Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
-
Höfundur - Of mikill frítími
- Póstar: 1863
- Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
Er þetta einhver innsláttarvilla hjá þeim eða er þetta alvöru verðið hjá þeim ?
https://odyrid.is/vara/gigabyte-gtx-107 ... -8gb-gddr5
Ég kaupi allavega 1 stk um mánaðarmótin ef ég fæ það á þessu verði
https://odyrid.is/vara/gigabyte-gtx-107 ... -8gb-gddr5
Ég kaupi allavega 1 stk um mánaðarmótin ef ég fæ það á þessu verði
Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
held að útsalan hjá þeim lýkur á morgun
-
Höfundur - Of mikill frítími
- Póstar: 1863
- Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
æji :/
Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.
-
- Kóngur
- Póstar: 6079
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
bara panta núna
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
Búnir að taka þetta út sýnist mér
Annars er aumingjaskapur í þeim, auglýsa 50% afslátt af öllu núna en hækkuðu verðin á móti.
Vissulega flott verð, í boði á ýmsu, en t.d. i3-7100 var á ~13.900kr.- hjá þeim, en í staðin fyrir að gefa 50% afslátt af því verði, þá er núna búið að hækka upprunalega verðið í 19.990kr.- svo að útsöluverðið er 9.995kr.
Gott verð, en samt ekki 50% afsláttur.

www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
Eru það ekki svik ? var ekki akkurat dómur að falla um svipaða auglýsingar brellur fyrir nokkrum dögum ?Klemmi skrifaði:Búnir að taka þetta út sýnist mér
Annars er aumingjaskapur í þeim, auglýsa 50% afslátt af öllu núna en hækkuðu verðin á móti.
Vissulega flott verð, í boði á ýmsu, en t.d. i3-7100 var á ~13.900kr.- hjá þeim, en í staðin fyrir að gefa 50% afslátt af því verði, þá er núna búið að hækka upprunalega verðið í 19.990kr.- svo að útsöluverðið er 9.995kr.
Gott verð, en samt ekki 50% afsláttur.
fyrir.png
eftir.png
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
Jú, man eftir að Hagkaup fékk sekt fyrir þetta:Dúlli skrifaði:Eru það ekki svik ? var ekki akkurat dómur að falla um svipaða auglýsingar brellur fyrir nokkrum dögum ?
https://www.neytendastofa.is/library/Fi ... 0gagna.pdf
Hins vegar er um mikið stærra fyrirtæki að ræða hjá Hagkaup, efast um að Ódýrið skapi sér einhverja hættu á verulegum sektum með þessu, en ég missi hins vegar álit á þeim.
*** Bætt við ***
Svo var mér bent á þetta, Tölvutek, sem eftir því sem ég best veit er yfir Ódýrinu, gerði athugasemd við að Tölvulistinn bryti gegn útsölureglum.
Tölvulistinn fékk 700þús króna stjórnvaldssekt.
https://www.neytendastofa.is/um-okkur/f ... -sektadur/
Smá hræsni...
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
-
- Fiktari
- Póstar: 50
- Skráði sig: Mán 12. Mar 2007 22:50
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
Sælir strákar, í þessum tilvikum er Ódýrið búið að vera með rýmingarverð og afsláttarverð en 50% afsláttur er á öllum vörum frá fullu verði, ekki fyrra afsláttarverði. Við tókum út alla fyrri afslætti og settum 50% á allt, engar brellur og ekkert plat. Ef vara er farin af síðunni er hún bara búin en afsláttur er bara meðan birgðir endast af vörum á lager.
-
- Kóngur
- Póstar: 6079
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
er verið að loka sjoppunni?Halldorhrafn skrifaði:Sælir strákar, í þessum tilvikum er Ódýrið búið að vera með rýmingarverð og afsláttarverð en 50% afsláttur er á öllum vörum frá fullu verði, ekki fyrra afsláttarverði. Við tókum út alla fyrri afslætti og settum 50% á allt, engar brellur og ekkert plat. Ef vara er farin af síðunni er hún bara búin en afsláttur er bara meðan birgðir endast af vörum á lager.
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
Sæll Halldór,Halldorhrafn skrifaði:Sælir strákar, í þessum tilvikum er Ódýrið búið að vera með rýmingarverð og afsláttarverð en 50% afsláttur er á öllum vörum frá fullu verði, ekki fyrra afsláttarverði. Við tókum út alla fyrri afslætti og settum 50% á allt, engar brellur og ekkert plat. Ef vara er farin af síðunni er hún bara búin en afsláttur er bara meðan birgðir endast af vörum á lager.
gefum okkur það að þessar tvær vörur sem ég bendi á, sem valdar voru þar sem ég mundi eftir að hafa skoðað verðið á þeim fyrir nokkrum dögum, hafi raunverulega verið á útsöluverði (örgjörvinn er samt þá á sama verði og er hjá Tölvutækni á venjulegu verði...), þá voruð þið bæði á þeim tíma og eruð enn að brjóta reglur um útsölur. Það skal alltaf koma fram upprunalegt og/eða fyrra verð. Einnig skal koma skýrt fram hvort afsláttur reiknast frá upphaflegu eða lækkuðu verði.
Lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu skrifaði: 11. gr. Útsölu eða aðra sölu, þar sem selt er á lækkuðu verði, má því aðeins auglýsa eða tilkynna að um raunverulega verðlækkun sé að ræða. Þess skal gætt að greinilegt sé með verðmerkingum hvert hið upprunalega verð vörunnar var.
Reglur um útsölur eða aðra sölu þar sem selt er á lækkuðu verði skrifaði:Lækki verð vöru eða þjónustu enn frekar á meðan á útsölu eða annarri sölu stendur, sbr. 1. gr., skal koma skýrt fram hvort aukinn afsláttur reiknast frá upphaflegu eða lækkuðu verði.
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
www.ferdaleit.is
-
- Geek
- Póstar: 840
- Skráði sig: Þri 15. Des 2015 01:27
- Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
Hvað var verðið á skjákortinu?Hnykill skrifaði:Er þetta einhver innsláttarvilla hjá þeim eða er þetta alvöru verðið hjá þeim ?
https://odyrid.is/vara/gigabyte-gtx-107 ... -8gb-gddr5
Ég kaupi allavega 1 stk um mánaðarmótin ef ég fæ það á þessu verði
ASRock B550M Steel Legend | 2x8GB Aorus 3200Mhz | R5 3600 | RTX 2070 Super | Seasonic Focus+ Gold | Predator XB271HU
-
Höfundur - Of mikill frítími
- Póstar: 1863
- Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
35 þús kall minnir mig.ChopTheDoggie skrifaði:Hvað var verðið á skjákortinu?Hnykill skrifaði:Er þetta einhver innsláttarvilla hjá þeim eða er þetta alvöru verðið hjá þeim ?
https://odyrid.is/vara/gigabyte-gtx-107 ... -8gb-gddr5
Ég kaupi allavega 1 stk um mánaðarmótin ef ég fæ það á þessu verði
Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
Þetta mál er alveg rosalega skrítið, öll verðin voru mjög flott, algjör óþarfi að "bluffa" neytendur með hærri afslætti en var í raun gefinn.
Tölvulistinn var sektaður fyrir sambærilegt mál og fékk 700.000 kr sekt (Ps. Tölvutek eiga alveg skili credit fyrir að hafa tilkynnt það), en Ódýrið má alveg örugglega gera ráð fyrir sekt.
Annars grunar mig að það sé verið að loka Ódýrinu og opna annað útibú Tölvuteks í staðinn.

youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
-
- Geek
- Póstar: 840
- Skráði sig: Þri 15. Des 2015 01:27
- Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
Það verður lokað Ódýrið en netverslun verður enn til boði minnir mig á.
Væri ömurlegt að missa ábyrgð af skjákortinu mínu hja Ódýrinu...
Væri ömurlegt að missa ábyrgð af skjákortinu mínu hja Ódýrinu...
ASRock B550M Steel Legend | 2x8GB Aorus 3200Mhz | R5 3600 | RTX 2070 Super | Seasonic Focus+ Gold | Predator XB271HU
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
Ég spurði út í ábyrgð, þeir sögðu að tölvutek myndu sjá um hana. Held að þeir eigi Ódýrið
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
talandi um afslátt... verð áður.... 201 milljarður... nú aðeins 3495kr!
AsRock TRX40 Taichi AMD Threadripper 3960X Asus GTX 980OC Strix 4GB G.Skill (4x8GB) Trident Neo 3600MHz DDR4 Western Digital RED 4TB stýrikerfi: 2x Corsair MP600 1TB raid0 50" Panasonic Plasma TV WD RED 4TB
-
- Geek
- Póstar: 840
- Skráði sig: Þri 15. Des 2015 01:27
- Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
- Staða: Ótengdur
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
Rétt hjá þér, Tölvutekið eiga Ódýrið nefnilega.marri87 skrifaði:Ég spurði út í ábyrgð, þeir sögðu að tölvutek myndu sjá um hana. Held að þeir eigi Ódýrið
Síðurnar hjá bæði eru alveg eins.
ASRock B550M Steel Legend | 2x8GB Aorus 3200Mhz | R5 3600 | RTX 2070 Super | Seasonic Focus+ Gold | Predator XB271HU
Re: Verð á GTX 1070 hjá Ódýrinu ?
Það er áhugaverð pæling hvort það hefur liðið stakur mánuður frá upphafi Tölvuteks þar sem þeir hafa fylgt lögum og reglum um auglýsingar og útsölur.
Það er líka mjög íslenskt að yfirmaður sölusviðs hjá "stórfyrirtæki" sé að reyna að komast upp með augljóst rugl.
Ef yfirmaður sölusviðsins sér ekki það sem heilvita mönnum þykir sjálfsagt, að ekkert bull sé í gangi með útreikninga á afsláttarverðum án þess að það komi skýrt fram, þá er ekki furða að þetta fyrirtæki missi af svona mörgum tækifærum til að fylgja "flóknari" lögum og reglum sem önnur fyrirtæki í samkeppni við þá reyna að fylgja.
Ef þetta er "engar brellur og ekkert plat" þá eru ekki til brellur né plöt.