Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Allt utan efnis
Skjámynd

natti
Tölvutryllir
Póstar: 623
Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
Staðsetning: 107
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af natti »

emmi skrifaði:Þeir tala líka um að hindra aðgang að IPtölum sem vísa á fyrrnefndar vefsíður.
Fer eftir því hvernig ISPinn ætlar að loka á þetta....
dómurinn skrifaði: Við upphaf aðalmeðferðar máls þessa féll sóknaraðili frá síðastgreindum hluta kröfu sinnar, þ.e. hvað það varðar að lagt yrði fyrir varnaraðila að hindra allan gagnaflutning að og frá svonefndum IP-tölum sem vísuðu á vefsíðurnar. Að mati dómsins verður ekki annað ráðið en að síðari hluti endalegrar kröfu sóknaraðila, þ.e. sú krafa að að lagt verði fyrir varnaraðila að grípa til nauðsynlegra ráðstafana, felist í fyrsta hluta kröfunnar um lögbann. Það er síðan undir varnaraðila komið með hvaða hætti hann hlítir lögbanninu en honum munu nokkrir vegir vera færir í þeim efnum. Verður því síðari hluta kröfu sóknaraðila vísað frá dómi af sjálfsdáðum.
Mkay.
Skjámynd

jojoharalds
Bara að hanga
Póstar: 1591
Skráði sig: Þri 02. Nóv 2010 20:42
Staðsetning: Cicada - 3301
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af jojoharalds »

KermitTheFrog skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Netið verður alltaf ritskoðara og ritskoðara...
Slæm þróun.
Því gamlir fýlupokar skilja ekki hvernig það virkar.

Djöfullinn er ég sammála þér .
Asrock X570 Taichi - Ryzen 7-3800X @ 4.6 ghz -
G.Skill 16GB (2x8GB) Trident Z 3600MHz - be quiet! Dark Power Pro 11 850W - GTX3080
Samsung 950pro 256Gb/Vatnskælt - Samsung 960Pro 512Gb Raid0 - 2Tb Samsung 1TB 970 EVO CUSTOM Vökva Kæling C.A.S.E.L.A.B.S
Skjámynd

rango
FanBoy
Póstar: 785
Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
Staðsetning: 404 - Location Not found.
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af rango »

Bjosep skrifaði:
rango skrifaði:Mér finst ekki tilviljun að þetta komi rétt eftir að isnic stúti léni isis og líka í raun rétt áður enn netflix kemur til íslands.
Þetta er reyndar eins mikil tilviljun og það gerist. Heldurðu að stofnandi khilafah.is hafi verið að fylgjast með íslenskum dómsmálum og ákveðið að fjárfesta í léni með .is endinguna rétt áður en dómur félli varðandi lögbannskröfu stef?
Er netflix á leiðinni til landsins ?
Já Það væntanlega er tilviljun ég var aðalega að tala um að einhvað svona "óvinnanlegt" og tilgangslaust mál kæmi sem undafari einhvers eins og nf.
Afkverju bara hringdu og vodaphone? Er þetta ekki bara publicity stunt?
Stutturdreki skrifaði:
rango skrifaði:.. rétt áður enn netflix kemur til íslands.
Eh? Missti ég af einhverju?
Sel það ekki dýrara enn ég kaupi það.
Enn það er samt eflaust ýking að segja "rétt áður"
ef satt reynist þá eru þýðingar og annað fyrir netflix í undirbúningi.
Skjámynd

Sallarólegur
Internetsérfræðingur
Póstar: 6350
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Staðsetning: https://viktor.ms
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af Sallarólegur »

Jæja... ég er hjá Vodafone. Hvernig ætli það sé best að fara framhjá þessu?
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD

G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless

Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz

EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6079
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af worghal »

fyndið hvað það er alltaf talað um það hvað þessir aðilar, stef og co, séu í einhverjum svaka mínus útaf þessum síðum.
fjárhagslegt tap hér og þar og þannig, en þegar upp er staðið þá eru þessi fyrirtæki í bullandi plús og geta á engann hátt sannað að um raunverulegt tap sé að ræða.

