svo ég fór út í að kaupa mér ROG Rapture Router að utan til þess eins að komast að því að mig vantar Modem til að tengjast í vegginn, eða hvað? vildi spyrjast fyrir hér á spjallinu hvernig maður stillir þessari græju upp
Ertu sem sagt með VDSL/ljósnets tengingu? Ef þú ert með ljósleiðara áttu ekki að þurfa modem, en þar sem þessi router er með ethernet WAN port muntu ekki geta tengst VDSL nema með einhverju öðru tæki fyrir framan.
Hvort routerinn skili sínu með lélegu modemi fer eftir því hvernit þú skilgreinir að „skila sínu.“ Ef ástæða uppfærslunar er lélegt wifi samband eða nethraði innanhús mun modemið ekki hafa áhrif á það. Ef ástæðan er lélegt internetsamband þá mun það breyta litlu að fá sér betri router ef WAN tengingin breytist ekki.
Ef þú ert hjá ljósneti Símans geturu stillt hann þannig að hann sjái um flest þótt þú sért með router frá símanum tengdan fyrst (been there done that). Ég fékk frábæra þjónustu hjá símanum á sínum tíma í þessa aðstoð, hvort hún sé enn til staðar í dag vegna ljósnets veit ég ekki.
Takk drengir , varðandi þjónustuna hjá símanum, jú hann var mjög þolinmóður og hjálpsamur, en samkvæmt honum gat ég ekki notað routerinn eins og Tiger lýsir, ég er agalega lélegur í þessum tengimálum og er endalaust að leita að "tutorials" en já er með VDSL
orn1989 skrifaði:Takk drengir , varðandi þjónustuna hjá símanum, jú hann var mjög þolinmóður og hjálpsamur, en samkvæmt honum gat ég ekki notað routerinn eins og Tiger lýsir, ég er agalega lélegur í þessum tengimálum og er endalaust að leita að "tutorials" en já er með VDSL
Þarft annaðhvort að fá þér modem fyrir framan hann, nota símarouterinn sem modem(nokkrar línur í telnet) eða fara á ljósleiðarann ef hann er í boði.
orn1989 skrifaði:Takk drengir , varðandi þjónustuna hjá símanum, jú hann var mjög þolinmóður og hjálpsamur, en samkvæmt honum gat ég ekki notað routerinn eins og Tiger lýsir, ég er agalega lélegur í þessum tengimálum og er endalaust að leita að "tutorials" en já er með VDSL
Eins og Cascade segir, þá er þetta alveg hægt og þarft bara að stilla símarouterinn í bridge mode með aðstoð símans.
notaðu bara routerinn frá símanum til að keyra iptv og voip ef þú ert með það - disabelaðu dhcp server í routernum og tengdu þinn router og notaðu hann til að router traffík og wifi
BugsyB skrifaði:notaðu bara routerinn frá símanum til að keyra iptv og voip ef þú ert með það - disabelaðu dhcp server í routernum og tengdu þinn router og notaðu hann til að router traffík og wifi
Þyrftir að brúa netinu yfir á nýja routerinn, annars eru kominn með double nat.