Nú ætla ég að fara að fjárfesta í lcd skjá og er ég búinn að kíkja á úrvalið og er ég farinn að hallast að 19" Sony (HS94P) í tölvulistanum.
Eru einhverjir með svona skjá eða þekkja einhvað til svona skjás, mér hefur skilst að í lcd skjá leitist menn við að hafa litla baklýsingu eða (250) en á þessum skjá er (400) en á móti kemur þessi nýja tækni frá sony sem er X-black tækni þekkja einhverjir inná þetta mál.
Sony hafa í gegnum tíðina gert slappa LCD skjái. Hvort það hafi eitthvað breyst núna veit ég ekki en ég myndi skoða flesta aðra kosti vel áður en ég keypti mér Sony LCD skjá.
Það er annað með CRT-skjáina. Þeir búa til langbesta CRT-skjáinn; Sony Artisan. En hann kostar.