þeir einfaldlega geta ekki sannað fram á þetta ímyndaða tap sitt og þá sérstaklega þegar þeir eru í plús ár eftir ár.

til dæmis er hollywood að slá met í gróða ár eftir ár.

samkvæmt ársreikningum STEF.
--Ár---Innheimtutekjur----Hreinar Tekjur----Bankainnistæður--
2010 - 531.514.288 -------- 426.938.058 -------- 85.816.883
2011 - 538.773.228 -------- 413.436.263 -------- 92.200.072
2012 - 566.076.299 -------- 449.153.305 -------- 111.793.311
2013 - 577.677.561 -------- 467.867.196 -------- 138.500.772

eina árið sem er ekki í plús fram yfir hin er 2011 en þar var launa aukning upp á 16 miljónir frá 2010.
á milli 2010 og 2013 þá var heildar launa aukning upp á ~20 miljónir.
veit ekki hvort þetta tengist hækkun launa eða aukning nýrra starfsmanna.
http://www.stef.is/media/vefmyndir/stef ... ningur.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.stef.is/media/vefmyndir/stef ... masida.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;
http://www.stef.is/media/vefmyndir/stef ... s-2013.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;
mér sýnist það vanta síðustu blaðsíðuna í ársreikning 2013 til að vera með 100% samanburð milli ára.


hérna er líka skemmtileg klausa úr árskýrslu STEF 2013.
þetta á kanski ekki heima hérna í þessum þræði en mér fannst þetta fyndið.
Fundur með biskupi Íslands skrifaði: Framkvæmdastjóri og skrifstofustjóri áttu fund með biskupi Íslands þar sem óskað var
eftir samstarfi við embættið varðandi þrýsting á ríkissjóð um að hækka greiðslur vegna
opinbers flutnings tónlistar í kirkjustarfi. Um árabil greiddi ríkissjóður 1 milljón kr.
vegna slíks flutnings, en eftir hrun var greiðsla þessi lækkuð einhliða niður í 900
þúsund. Stendur hún enn í þessari fjárhæð. Ljóst er að fjárhæð þessi er í engum
tengslum við magn tónlistarflutnings sem fram fer í guðsþjónustum og kirkjustarfi.
Þá berað líta til þess að ef upphafleg greiðsla kr. 1 milljón hefði fylgt verðlagsþróun næmi
hún nú um 1250 þúsundum kr.
http://www.stef.is/media/vefmyndir/stef ... a-2014.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;

einnig er 5. liður þarna mjög áhugaverður og snertir síðasta lögbannsmál sem STEF og félagar settu fram.
Last edited by worghal on Þri 14. Okt 2014 16:56, edited 1 time in total.
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
Skjámynd

Stutturdreki
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1629
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af Stutturdreki »

Sallarólegur skrifaði:Jæja... ég er hjá Vodafone. Hvernig ætli það sé best að fara framhjá þessu?
Hola Better Internet er líklega einfaldast.
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af appel »

Mjög áhugavert að sjá hvað gerist ef það verður sett lögbann á þessar síður, og svo hvað gerist í framhaldinu af því, munu STEF geta fengið beint lögbann á allskyns síður í framtíðinni án þess að fara með málið fyrir dómsstóla, þ.e. útaf því að komið er fordæmi?
*-*

MrIce
Gúrú
Póstar: 538
Skráði sig: Þri 04. Des 2007 14:08
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af MrIce »

hvenær ætli þeir fari þá að banna youtube? það er allskonar íslenskt efni þar... ljóti skrípaleikurinn sem þetta er.....
-Need more computer stuff-
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af appel »

MrIce skrifaði:hvenær ætli þeir fari þá að banna youtube? það er allskonar íslenskt efni þar... ljóti skrípaleikurinn sem þetta er.....
Það er góð spurning. Það er fullt af höfundarréttarvörðu efni á Youtube.
*-*
Skjámynd

Skaz
Fiktari
Póstar: 96
Skráði sig: Lau 14. Sep 2013 01:48
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af Skaz »

MrIce skrifaði:hvenær ætli þeir fari þá að banna youtube? það er allskonar íslenskt efni þar... ljóti skrípaleikurinn sem þetta er.....
Reyndar eins og dómurinn er orðaður þá ætti einhver að prófa þetta.
Og athuga hvað myndi líða langur tími áður en allt yrði vitlaust :twisted:

Málið er að lagabókstafurinn er ekki að fylgja tækninni og þeirri billjón og einni útfærslu sem að er til á því að koma efni í dreifingu. NB. er ekki að meina Deildu og Piratebay, það eru grá svæði í besta falli ;)

En veitur eins og Spotify, Netflix, Youtube og jafnvel live dæmi eins og Twitch. Það er allt sett í sama pott. Íslensk tónlist undir í einhverju streami? Lögbann!

benediktkr
Ofur-Nörd
Póstar: 279
Skráði sig: Fim 16. Feb 2012 20:41
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af benediktkr »

rango skrifaði:deildupointer.udc.is > deildu.co.uk
deildu.fjeldsted.is > 37.187.74.47
Bætti aðeins í úrvalið

http://deildu.lokun.is/" onclick="window.open(this.href);return false;
http://tpb.lokun.is/" onclick="window.open(this.href);return false;
Skjámynd

norex94
has spoken...
Póstar: 196
Skráði sig: Lau 25. Ágú 2012 14:54
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af norex94 »

benediktkr skrifaði:
rango skrifaði:deildupointer.udc.is > deildu.co.uk
deildu.fjeldsted.is > 37.187.74.47
Bætti aðeins í úrvalið

http://deildu.lokun.is/" onclick="window.open(this.href);return false;
http://tpb.lokun.is/" onclick="window.open(this.href);return false;
Það er nóg af þessu til! :)

http://deildu.us/" onclick="window.open(this.href);return false;
http://deildu.nl/" onclick="window.open(this.href);return false;
http://afghanpirate.com/" onclick="window.open(this.href);return false;

benediktkr
Ofur-Nörd
Póstar: 279
Skráði sig: Fim 16. Feb 2012 20:41
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af benediktkr »

Nákvæmlega, krafturinn liggur í fjöldanum. Sýnir bara vel hvernig það er ekki hægt að ritskoða internetið með lögbanni. Því fleiri svona reverse proxyar sem það er til - því betra. :)
Skjámynd

Xberg
has spoken...
Póstar: 158
Skráði sig: Sun 12. Feb 2012 02:16
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af Xberg »

Fyrst þeir eru farnir að loka á sumar síður og banna okkur að fara inn á aðrar, afhverju reina þeir þá ekki að loka á sorasíður eins og chansluts og ask sem er að hafa mjög slæm áhrif á margar ungar sálir í landinu, enn ekki bara eitthvað fyrir einhver skíta fyrirtæki sem synda í seðlum og kampavíni.
Pc 1: CPU: FM1 X4 A6-3650 Quad@2.6.GHz * Cooling: 92.mm 2x4.pipe * Móbo: FM1 GA-A75-D3H * 8GB DDR3 1600MHz 2x4GB * 120GB SSD * 40" FuLL HD
PC 2: CPU: AM3+ X8 FX-8350@4.2.GHz * Cooling: 2x120mm 2x6.pipe * Móbo: AM3 GA-970A-UD3 * 16GB DDR3 1600MHz 2x8GB * 120GB SSD + 4x2.Tb * 5x 120.mm Fans
Skjámynd

Stuffz
1+1=10
Póstar: 1103
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
Staðsetning: 104 Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af Stuffz »

GuðjónR skrifaði:Netið verður alltaf ritskoðara og ritskoðara...
Slæm þróun.
bara taka forkólfar slíkrar þróunar fyrir og rasskella duglega, þetta eru oft ekki mjög hugaðir aðilar heldur einmitt hugleysingjar sem reyna að beita öðrum fyrir sig sem verkfæri.

Minuz1 skrifaði:http://proxybay.info/ Þessar líka?

If there's a will...there is a way.
já en þú bara málar þig meira útí horn (underground) sem er ekki gott.


Þetta er pólitík í þessu og ég varaði menn við að leyfa Íslenskt efni í deilingu á sínum tíma (það er svo viðkvæmt mál), þ.e.a.s ef menn vildu spila SMART úr málum en ekki vera að leika eitthvern "REBEL frá fjarkanistan" =;

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... it=+deildu" onclick="window.open(this.href);return false;
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... it=+deildu" onclick="window.open(this.href);return false;
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f ... it=+deildu" onclick="window.open(this.href);return false;


Það hefur enginn leyfi til að skemma fyrir hagsmunum Jafningjaneta á Íslandi, menn verða að stilla frelsinu í hóf, ellegar mun óhófið verða öllu til bölvunar.
Last edited by Stuffz on Þri 14. Okt 2014 19:46, edited 1 time in total.
Tölva og Stuffz..
Viðskiptarándýr&bráð.
Skjámynd

Perks
Fiktari
Póstar: 82
Skráði sig: Mið 01. Maí 2013 11:41
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af Perks »

Var lagabókstafurinn að flækjast fyrir verjendum eða eru lögin um verndun á hugverka rétti æðri en réttur einstaklings til frelsis? Ég hélt að það væri "common sense" ventill í dómskerfinu.
600w corsair CX600 V2 | ASRock 990FX Extreme4 | AM3+ Piledriver X8 FX-8350 | Scythe Ninja 3 | Gigabyte R9 390| 2 TB Seagate HDD | 120 GB Samsung Evo SSD | 2x 4GB 1600Mhz Corsair Ven + 2x 8GB Mushkin |
Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3773
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af Tiger »

Ég er svo sem ekki búinn að lesa þetta allt, en afhverju á þetta bara við um Hringdu og Vodafone? Eru þeir hjá símanum undaskildir þessu banni eða?
Mynd
Skjámynd

Orri
Geek
Póstar: 862
Skráði sig: Fim 11. Okt 2007 17:17
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af Orri »

Perks skrifaði:Ég hélt að það væri "common sense" ventill í dómskerfinu.
Hahaha :sleezyjoe
Dan A4 M-ITX - Ryzen 3600XT - EVGA 2080 Super XC Gaming - 32GB DDR4 3200MHz - Gigabyte B550i Aorus Pro AX - 1TB 970 EVO NVMe - LG 38'' 21:9 WQHD+ IPS
Skjámynd

Skaz
Fiktari
Póstar: 96
Skráði sig: Lau 14. Sep 2013 01:48
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af Skaz »

Tiger skrifaði:Ég er svo sem ekki búinn að lesa þetta allt, en afhverju á þetta bara við um Hringdu og Vodafone? Eru þeir hjá símanum undaskildir þessu banni eða?

Held að það hafi bara verið þeir sem að áfrýjuðu lögbannsbeiðninni, annars veit ég það ekki. En úrskurður Héraðsdóms hefur þau áhrif að þar til að Hæstiréttur segir annað þá er þetta fordæmi sem að er erfitt fyrir sýslumenn hérlendis að hunsa og þeir munu væntanlega verða við svipuðum lögbannsbeiðnum í framtíðinni.
Skjámynd

DaRKSTaR
FanBoy
Póstar: 773
Skráði sig: Þri 08. Apr 2003 04:01
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af DaRKSTaR »

skal engum koma á óvart.

