Vantar DVI snúru í RGB (sjá mynd)
-
Höfundur - Gúrú
- Póstar: 539
- Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
- Staða: Ótengdur
Vantar DVI snúru í RGB (sjá mynd)
Vantar svona snúru eins og er á myndinni. Ef einhver á svona og vantar að losna við þá má hinn sami láta mig vita
- Viðhengi
-
- s-l500.jpg (21.73 KiB) Skoðað 629 sinnum
Re: Vantar DVI snúru í RGB (sjá mynd)
Má ég forvitnast fyrir hvað þetta er?
-
Höfundur - Gúrú
- Póstar: 539
- Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar DVI snúru í RGB (sjá mynd)
Ætla að reyna að koma hdmi merki og hljóði inná "gamalt" sjonvarp sem er ekki með HDMI tengi en er með DVI og RCA hljóð inngang. Er með HDMI í RGB breyti þannig að þetta er smá tilrauna starfsemihagur skrifaði:Má ég forvitnast fyrir hvað þetta er?

Re: Vantar DVI snúru í RGB (sjá mynd)
Skilðig .... ég held ég geti sagt þér strax að þetta virki ekki með svona einföldum kapli. Þarftu bara ekki að fá þér HDMI -> DVI adapter? Þá ættirðu að vera kominn með myndina amk. Svo spurning um að taka hljóðið með öðrum leiðum ef source device býður uppá það.
Önnur leið væri að fjárfesta í HDMI -> DVI/RCA converter boxi, t.d svona: https://www.amazon.com/Converter-Digita ... B00FCYKO8W
Önnur leið væri að fjárfesta í HDMI -> DVI/RCA converter boxi, t.d svona: https://www.amazon.com/Converter-Digita ... B00FCYKO8W
-
Höfundur - Gúrú
- Póstar: 539
- Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar DVI snúru í RGB (sjá mynd)
Heyrðu þú reddaðir mér alveg með þessari hugmynd/tillögu.hagur skrifaði:Skilðig .... ég held ég geti sagt þér strax að þetta virki ekki með svona einföldum kapli. Þarftu bara ekki að fá þér HDMI -> DVI adapter? Þá ættirðu að vera kominn með myndina amk. Svo spurning um að taka hljóðið með öðrum leiðum ef source device býður uppá það.
Önnur leið væri að fjárfesta í HDMI -> DVI/RCA converter boxi, t.d svona: https://www.amazon.com/Converter-Digita ... B00FCYKO8W

Vantaði nefnilega lausn á þessu vandamáli fyrir næstu helgi og var því brunninn inná tíma með þetta.... að ég hélt. Hefði pantað eitthvað af eBay ef ég hefði haft tíma en var búinn að steingleyma Amazon og international fast shipping hjá þeim. Fór reyndar aðeins ódýrari leið og pantaði þetta:
https://www.amazon.com/gp/product/B00KB ... UTF8&psc=1
Pantaði þetta í dag og fæ þetta á föstudaginn og borgaði ekki nema rétt um 6þús sem var svona nokkurnveginn á því budgeti sem ég var búinn að hugsa mér í þetta fikt.
Það eru svona tengi á sjónvarpinu RCA og AV innganur þannig að ég ætti að vera helv góður. Þannig að ég get verið góður næstu tvær vikurnar á næturvöktunum í sauðburðinum og glápt á PLEX á meðan

Re: Vantar DVI snúru í RGB (sjá mynd)
Ertu ekki að fara alltof flókna leið að þessu fyrir lakari gæði? En svosem nógu gott til að vera með í fjárhúsinu 

Kóði: Velja allt
"There's an adapter for that"
Re: Vantar DVI snúru í RGB (sjá mynd)
Hugsa að það gangi ekki að nota HDMI í DVI breyti. HDMI er pure digital merki en RGB er pure analog merki. Það sem gæti gengið er að fá HDMI í VGA breyti (VGA er analog) og síðan VGA í RGB kapal. Stóra spurningin er hvort inngangurinn á sjónvarpinu sé RCA eða BNC. Ég á bæði HDMI-VGA breytistykki og VGA-BNC (Y/Pb/Cb/Pr/Cr) kapal. Þetta gæti virkað fyrir þig. Ef sjónvarpið er með RCA tenglum þá þyrftir þú að verða þér út um BNC-RCA breyta.
Re: Vantar DVI snúru í RGB (sjá mynd)
DVI stendur fyrir digital video stream og því myndi maður ætla að sjónvarp með DVI sé ekki takmarkað við RGB þrátt fyrir að DVI geti flutt analog merki. Því þá væri eðlilegra að sjónvarpið væri með VGA tengi. Hinsvegar er aldrei gott að giska á svona því er alltaf best að finna service manual fyrir sjónvarpið sem maður er að eiga við.
Kóði: Velja allt
"There's an adapter for that"