Hvað er að gerast?
Hvað er að gerast?
Fékk þetta í andlitið þegar ég var að skoða erlenda gangamagnið hjá mér. Hringdi strax í vodafone og fékk bara leiðindi og hortugheit frá gaurnum í tæknilegu aðstoðinni. Veit að þetta er bullcrap vegna þess að ég hef alltaf fylgst með gangamagninu og er með stillt á takmörkun, þegar það fer yfir þessi 150gb sem ég á að hafa. Hefur einhver annar lent í svipuðu?
Last edited by einarn on Mán 26. Mar 2018 21:21, edited 1 time in total.
Re: Hvað er að gerast?
Nei. Það sem ég er að segja að þessar tölur birtust eftirá. Ég meira segja skoðaði þetta í vodafone verslun í Desember. Þá benti hann mér á að ég gæti lækkað gagnamagnið til að lækka netkostnaðinn hjá mér. Þá var ég kominn með rúmlega 50gb. Þessar tölur bara birtust alltíeinu.appel skrifaði:Vírus?
-
- has spoken...
- Póstar: 159
- Skráði sig: Mán 23. Nóv 2015 19:25
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað er að gerast?
Þú hefur ekkert dottið í það og "óvart" downloadað öllum þáttum af nágrönnum í 4k gæðum
Fólk sem stamar er ekki heimskt eða vanþroskað, það bara laggar
Re: Hvað er að gerast?
Nei. Ég kláraði Neighbours tímabilið mitt fyrir 20 árum.einarbjorn skrifaði:Þú hefur ekkert dottið í það og "óvart" downloadað öllum þáttum af nágrönnum í 4k gæðum
-
- has spoken...
- Póstar: 159
- Skráði sig: Mán 23. Nóv 2015 19:25
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað er að gerast?
ok þá er ég tómur
Fólk sem stamar er ekki heimskt eða vanþroskað, það bara laggar
Re: Hvað er að gerast?
Þetta hlýtur að vera eitthvað rugl. Ég tók eftir að vodafone er að breyta í "Allt gagnamagn tekið" policy. Gæti verið að kerfið hjá þeim sé í rugli.
Re: Hvað er að gerast?
https://vodafone.is/vodafone/verslanir- ... breytingar22. mars 2018
Ótakmarkað gagnamagn til 1. maí
Vodafone gefur öllum internet viðskiptavinum sínum ótakmarkað gagnamagn til 1. maí. Það þýðir að viðskiptavinir geta notað heimatenginguna áhyggjulaust án þess að klára gagnamagnið út marsmánuð og allan apríl.
Allt gagnamagn talið
Þann 1. maí næstkomandi verða gerðar högunarbreytingar á talningu gagnamagns. Fram til þessa hefur Vodafone eingöngu mælt og rukkað fyrir erlent niðurhal. Frá og með 1. maí mun talning gagnamagns miðast við allt gagnamagn, bæði innlenda og erlenda gagnaumferð sem og upphal og niðurhal. Samtímis verður innifalið gagnamagn aukið verulega. Því munu viðskiptavinir vera með umtalsvert meira innifalið gagnamagn á sínum þjónustuleiðum á óbreyttum verðum. Viðskiptavinir geta séð hvernig sín þjónustuleið breytist hér.
https://vodafone.is/library/PDFs/Verdbr ... %C3%B0.pdf
i7-2600K 3.4GHz @ 4.7GHz (103 MHz x 46) 1.416 V | ASUS P8P67 Pro | ASUS GeForce GTX1070 | Mushkin Blackline 8 GB CL9 1600MHz | Antec TruePower 750W | HAF X
Re: Hvað er að gerast?
Ok. Fjuff. Þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur að þetta verði rukkað. Skil samt ekki ahverju þetta breyttist retroactivly í gagnamagninu hjá mér.Revenant skrifaði:https://vodafone.is/vodafone/verslanir- ... breytingar22. mars 2018
Ótakmarkað gagnamagn til 1. maí
Vodafone gefur öllum internet viðskiptavinum sínum ótakmarkað gagnamagn til 1. maí. Það þýðir að viðskiptavinir geta notað heimatenginguna áhyggjulaust án þess að klára gagnamagnið út marsmánuð og allan apríl.
