Sælt verið fólkið.
Gæti einhver litið yfir þetta build hjá mér? Passar þetta ekki alveg örugglega allt saman og svona
CPU: Intel Core i5-6600K 3.5GHz Quad-Core Processor (44.900 kr. @ Start) - Keypt
CPU Cooler: Corsair H100i GTX 70.7 CFM Liquid CPU Cooler - Keypt
Motherboard: Asus Z170M-PLUS Micro ATX LGA1151 Motherboard (23.900 kr. @ Start) - Keypt
Memory: Crucial BallistiX Sport 16GB (2 x 8GB) DDR4-2400 Memory (25.890 kr. @ Tölvutækni) - Keypt
Storage: Samsung 850 EVO-Series 500GB 2.5" Solid State Drive (32.900 kr. @ Tölvutækni) - Keypt
Storage: Seagate Desktop HDD 4TB 3.5" 5900RPM Internal Hard Drive (23.900 kr. @ Tölvutækni) - Keypt
Video Card: Gigabyte GeForce GTX 970 4GB WINDFORCE 3X G1 Gaming Video Card (69.990 kr. @ Start) - Keypt
Case: Fractal Design Core 1500 MicroATX Mini Tower Case (14.900 kr. @ Tölvuvirkni) - Keypt
Power Supply: Corsair RM 550W 80+ Gold Certified Fully-Modular ATX Power Supply (21.950 kr. @ att.is) - Keypt
Total: 258.240 kr.
Ég mun overclock-a og mig langar í GTX 970 frekar en R9 390 af því ég veit það ekki
Takktakk
Lítil leikja-/sjónvarpstölva
Lítil leikja-/sjónvarpstölva
Last edited by Sennapy on Lau 21. Nóv 2015 18:41, edited 2 times in total.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 1197
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Lítil leikja-/sjónvarpstölva
Þetta lúkkar bara sem nokkuð flott samsetning hjá þér Persónulega myndi ég freistast til að gramsa í sparibaukum og leita að 15þ. kalli til að geta sett i7 örgjörva í staðinn fyrir i5, en ekki víst að þú hafir nokkuð við i7 að gera sjálfur. Gætir sparað annarsstaðar með því að taka t.d. 250GB SSD í staðinn fyrir 500GB. 250GB undir system disk er feikinóg nema þú þurfir að geyma megnið af leikjasafninu á SSD disknum.
Re: Lítil leikja-/sjónvarpstölva
Takk fyrir Ég held einmitt að ég hafi of lítið að gera við hyperthreading til að rökstyðja i7 kaup, þótt þau séu alltaf freistandi
Þetta myndband finnst mér obligatory í þessum pælingum
Þetta myndband finnst mér obligatory í þessum pælingum
Re: Lítil leikja-/sjónvarpstölva
Passar skjakortið í þennan kassa? Það er eina sem gæti verið issue.
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2976 þetta er minna
Annars er þetta næstum sama build og ég var að pæla í.
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2976 þetta er minna
Annars er þetta næstum sama build og ég var að pæla í.
Ryzen 7 2700X||Gigabyte Gaming 1080ti||X470 Gaming 7||Corsair Vengeance 16GB 3600MHz||850 PRO 265 GB||
NVMe 960 EVO 500 GB||Predator XB1 1440p 144Hz
NVMe 960 EVO 500 GB||Predator XB1 1440p 144Hz
Re: Lítil leikja-/sjónvarpstölva
Persónulega myndi ég taka stærri Aflgjafa þar sem í framtíðinni ef þú ætlar að uppfæra td skjákort gætir þú þurft stærra enn 550W þessi gæti dugakð fyrir skjákort með "recomended PSU 600-650W" enn ekki mikið stærra
Re: Lítil leikja-/sjónvarpstölva
@elvarb7: Jú, það ætti að sleppa. Takk samt fyrir ábendinguna Kassinn rúmar allt uppí 380mm kort, en Gigabyte gefur 299mm á þessu korti. Verður líklega ekki vandamál fyrr en maður er kominn í mini-ITX kassana.
@se94li: Já það er pæling. 650W útgáfan er ekki mikið dýrari. Takk fyrir ábendinguna, ég skoða þetta
@se94li: Já það er pæling. 650W útgáfan er ekki mikið dýrari. Takk fyrir ábendinguna, ég skoða þetta
Re: Lítil leikja-/sjónvarpstölva
Tölvan er komin! Ég beið í 3 vikur eftir örgjörvanum hjá Tölvutækni en gafst svo upp og keypti hann í Start. Allt er að virka fínt saman og ég vil sérstaklega mæla með þessum kassa. Ég overclockaði 3,5->4,3 GHZ með peak CPU temperature 63°C undir álagi. Ég prófa mögulega að fara hærra síðar. Takk allir!