Er með mjöög gamlan makka sem var notaður undir bókhald.
Ég held að AppleWorks hafi verið notað fyrir þetta bókhald.
Ég náði að henda þessu á nokkra floppy-a og koma þessu á PC með mac-drive (einhver trial útgáfa sem ég fékk á netinu).
Núna vantar mig e-ð forrit til þess að koma þessu á excel eða word format.
Hefur einhver hugmynd um hvað er hægt að nota í þetta?
Þetta eru .wks og .cwk file extension.
Búinn að prófa að opna í word og excel og líka búinn að prófa að breyta bara extensioninu í .doc og .xls

Any ideas?