Allt gagnamagn talið
Þann 1. maí næstkomandi verða gerðar högunarbreytingar á talningu gagnamagns. Fram til þessa hefur Vodafone eingöngu mælt og rukkað fyrir erlent niðurhal. Frá og með 1. maí mun talning gagnamagns miðast við allt gagnamagn, bæði innlenda og erlenda gagnaumferð sem og upphal og niðurhal. Samtímis verður innifalið gagnamagn aukið verulega. Því munu viðskiptavinir vera með umtalsvert meira innifalið gagnamagn á sínum þjónustuleiðum á óbreyttum verðum. Viðskiptavinir geta séð hvernig sín þjónustuleið breytist hér.
https://vodafone.is/library/PDFs/Verdbr ... %C3%B0.pdf
Re: Hvað er að gerast?
Ætli það sé ekki til þess að fólk sjái sirka hvað það er raunverulega mikið að download-a.einarn skrifaði:Ok. Fjuff. Þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur að þetta verði rukkað. Skil samt ekki ahverju þetta breyttist retroactivly í gagnamagninu hjá mér.
i7-2600K 3.4GHz @ 4.7GHz (103 MHz x 46) 1.416 V | ASUS P8P67 Pro | ASUS GeForce GTX1070 | Mushkin Blackline 8 GB CL9 1600MHz | Antec TruePower 750W | HAF X
Re: Hvað er að gerast?
Vodafone eru farnir að telja alla traffík sem eina tölu. Ekki er lengur gerður greinarmunur á erlendu og innlendu niðurhali og ég held þeir séu líka farnir að telja upload traffík eins og síminn.
Re: Hvað er að gerast?
Þetta er brotið niður miðað við daga, þannig að þá ættir þú að geta fengið hugmynd um hvað er að gerast.
Eru trúlega að mæla allt hjá þér þ.e. up og niður. Eru með einhverjar þjónustur sem vinir og ættingjar eru að nýta?
Eru trúlega að mæla allt hjá þér þ.e. up og niður. Eru með einhverjar þjónustur sem vinir og ættingjar eru að nýta?
Re: Hvað er að gerast?
Tbot skrifaði:Þetta er brotið niður miðað við daga, þannig að þá ættir þú að geta fengið hugmynd um hvað er að gerast.
Eru trúlega að mæla allt hjá þér þ.e. up og niður. Eru með einhverjar þjónustur sem vinir og ættingjar eru að nýta?
Gerði það einmitt. Það var einn dagur þar sem traffíkinn var 7,5gb á hverjum klukkutíma allan daginn. Og sama daginn eftir nema hlé um hádegi. Getur ekki staðist því að eina tölvan sem er nettengd er off á nóttinni og síminn er með mér í skólanum.
-
- 1+1=10
- Póstar: 1109
- Skráði sig: Lau 31. Okt 2009 21:34
- Staðsetning: Akureyri
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað er að gerast?
Segið mér.. er búinn að fá upp í kok af þessu vodafone bulli.. hvar er best að vera, vill vera með allt niðurhald ótakmarkað, netflix og þess háttar. Eins bara treysti ég Vodafone ekki.. hreinir glæpamenn eftir framkomu þeirra þegar þeir byrjuðu á að mæla innlent magn af mirror serverum sem erlent magn án þess að segja einum eða neinum frá.. í marga mánuði, þmt. sínum þjónustufulltrúum.
-
- FanBoy
- Póstar: 793
- Skráði sig: Þri 18. Apr 2006 01:26
- Staðsetning: Rvk
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað er að gerast?
Ég færði mig yfir í nova með allt draslið. Og er virkilega sáttur!
Lenovo Legion 5 - 2020 | Zyxel NAS 16TB | LG B8 OLED | PS5 | Klipsch 5.0 | Yamaha |
-
- Fiktari
- Póstar: 93
- Skráði sig: Þri 16. Jún 2015 17:59
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað er að gerast?
Síminn Endalaust Internet....
Re: Hvað er að gerast?
svo er að koma 100 gig paki hjá hringdu í gsm síma. sem er hrikalega næs ef maður er youtube fíkill á ferðinni
B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.
Re: Hvað er að gerast?
Hringdu reyndist mér vel. Svo fékk ég tilboð frá Símanum sem ég gat ekki hafnað og það hefur verið 100% síðan ég færði mig.
