Vefsíða birtist með eða án www.
Vefsíða birtist með eða án www.
Sælir. Fyrir sumar síður er hægt að skrifa t.d. bara mbl.is og hún opnast, en svo eru aðrar síður sem krefjast þess að maður skrifi www á undan annars kemur bara 404 error.
Vitið þið hvað veldur þessu, hvað er hægt til að bæði virki osfrv?
Vitið þið hvað veldur þessu, hvað er hægt til að bæði virki osfrv?
Re: Vefsíða birtist með eða án www.
Bara spurning um uppsetningu á viðkomandi vef. Ekkert sem þú getur gert svosem, nema það sé mögulega til eitthvað browser plugin sem bæti sjálfkrafa við www, en það virkar auðvitað ekkert alltaf.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 257
- Skráði sig: Fim 28. Apr 2016 20:17
- Staða: Ótengdur
Re: Vefsíða birtist með eða án www.
Þegar maður setur upp heimasíðuþjón getur maður skilgreint hvaða lénum þjónninn svarar og hvort og þá hvernig þjónninn svarar mismunandi lénum á mismunandi hátt. Þetta er kallað name based virtual hosting.
Hérna er gróft dæmi um uppsetningu í Apache sem svarar eins fyrir http://www.test.is og test.is:
...og hérna er dæmi sem flytur notendur sjálfkrafa á lénið án www ef þeir fara á www lénið:
(Þetta er bara dæmi úr gamalli glósu hjá mér um Apache config, en það eru örugglega mistök í þessu þar sem ég nenni ekki að staðfesta þetta á alvöru þjóni)
Hérna er gróft dæmi um uppsetningu í Apache sem svarar eins fyrir http://www.test.is og test.is:
Kóði: Velja allt
<VirtualHost *:80>
DocumentRoot /var/www/vhosts/test.is
ServerName test.is
ServerAlias www.test.is
<Directory /var/www/vhosts/test.is>
Options Indexes FollowSymLinks MultiViews
AllowOverride All
Order allow,deny
allow from all
</Directory>
</VirtualHost>
Kóði: Velja allt
<VirtualHost *:80>
DocumentRoot /var/www/vhosts/test.is
ServerName test.is
ServerAlias www.test.is
RewriteEngine On
RewriteBase /
RewriteCond %{HTTP_HOST} !^www\. [NC]
RewriteRule ^(.*)$ http://www.%{HTTP_HOST}/$1 [R=301,L]
<Directory /var/www/vhosts/test.is>
Options Indexes FollowSymLinks MultiViews
AllowOverride All
Order allow,deny
allow from all
</Directory>
</VirtualHost>
Re: Vefsíða birtist með eða án www.
www er ekki eitthvað sem þarf að vera fremst í URL, lénarheitið er bara vaktin.is mbl.is, google.com, slashdot.org eða eitthvað álika, allt annað eins og spjall.vaktin.is, http://www.mbl.is o.s.fr. eru í raun undirvefir en http://www.lén.com hefur oft verið bent á lén.com. Ef vefir virka ekki nema þeir hafi www fyrir framan þá er það vegna þess að vefþjónninn er settur upp þannig og það er þá meðvituð ákvörðun vefstjóra, lélegur vefþjónn eða einhver misskilinngur um að www sé hefð og/eða fylgi einhverjum stöðlum. Til að bæði virki þá þarf að stilla vefþjóninn (apache, IIE, nginx etc etc) þannig að hann höndli http://www.lén.com á sama máta og lén.com (þ.e. án www). Hvernig það er gert er býst ég við mismunandi eftir vefþjónum.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 257
- Skráði sig: Fim 28. Apr 2016 20:17
- Staða: Ótengdur
Re: Vefsíða birtist með eða án www.
Býst við að þetta sé bara innsláttarvilla, en það er IIS, ekki IIE, bara svona til að fólk fari ekki í einhverja dauðaleit að vefþjóni sem heitir IIE.ojs skrifaði:...að stilla vefþjóninn (apache, IIE, nginx etc etc) þannig að hann höndli...
Re: Vefsíða birtist með eða án www.
www.bestwebhosting.co.uk er geymsluaðili beggja síðana, þannig að furðulegt að þetta sé ekki eins. Hef farið inní c-panelinn þar og reynt að finna eitthvað en finn ekkert.
Ég prufa að senda þeim suport ticket og sé hvað þeir segja.
takk fyrir.
Ég prufa að senda þeim suport ticket og sé hvað þeir segja.
takk fyrir.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 257
- Skráði sig: Fim 28. Apr 2016 20:17
- Staða: Ótengdur
Re: Vefsíða birtist með eða án www.
cPanel er með dæmi sem heitir Alias sem ætti að leyfa þér að láta eina síðu svara fyrir fleira en eitt lén. Ef þessar tvær síður sem þú ert að tala um hjá bestwebhosting eru í rauninni sama lénið með og án www þá ættirðu að geta sleppt annarri síðunni og sett lénið á þeirri síðu upp sem Alias á hinni.
Re: Vefsíða birtist með eða án www.
Önnur síðan/lénið (sem bæði vikar með og án www og í raun aðal lénið inná cpanel) er Domain í c-panel en hin síðan/lénið (sem virkar bara með www) er þar sub domain.asgeirbjarnason skrifaði:cPanel er með dæmi sem heitir Alias sem ætti að leyfa þér að láta eina síðu svara fyrir fleira en eitt lén. Ef þessar tvær síður sem þú ert að tala um hjá bestwebhosting eru í rauninni sama lénið með og án www þá ættirðu að geta sleppt annarri síðunni og sett lénið á þeirri síðu upp sem Alias á hinni.
Re: Vefsíða birtist með eða án www.
Ég varð einu sinni mjög confused þegar ég ætlaði að panta borð á veitingastaðnum Ítalíu. www.italia.is og italia.is er ekki sami vefurinn.
Re: Vefsíða birtist með eða án www.
Ég er ekki hissa að þú hafir verið confused. Þetta er það skrýtnasta sem ég hef séð.stuxnet skrifaði:Ég varð einu sinni mjög confused þegar ég ætlaði að panta borð á veitingastaðnum Ítalíu. http://www.italia.is og italia.is er ekki sami vefurinn.
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Vefsíða birtist með eða án www.
Steikasta sem ég hef séð!stuxnet skrifaði:Ég varð einu sinni mjög confused þegar ég ætlaði að panta borð á veitingastaðnum Ítalíu. http://www.italia.is og italia.is er ekki sami vefurinn.
En í raun er italia.is lénið og www.italia.is er undirlénið, alveg eins og m.mbl.is er undirlén mbl.is (sub-domain).A young director/playwright duo and a rag-tag group of actors attempt to stage an ambitious new play in their sleepy hometown theatre.
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller