Nú fékk ég þá grillu í hausinn að nú væri rétti tíminn að byrja setja saman turn tölvu, nokkrum árum eftir að mig fór fyrst að klæja til þess. Þannig séð þá veit ég ekkert hvað ég er að gera en þetta hlýtur að reddast á endanum. Planið hjá mér er að setja turninn saman í skrefum, ég hef ekki efni á því að kaupa alla hlutina í einu eins og er. Fyrsta púslið var pantað frá amazon.uk og er komið í hús en það var "Fractal Design Define R5" sem er nú vel geymdur út í horni og enn í kassanum

Nú er ég að velta fyrir mér næstu skrefum. Markmiðið er að vera búin að setja turninn saman fyrir næsta sumar eða í síðasta lagi um haustið, þannig ég hef nægan tíma. Ég kem til með að reyna nýta útsölur eins og Black Friday eins mikið og ég get. Ég er samt að velta því fyrir mér hvort það sé ekki alveg öruggt að kaupa alla parta t.d. frá Bretlandi, vegna þess þeir eru með öðruvísi klær fyrir innstungur en við hérna heima.
En allavega stóra spurningin og ástæðan fyrir því að ég kem hingað og pósta þessu. Hvaða parta teljiði að væri skynsamlegast fyrir mig að byrja á því að kaupa? Er eitthvað sem ég ætti að forðast að kaupa því að uppfærsla er rétt handan við hornið (ég veit það eru alltaf uppfærslur væntanlegar)? Skiptir þetta kannski engu máli og ég ætti bara að kaupa hluti þegar þeir eru á góðum prís?
Öll aðstoð væri vel þeginn
