búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.

Allt utan efnis
Svara

Höfundur
bu11d0g
Græningi
Póstar: 39
Skráði sig: Þri 17. Feb 2015 13:24
Staða: Ótengdur

búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.

Póstur af bu11d0g »

Er einhver hérna sem kann að búa til subtitles út frá textaskrá þ.e.a.s. ef ég er með videoskrá eins og þátt get ég ekki notað eitthvað forrit til þess að búa til texta við þáttinn ?
Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2179
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Staða: Ótengdur

Re: búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.

Póstur af kizi86 »

http://www.makeuseof.com/tag/subtitles- ... r-aegisub/ þetta aegisub virðist vera einfalt..
AsRock TRX40 Taichi AMD Threadripper 3960X Asus GTX 980OC Strix 4GB G.Skill (4x8GB) Trident Neo 3600MHz DDR4 Western Digital RED 4TB stýrikerfi: 2x Corsair MP600 1TB raid0 50" Panasonic Plasma TV WD RED 4TB

Höfundur
bu11d0g
Græningi
Póstar: 39
Skráði sig: Þri 17. Feb 2015 13:24
Staða: Ótengdur

Re: búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.

Póstur af bu11d0g »

ég meina ef ég er með video getur það ekki tekið audio-ið úr því og búið til srt skrá þarf að gera þetta allt handvirkt ?

Hyrrokkin
Nýliði
Póstar: 22
Skráði sig: Mið 16. Jan 2008 15:25
Staða: Ótengdur

Re: búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.

Póstur af Hyrrokkin »

Ef að það er softsub (sem er oftast í nýlegri útgáfum) þá er hægt að ná honum út með til dæmis mkvtoolnix. (Virkar með langflestar nýrri skráargerðir) Svo er hægt að breyta honum eins og kizi86 benti á með Aegisub.

Ef það er hardsub (textinn skrifaður ofan á myndbandið, oftast gert í .avi skrám) þá er mun leiðinlegra að ná honum út. Ég veit að það eru til forrit sem 'horfa' á allt myndbandið og lesa textann eftir fremsta magni en það getur verið óáreiðanlegt eins og annað sjálfvirkt. Ef þetta er styttra myndband er líklegra einfaldara að skrifa textann bara upp aftur þar sem þú munt líklega þurfa að fara yfir hann allan ef þú ferð þessa leið...
Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2179
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Staða: Ótengdur

Re: búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.

Póstur af kizi86 »

ertu að meina forrit sem tekur hljóðið úr vidjói og breytir því sjálfkrafa yfir í texta? svona speech to text? ef ert með vidjó sem er með einhverri tónlist líka í bakgrunninum og umhverfishljóðum held ég það sé varla hægt..
AsRock TRX40 Taichi AMD Threadripper 3960X Asus GTX 980OC Strix 4GB G.Skill (4x8GB) Trident Neo 3600MHz DDR4 Western Digital RED 4TB stýrikerfi: 2x Corsair MP600 1TB raid0 50" Panasonic Plasma TV WD RED 4TB
Skjámynd

DoofuZ
1+1=10
Póstar: 1103
Skráði sig: Lau 30. Okt 2004 16:02
Staðsetning: Rivertown
Staða: Ótengdur

Re: búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.

Póstur af DoofuZ »

Ef þig vantar textaskrá fyrir eitthvað efni sem er ekki íslenskt þá geturu nálgast tilbúnar textaskrár á annað hvort addic7ed.com eða subtitleseeker.com. Svo er líka til addon fyrir VLC spilarann sem hjálpar manni að nálgast textaskrár fyrir það sem maður ætlar að horfa á frá þessum síðum.
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]
Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2179
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Staða: Ótengdur

Re: búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.

Póstur af kizi86 »

DoofuZ skrifaði:Ef þig vantar textaskrá fyrir eitthvað efni sem er ekki íslenskt þá geturu nálgast tilbúnar textaskrár á annað hvort addic7ed.com eða subtitleseeker.com. Svo er líka til addon fyrir VLC spilarann sem hjálpar manni að nálgast textaskrár fyrir það sem maður ætlar að horfa á frá þessum síðum.
eða nota bara MEdia PLayer classic home cinema edition, ýtir bara á "D" og þá opnast gluggi þar sem getur downloadað texta fyrir skránna sem ert að spila, þarft ekkert auka addon:D er built inn í mpc HC