á aðra flakkara er það hinsvegar þess virði.
Þarft að setja inn annað hvort ókeypis hugbúnaðinn NTFS-3G eða hugbúnaðinn Tuxera NTFS, sem kostar eitthvað um 3000 kr.
Það er auðvelt að setja inn Tuxera, kaupir það hér https://www.tuxera.com/products/tuxera-ntfs-for-mac/ og síðan er það nokkurnveginn imbaproof að setja það inn.
NTFS-3G leiðin er flókin:
Þarft að setja inn hugbúnaðinn Homebrew og fylgja síðan þessum leiðbeiningum https://gist.github.com/takeit/9fa83840 ... d52cef3693
(Skráarkerfið sem Windows notar sjálfgefið heitir NTFS en skráarkerfið sem macOS notar er annað hvort APFS eða HFS+)
hahaha hei þetta voru nú alveg 6 dagar skokiddi skrifaði:Fljótfærni.is !!! Ég er hundsvekktur, 2 dagar er ekki nægur tími til að taka upplýsta ákvörðun með að þetta henti þér ekki, í guðanna bænum reyndu að þrauka aðeins lengur, þú sérð ekki eftir því! Alveg glatað að gefast svona fljótt upp eftir að hafa bruðlað tæpum 300þ. í þessa vél.