Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key


Höfundur
Sevrus
Nýliði
Póstar: 1
Skráði sig: Mán 08. Feb 2010 22:31
Staða: Ótengdur

Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af Sevrus »

Sæl
Hvar myndu þið seigja væri ódyrast að kaupa W10
ætlaði að kaupa key í gengum kinguin en síðan er ég buin að lesa svo rosa marga
seigja þeir virki ekki...
--
Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3737
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af Pandemic »

Skjámynd

rickyhien
spjallið.is
Póstar: 496
Skráði sig: Lau 25. Maí 2013 20:39
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af rickyhien »

keypti minn fyrir nokkrum vikum á g2play (svipað og kinguin) á 26 evrum, Win 10 Pro OEM, eftir uppsetningu kom vandamál með að virkja lykillinn af þvi að lykillinn var "notaður á annarri vél" (svona eru allir OEM lyklar), fór að tala við Live Chat Support á síðunni og hún/hann fór að virkja þetta fyrir mig gegnum phone activation (sem eg reyndi en gekk ekki), nú er þetta all good :D tók svona 5-10 mín spjall
Antec P280 kassi | Z370 AORUS Gaming 3 móðurborð | i5-8600K örgjörvi | Corsair H100i örgjörvakæling | PNY GTX 1080 Founder's Edition skjákort | 1 TB HDD | 120 GB SSD | 240 GB SSD | 24GB RAM | Cooler Master V750 aflgjafi | Corsair K65 LUX lyklaborð | ZOWIE FK1 mús | Sennheiser GSP 370 heyrnartól | BenQ XL2420T 24" 120hz skjár | Asus XT8 router | DJI Mavic Air 2 dróni

Risadvergur
Fiktari
Póstar: 80
Skráði sig: Mið 31. Ágú 2016 19:47
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af Risadvergur »

Ég keypti minn bara á kinguin. 25€ og virkaði án nokkurra vandkvæða.
Skjámynd

techseven
Ofur-Nörd
Póstar: 290
Skráði sig: Lau 02. Des 2006 17:26
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af techseven »

Keypti minn á ebay fyrir eitthvað klink, finnur einhvern með gott rep en passar að lesa vel lýsinguna fyrir neðan, stundum er eitthvað "catch" og þá er ekki saman hvernig Windows er upp sett.
Ryzen 7 1700 stock speed
Skjámynd

vesi
/dev/null
Póstar: 1463
Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af vesi »

Hef keypt win7 og win10 lykla á g2play án vandræða.
MCTS Nov´12
Asus eeePc
Skjámynd

Sallarólegur
Internetsérfræðingur
Póstar: 6350
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Staðsetning: https://viktor.ms
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af Sallarólegur »

Ég setti upp Windows 10 Home fyrir ömmu mína, keypti lykil á eitthvað um 200 kr. á eBay og hef ekki lent í neinu veseni.
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD

G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless

Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz

EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4264
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af chaplin »

Eru ekki lyklar hjá G2Play keyptir með stolnum kortum og seldir svo áfram?
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Skjámynd

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 3981
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af Klemmi »

chaplin skrifaði:Eru ekki lyklar hjá G2Play keyptir með stolnum kortum og seldir svo áfram?
Af hverju heldurðu það? :wtf

* Bætt við *
Eftir að hafa googlað, þá voru leikir keyptir í gegnum Origin á stolnum kortum og seldir áfram, en það virðist hafa verið einangrað atvik fyrir 2 árum síðan, sem snerti 35 af yfir 3400 "seljendum" á Kinguin/G2Play á þeim tíma :)
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4264
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af chaplin »

Man eftir því að hafa lesið að það eru oft notuð stolin kort til að kaupa leyfislykla á Steam, þegar þjófnaður er tilkynntur þarf framleiðandi leiksins að endurgreiða leikinn en geta ekki lokað á leyfið sjálft.

Í einhverjum tilvikum voru víst lyklar líka keyptir í löndum þar sem þeir eru ódýrari (v. efnahags þess lands) sem verður til þess að það sé bara tvennt í stöðunni fyrir framleiðendur, setja region-lock á leiki eða hækka verðið fyrir þá sem hafa minna milli handanna.

Finnst engum það shady að kaupa leyfi á netinu, ódýrari en þeir kosta beint frá framleiðanda? Og þá ekki bara örfáar krónur heldur oft tug prósenta verðmun.

edit Virðist vera að það hafi verið G2A sem voru með grunsamlegar aðferðir.

- Notorious Game Key Reseller G2A Gets Torn To Shreds In AMA
- Dæmi 1: Svar G2A við ásökunum
- Dæmi 2: Svar G2A við ásökunum

Það þarf samt ekki að leita langt til að finna kvartanir hjá fólki sem hefur keypt hjá G2Play að leikir sem hafa verið keyptir í gegnum þá verði allt í einu bannaðir, mér finnst það rosalega loðið.
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Skjámynd

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 3981
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af Klemmi »

chaplin skrifaði:Finnst engum það shady að kaupa leyfi á netinu, ódýrari en þeir kosta beint frá framleiðanda? Og þá ekki bara örfáar krónur heldur oft tug prósenta verðmun.
Steam/Origin/uPlay eru með útsölur nokkrum sinnum á ári, þar sem leikir eru á tugprósenta afslætti. Mikið af leikjalyklunum eru keyptir á þeim tímum og eru forwardaðar þá sem gjöf.