Eplakarfan: Apple Watch S6 LTE | iPad Air 2020 | iPad Pro 12.9” | Apple TV 4K | iPhone 13 Pro Max | Airpods Pro
Tölvan: Lenovo IdeaPad L340 | PlayStation 5 | PlayStation 4 Pro
Útiveran: Ford Kuga | Kangoo | Zero 10X | Bettinsoli | Savage B22 | Savage Apex 110 Predator XP
Tölvan: Lenovo IdeaPad L340 | PlayStation 5 | PlayStation 4 Pro
Útiveran: Ford Kuga | Kangoo | Zero 10X | Bettinsoli | Savage B22 | Savage Apex 110 Predator XP
-
- Nörd
- Póstar: 118
- Skráði sig: Mán 13. Feb 2017 17:12
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað er að gerast?
ótakmarkað gagnamagn er best þa þarftu ekki ad hafa áhyggjur af reykningnum
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað er að gerast?
Tilboð?ColdIce skrifaði:Hringdu reyndist mér vel. Svo fékk ég tilboð frá Símanum sem ég gat ekki hafnað og það hefur verið 100% síðan ég færði mig.
Re: Hvað er að gerast?
“Tilboð”GuðjónR skrifaði:Tilboð?ColdIce skrifaði:Hringdu reyndist mér vel. Svo fékk ég tilboð frá Símanum sem ég gat ekki hafnað og það hefur verið 100% síðan ég færði mig.
2 gsm með 100gb hvor, 1gb net, heimilispakkinn og þetta Premium dót og heimasími á 14k. Frítt fram í maí
Vorum með þjónustur hér og þar fyrir þetta allt og þetta er ódýrara fyrir okkur hjónin
Hentu inn Heimur Allt pakkanum frítt með svo ég fæ að horfa á History, hrikalega sáttur með það
Eplakarfan: Apple Watch S6 LTE | iPad Air 2020 | iPad Pro 12.9” | Apple TV 4K | iPhone 13 Pro Max | Airpods Pro
Tölvan: Lenovo IdeaPad L340 | PlayStation 5 | PlayStation 4 Pro
Útiveran: Ford Kuga | Kangoo | Zero 10X | Bettinsoli | Savage B22 | Savage Apex 110 Predator XP
Tölvan: Lenovo IdeaPad L340 | PlayStation 5 | PlayStation 4 Pro
Útiveran: Ford Kuga | Kangoo | Zero 10X | Bettinsoli | Savage B22 | Savage Apex 110 Predator XP
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1722
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað er að gerast?
Ertu nú alveg viss um?
Re: Hvað er að gerast?
Ég er hjá Hringdu og dettur ekki í hug að vera hjá öðrum netþjónustu aðila, það sem skiptir mig miklu meira máli heldur en eitthvað tilboð er sú þjónusta sem maður fær hjá Hringdu, hjá öðrum netþjónustum er ekki hægt að senda email og fá svar og lausn sinna mála á Laugardagskvöldi , eins og um daginn þá var routerinn minn hakkaður , Netgear með Asus firmware, eitt email og ég fékk nýja ip og ég að sjálfsögðu lagaði routerin áður.. eins þegar ég hef verið að flytja þá er það bara einn email og málunum reddað og allt sett í ferli, á alveg félaga sem hafa farið til Hringdu útaf ég mælti með því og þeir eru mjög ánægðir einmitt útaf þjónustu
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 259
- Skráði sig: Mið 12. Feb 2014 12:56
- Staða: Ótengdur
Re: Hvað er að gerast?
Líttu endilega á kostnað þegar pakkinn er ekki lengur ókeypis! Heimilispakkinn einn og sér er á 14.000 kr. Þá á áttu eftir að bæta við aðgangsgjaldi og tveimur farsímaáskriftum. Vorum að byrja með nýja vöru sem er farsími með 100 gb net í símann á 1.990 kr ef þú ert með ótakmarkað heimanet hjá okkur. Gæti verið ódýrara!ColdIce skrifaði:“Tilboð”GuðjónR skrifaði:Tilboð?ColdIce skrifaði:Hringdu reyndist mér vel. Svo fékk ég tilboð frá Símanum sem ég gat ekki hafnað og það hefur verið 100% síðan ég færði mig.