Ok, ég þarf að kaupa mér þvottavél og fór í Elkó og skoðaði og fékk hálfgert áfall. Það eru tugir þvottavéla í boði. Ég meina, hví svo margir valkostir? Eina sem þetta þarf að gera er að ÞVO!
Hefur einhver vit á þessu? Kannski rangur staðurinn að spyrja, á forumi fullu af körlum. Ég kann varla á stillingarnar á gömlu þvottavélinni, eina sem ég kann er að ýta á "start" og svo bíða. þannig að maður er ekki að leita að neinu fullkomnu, bara einföldu sem "does its job", 50-60k verð.
Ég er með þessa líka (reyndar vélina með glæru hurðinni sem var módelið á undan þessari) en við erum líka 5 og stundum 6 á heimilinu og þvoum á hverjum degi, stundum nokkrar vélar.
Appel er einn þannig að 7KG vélin er feikinóg, hugsa að hann þyrfti ekki að setja oftar en 1-2x í viku í vél, "hljóðlát" vél er það sem hann þarf og þessar vélar eru eins silent og hugsast getur.

það er mikið rétt einn einstaklingur getur alveg njótið þessa vél sem þú varst að benda til .
Asrock X570 Taichi - Ryzen 7-3800X @ 4.6 ghz - G.Skill 16GB (2x8GB) Trident Z 3600MHz - be quiet! Dark Power Pro 11 850W - GTX3080 Samsung 950pro 256Gb/Vatnskælt - Samsung 960Pro 512Gb Raid0 - 2Tb Samsung 1TB 970 EVO CUSTOM Vökva KælingC.A.S.E.L.A.B.S
Ekki taka þessu ílla en mikið rosalega eru margir karlmenn með skoðun á þessu, miðað við að það eru konurnar sem munu ákveða hvaða þvottavél verður keypt,
þetta er sagt án ábyrgðar og já konan valdi þvottavélina sína (okkar)
Fólk sem stamar er ekki heimskt eða vanþroskað, það bara laggar
einarbjorn skrifaði:Ekki taka þessu ílla en mikið rosalega eru margir karlmenn með skoðun á þessu, miðað við að það eru konurnar sem munu ákveða hvaða þvottavél verður keypt,
þetta er sagt án ábyrgðar og já konan valdi þvottavélina sína (okkar)
Það þarf nú ekkert endilega að vera þannig, ég valdi þvottavélina okkar og það er ekkert síður mitt hlutverk en konunnar að þvo þvottinn, þó ég setji líklega ekki eins oft í vélina og hún.
Þar sem að þetta er raftæki þá vel ég þetta á mínu heimili. Konan má velja hvaða dúkur er á eldhúsborðinu og hvaða púðar eru í sófanum stofunni en ég sé um öll raftæki kvort sem það er síminn hennar, hárþurkan, kaffivélin eða þvottavélin.
Kolalaus mótor? Eru kol í mótorum? Ég er samt enn litlu nær, kannski maður láti á það reyna að spyrja ráðleggingar í búðinni og treysta að þeir séu ekki að reyna selja mér eitthvað drasl sem þeir eru að reyna losna við.
appel skrifaði:Kolalaus mótor? Eru kol í mótorum? Ég er samt enn litlu nær, kannski maður láti á það reyna að spyrja ráðleggingar í búðinni og treysta að þeir séu ekki að reyna selja mér eitthvað drasl sem þeir eru að reyna losna við.
Jebb. Neistinn sem maður sér í borvélum og slíku kemur úr kolunum. Kolin nuddast á rótornum og eyðast með tímanum.
Kolin í nútíma vélum endast vanalega álíka lengi og vélin sjálf þannig þú ættir ekki að velja vélina eftir því.
Reyndist ágætlega þegar ég leigði í bænum að það var vél í sameigninni sem tók 11kg þannig ég gat þvegið og þurrkað sængina og hún var eins og ný.
Kolalaus mótor er eitthvað sem þú skalt stefna á.
Var búinn að vera með vél í 10 ár sem voru með kolum og þurfti allavega einu sinni að skipta um kol hjá mér og einu sinni hjá tengdó sem var með eins vél. Þó svo að það sé alveg hægt að skipta up þetta sjálfur þá er gott að vera laus við það.
Svo fór legan í tromlunni á báðum vélum á svipuðum tíma. Þetta eru samantekin ráð hjá þessum stóru framleiðendum um að svona tæki eiga ekki að endast nema x langan tíma.
Það var eitthvað documentary um þetta á sínum tíma.. allt sem maður kaupir núna er einnota.
Ég fór í þessa: http://ht.is/product/thvottavel-1400sn-8kg-zen
Kannski full mikið fyrir þig er að þú ert einn.
appel skrifaði:Kolalaus mótor? Eru kol í mótorum? Ég er samt enn litlu nær, kannski maður láti á það reyna að spyrja ráðleggingar í búðinni og treysta að þeir séu ekki að reyna selja mér eitthvað drasl sem þeir eru að reyna losna við.
Þú getur líka keypt Miele vélina sem kostar 100% meira og er gefin upp fyrir 10.000 þvotta.
Miðað við að þú setjir í tvær vélar á viku þá endist hún þér í 100 ár.
Annars þá grunar mig að tæki í dag séu forrituð þannig að þau eigi að endast í c.a. 10 ár óháð notkun, enda lítill business að búa til tæki sem endast lengur.
Fyrir mig þegar ég var ða horfa á þetta ( keypti Samsung ) var þetta Samsung, AEG, Siemens sem kom til greina hjá mér einhvern megin ( eftir vonda reynslu af Hotpoint ). Þeir eru einmitt með lagersölu í Síðumúlanum ( bakhúsinu fyrir aftan Samsung setrið ) og ég sá þvottavélar ( en enga þurrkara þegar ég fór allavega ) á mjög fínu verði frá Zanussi, Samsung og AEG.
Þetta er last-season útlitið en ég á svona Samsung vél sem þeir eru að selja og er mjög ánægður með hana. Afslátturinn er alveg ágætlega myndarlegur, en þeir eru ekki með nein af þessum verðum á netinu.
einarbjorn skrifaði:Ekki taka þessu ílla en mikið rosalega eru margir karlmenn með skoðun á þessu, miðað við að það eru konurnar sem munu ákveða hvaða þvottavél verður keypt,
þetta er sagt án ábyrgðar og já konan valdi þvottavélina sína (okkar)
Það er líka hægt að sleppa því að lifa á árinu 1960 og nota þvottavélina á heimilinu
En já ég tæki sjálfur líklegast samsung vélina sem að Guðjón linkaði á.
Sæll.
Ég hef unnið hjá fasteignafélgi til 8 ára og við erum með um 80 þvottavélar og þurrkara.
Það eina sem við kaupum núna er Samsung þvottavélar, þær bila minnst.
AEG var málið en eftir að Electrolux keypti þá hafa gæðin farið niðurávið.
Vona að þetta hjálpi.
Ég er sjálfur með samsung.
CM Scout 2 | | | Corsair RM850x
G.Skill 2x8GB Trident Z 3200Mhz | Samsung 870 EVO plus M.2 1TB |
Snikkari skrifaði:Sæll.
Ég hef unnið hjá fasteignafélgi til 8 ára og við erum með um 80 þvottavélar og þurrkara.
Það eina sem við kaupum núna er Samsung þvottavélar, þær bila minnst.
AEG var málið en eftir að Electrolux keypti þá hafa gæðin farið niðurávið.
Vona að þetta hjálpi.
Ég er sjálfur með samsung.
Samsung eru snillingar í öllu held ég bara tek þá sterklega til greina.