Neytandinn í mér segir að framleiðandinn hafi verið tilbúinn til að selja lyklana á einhverjum tímapunkti á einhverjum stað á þessu verði, og einhver hafi nýtt sér það og vilja selja hann aðeins dýrara þegar hann hefði tækifæri til. Framleiðandinn hafi því fengið það sem hann var tilbúinn til að selja vöruna á :)

Mér er í raun sama hvaðan lyklarnir koma, svo lengi sem þeir eru ekki stolnir eða keyptir með stolnu korti. Ég efast annars um að mikið af því sem sé í boði sé komið frá stolnum kortum, einfaldlega því ég trúi ekki að fraud-checkið hjá þessum risum sé enn það lélegt að þeir leyfi það að keyptir séu einhverjir hundruðir/þúsundir lykla á sama kortið á stuttum tíma.
Allavega þyrfti að vera mjöööög mikið af stolnum kortum með mjöööög mörgum sölum til þess að anna eftirspurninni í gegnum Kinguin og G2A.
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4264
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af chaplin »

Ég skil það sem þú ert að segja og finnst mér það ekkert óeðlilegt að kaupa lykil á netinu sem var keyptur á útsölu frá framleiðanda. Mér finnst það bara loðið að sumir eru að lenda í því að leikirnir verði bannaðir (sýnist þó fólk fá nýjan lykil, en er það eðlilegt?).
Klemmi skrifaði: Mér er í raun sama hvaðan lyklarnir koma, svo lengi sem þeir eru ekki stolnir eða keyptir með stolnu korti.
Algjörlega sammála, ef varan er lögleg þá er mér sama hver er að selja hana, en um leið og maður þarf að virkja leikinn sinn í gegnum VPN því hann var keyptur í Indlandi sem verður til þess að allir leikir í framtíðinni verða region locked og þú þarft að vera með VPN í gangi til að spila leikinn, þá er þetta no bueno.
Klemmi skrifaði: Ég efast annars um að mikið af því sem sé í boði sé komið frá stolnum kortum, einfaldlega því ég trúi ekki að fraud-checkið hjá þessum risum sé enn það lélegt að þeir leyfi það að keyptir séu einhverjir hundruðir/þúsundir lykla á sama kortið á stuttum tíma.
Sá eitt svar sem mér fannst passa við þetta.
/u/Bendito_Bandit skrifaði:How does it feel selling pirated keys?
g2a_com skrifaði:Short answer - we don't sell pirated keys. Hell, we don't sell any keys at all, the sellers do. Long answer - you can't actually pirate a key. You can obtain a legal key and then sell it on the marketplace. If you are a fraudster, you may want to try some shady shenanigans but that will result in the key being invalidated. Then, we'll go all out on you and do all we can to put a stop to your shady practices. We don't tolerate such things and never will.
Peter
Narb_ skrifaði:This is the weakest answer ever. That's like the Silk Road guy saying "I know they said they were selling cocaine, but I didnt think they'd actually do it because you know.. its illegal! Color me surprised!"
Ath. tek það samt fram að þetta var G2A, ekki G2Play. ;)
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af GuðjónR »

Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4264
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af chaplin »

GuðjónR skrifaði:Gerist varla ódýrara:
http://www.ebay.co.uk/itm/WINDOWS-10-PR ... 0011.m1850
Ef þetta er í raun OEM Scrap, þá fengi ég nákvæmlega ekkert samviskubit, þótt þetta sé bannað svk. Microsoft. Microsoft eru með ömurlegt hreðjartak á markaðinum og nema í algjörum undantekningum þá mega ekki framleiðendur selja tölvur nema það sé Windows leyfi á þeim, þótt það verði aldrei notað.

Verður þó athyglisvert að sjá hvernig þetta verður í framtíðinni þegar leyfin eru embedded við móðurborðin. :-k
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS
Skjámynd

sakaxxx
FanBoy
Póstar: 752
Skráði sig: Fim 24. Jan 2008 16:22
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af sakaxxx »

Hef keypt af malhi online oft og aldrei lennt í neinu veseni

https://www.mlhionline.com
2600k gtx780 16gb

sjónvarps Intel Core2 Quad q6600 @3.0 Gtx660
  ▲
▲ ▲
Skjámynd

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 3981
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af Klemmi »

chaplin skrifaði:
Klemmi skrifaði: Ég efast annars um að mikið af því sem sé í boði sé komið frá stolnum kortum, einfaldlega því ég trúi ekki að fraud-checkið hjá þessum risum sé enn það lélegt að þeir leyfi það að keyptir séu einhverjir hundruðir/þúsundir lykla á sama kortið á stuttum tíma.
Sá eitt svar sem mér fannst passa við þetta.
Ég er að tala um risana Steam, Origin og uPlay :) Trúi ekki að það sé það auðvelt að kaupa nægilega mikið magn af lyklum með stolnum kortum í gegnum þá til að hægt sé að halda G2A og Kinguin gangandi ;)

