Hann er sjálfur búinn að segja að þessar gæsalappir hafi ekki haft neina sérstaka merkingu í hans huga.Gúrú skrifaði: Talandi um það sem hann segir orðrétt, taktu eftir því hvernig seinna tilfellið af "íslenskir múslimar" er í gæsalöppum.
Þetta er ómerkilegt að öðru leyti en því að þetta gerir skýrt að hann telur ekki til íslenskra múslima þá sem hafa (theoretically) farið
í þjálfunarbúðir hryðjuverkamanna. Þeir eru "íslenskir múslimar" ólíkt íslenskum múslimum.
Ég er sammála ýmsu sem þú segir, en hættu að reyna að lesa eitthvað meira út úr því sem hann skrifar heldur en raunverulega stendur.
Ásmundur er hræddur um að innan raða múslima leynist einstaklingar sem eru þjóðinni hættulegir. Að þeim sökum finnst honum að það megi velta fyrir sér að kanna betur bakgrunn þeirra heldur en annara þjóðfélagshópa. Slíkt eru ofsóknir gagnvart minnihlutahópum, þar sem um ræðir að minnihlutahópur er sviptur mannréttindum sem aðrir borgarar hafa.
Það að þingmaður láti út úr sér að honum finnist eðlilegt að íhuga slíkt er slæmt, hvort sem það er gert á facebook vegg eða í pontu á þingi.