meðann menn læra það ekki að láta íslenskt efni vera og sleppa því að deila því á þessum síðum.
I9 10900k | Zotac RTX 3090 Trinity | Samsung Odyssey G7 32" | Corsair H100x | Gigabyte Z490 Aorus Elite | G.SKILL Trident Z 32GB @ 3600mhz | Lian-Li O11 XL ROG | XPG Pro 512GB | Seasonic Focus 850W Gold | Corsair K95 Platinum | Logitech G502 Hero | Steelseries Arctis Pro Wireless | Honda Civic Type R GT 2018
Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6079
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af worghal »

DaRKSTaR skrifaði:skal engum koma á óvart.

meðann menn læra það ekki að láta íslenskt efni vera og sleppa því að deila því á þessum síðum.
af hverju langar fólki að horfa á íslenskt sjónvarpsefni yfir höfuð?
íslenskt sjónvarpsefni er svo ógeðslega leiðinlegt, illa gert og illa skrifað.
CPU: Intel Core i7 6700K MB: Asrock Z170 Extreme4 GPU: Asus GTX 980 Strix RAM: Corsair Vengeance LPX 2x8gb 3200Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Asus Xonar STX - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Bitfenix Shinobi XL
Skjámynd

emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1784
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af emmi »

Málið varðandi Símann og Tal er ennþá í kerfinu, bara tímaspursmál hvenær þetta á við þá líka.
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 5917
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af rapport »

Það sem skiptir máli er af hverju þessar síður eru teknar út fyrir sviga og lokað á þær.

Ég hefði haldið að stærstu höfundaréttarbotasíður sem Íslendingar nota væri YouTube, Vimeo, Soundcloud o.þ.h.

Ekki deildu sem ég t.d. hef aldrei notað.

Ég hef sárasjaldan notað torrent en eins og ég skil það, þá er bara að finna torrentinn þar en svo er allt download frá öðrum.

Það er ekkert ólöglegt við að vísa fólki á hvar eða hvernig það getur brotið lög, það ewr alltaf á ábyrgð fólks ef það gerir það svo.

Ef það er bannað að vísa fólki á torrenta, á þá ekki að banna Google.is líka?

Þeir torrentar sem ég hef notað koma beint af google.

p.p.s.

Þarna þyrfti líka að uppfæra smá ef einhverju verður lokað... http://en.wikipedia.org/wiki/Internet_in_Iceland" onclick="window.open(this.href);return false;


Þetta lögbann gæti orðið meiriháttar skaðabótamál enda um grófa mismunun að ræða gegn sárafáum aðilum.

En Ísland mun s.s. fá það heiður að vera á þessum lista: http://en.wikipedia.org/wiki/Countries_ ... Pirate_Bay" onclick="window.open(this.href);return false;


p.s.

Hvaða listi er þetta...

http://unblocksit.es/country/Iceland/" onclick="window.open(this.href);return false;

Ég hló og hló þegar ég sá að leikjanet væri blokkað á Íslandi...
Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3567
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af dori »

rapport skrifaði: p.s.

Hvaða listi er þetta...

http://unblocksit.es/country/Iceland/" onclick="window.open(this.href);return false;

Ég hló og hló þegar ég sá að leikjanet væri blokkað á Íslandi...
Þessi síða skrifaði:Please note: this list contains site that users in Iceland are commonly unblocking. Site listed here aren't necessarily blocked by the government of Country object.
Er þetta ekki bara HTTP proxy? Fólk sem kemst ekki inná leikjanet í vinnunni...?

hkr
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 23. Jan 2009 14:22
Staða: Ótengdur

Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?

Póstur af hkr »

rapport skrifaði: Hvaða listi er þetta...

http://unblocksit.es/country/Iceland/" onclick="window.open(this.href);return false;

Ég hló og hló þegar ég sá að leikjanet væri blokkað á Íslandi...
Tja, held að flestir skólar blokki á leikjasíður og það útskýrir afhverju leikjanet er þarna.

edit:
deildu.net vísar núna á iceland.pm og báðar síðurnar eru á bakvið cloudflare.
Svara