Annars er það alveg rétt að stutta svarið hjá G2A er fáránlegt :D
www.laptop.is
www.ferdaleit.is
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af GuðjónR »

chaplin skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Gerist varla ódýrara:
http://www.ebay.co.uk/itm/WINDOWS-10-PR ... 0011.m1850
Ef þetta er í raun OEM Scrap, þá fengi ég nákvæmlega ekkert samviskubit, þótt þetta sé bannað svk. Microsoft. Microsoft eru með ömurlegt hreðjartak á markaðinum og nema í algjörum undantekningum þá mega ekki framleiðendur selja tölvur nema það sé Windows leyfi á þeim, þótt það verði aldrei notað.

Verður þó athyglisvert að sjá hvernig þetta verður í framtíðinni þegar leyfin eru embedded við móðurborðin. :-k
Þeir segjast senda þér ónýtt móðurborð í pósti en auðvitað gera þeir það ekki.

Annars þá skilst mér að þeir séu hættir að tengja lykilinn við hardware, þú getur loggað þig inn á Windows accountinn - MSN/SKYPE login og skráð lykillinn á þig. Þannig getur þú afskráð tölvu sem hefur lykil sem þú átt ef þú ert að henda henni eða vilt selja hana án stýrikerfis og átt þá leyfið áfram á þínum Microsoft account. Þ.e. ef ég er að skilja þetta rétt, þ.e. ef þú ert með Retail key.
https://www.windowscentral.com/how-link ... ft-account
og
http://www.makeuseof.com/tag/everything ... duct-keys/
Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4264
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af chaplin »

Klemmi skrifaði:
Ég er að tala um risana Steam, Origin og uPlay :) Trúi ekki að það sé það auðvelt að kaupa nægilega mikið magn af lyklum með stolnum kortum í gegnum þá til að hægt sé að halda G2A og Kinguin gangandi ;)

Annars er það alveg rétt að stutta svarið hjá G2A er fáránlegt :D
Já ég hef enga trú að þeir noti stolin kort við slíkar færslur og finnst mér það í góðu lagi að kaupa á útsölu og hagnast. :)
youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS

isr
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 366
Skráði sig: Sun 18. Apr 2004 12:31
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af isr »

Þegar maður kaupir svona leyfi á netinu, er hann þá sendur eða kemur í tölvupósti.
Skjámynd

vesi
/dev/null
Póstar: 1463
Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af vesi »

isr skrifaði:Þegar maður kaupir svona leyfi á netinu, er hann þá sendur eða kemur í tölvupósti.
Fékk mína í email
MCTS Nov´12
Asus eeePc
Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 3992
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af jonsig »

win7 lokaðist random á mig í 2x skiptið síðan það kom út :D keypt auðvitað. Ég notaði bara kmspico, og fæ nákvæmlega ekkert samviskubit.
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]
Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af GuðjónR »

isr skrifaði:Þegar maður kaupir svona leyfi á netinu, er hann þá sendur eða kemur í tölvupósti.
Ef þú kaupir leyfi á eBay þá færðu pm og email nokkrum sec síðar með lykli sem þú getur sett inn og activate'að.

isr
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 366
Skráði sig: Sun 18. Apr 2004 12:31
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af isr »

Þetta er magnað,setti neflilega upp w 10 á litla borðtölvu í gær og átti ekki lykil,svo ég keypti lykil á ebay núna fyrir nokkrum mínútum á 2,6 pund og er búninn að activera vélina.
Skjámynd

Urri
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 356
Skráði sig: Þri 21. Jún 2016 19:42
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af Urri »

ég keypti minn á www.kinguin.net
Fractal Design Define R5 Titanium // ASUS X99-A // Intel Core i7-5930K // ASUS GeForce STRIX GTX 980 Ti 6GB
HyperX Predator SSD 480GB M.2 PCIe // HyperX Predator 2400MHz 32GB (4x8GB)
EVGA SuperNOVA 1000 G2, 1000W PSU // Corsair Hydro H100i GTX
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Póstur af GuðjónR »

isr skrifaði:Þetta er magnað,setti neflilega upp w 10 á litla borðtölvu í gær og átti ekki lykil,svo ég keypti lykil á ebay núna fyrir nokkrum mínútum á 2,6 pund og er búninn að activera vélina.
Já, og ef þú lendir á ónothæfum lykli og seljandi vill ekki skaffa nýjan eða endurgreiða þá færðu endurgreitt frá eBay/PayPal.
Áhættan er því engin.
Svara