Vantar straumbreyti fyrir USA rafmagn
Vantar straumbreyti fyrir USA rafmagn
Eins og kemur fram í topic-inu þá vantar mig straumbreyti fyrir hleðslutæki sem gengur bara fyrir 110 rafmagn, er eitthvað sem að þið mælið með frekar en annað?
Re: Vantar straumbreyti fyrir USA rafmagn
Stendur sennilega á hleðslutækinu hvað það dregur mikinn straum(sjá mynd). Þarft svo bara að kaupa þér spennir sem þolir að lámarki þann straum. Þeir ættu að geta reddað þér í íhlutum eða miðbæjarradíó ef þú sýnir þeim hleðslutækið.
Sérð á myndinni stendur fyrir aftan INPUT --- 0.15 A, þyrftir þá að fá þér spenni sem breytir 110V í 220V sem þolir 0.15A á eftirvafinu. Þarft almennt ekki að spá í tíðninni þegar um er að ræða svona búnað.
Sérð á myndinni stendur fyrir aftan INPUT --- 0.15 A, þyrftir þá að fá þér spenni sem breytir 110V í 220V sem þolir 0.15A á eftirvafinu. Þarft almennt ekki að spá í tíðninni þegar um er að ræða svona búnað.
Re: Vantar straumbreyti fyrir USA rafmagn
raaaaaaaaaaangt!!!! samkvæmt þessari mynd sem þú settir inn, þá þarf bara millistykki, þe til að breyta úr bandarískri kló yfir í evrópska, þarf ekki straumbreyti, þar sem þetta sem þú póstaðir styður frá 100 til 240varons4 skrifaði:Stendur sennilega á hleðslutækinu hvað það dregur mikinn straum(sjá mynd). Þarft svo bara að kaupa þér spennir sem þolir að lámarki þann straum. Þeir ættu að geta reddað þér í íhlutum eða miðbæjarradíó ef þú sýnir þeim hleðslutækið.
Sérð á myndinni stendur fyrir aftan INPUT --- 0.15 A, þyrftir þá að fá þér spenni sem breytir 110V í 220V sem þolir 0.15A á eftirvafinu. Þarft almennt ekki að spá í tíðninni þegar um er að ræða svona búnað.
hinsvegar ef stendur bara input: 100-120v þá þarftu spennubreyti
AsRock TRX40 Taichi AMD Threadripper 3960X Asus GTX 980OC Strix 4GB G.Skill (4x8GB) Trident Neo 3600MHz DDR4 Western Digital RED 4TB stýrikerfi: 2x Corsair MP600 1TB raid0 50" Panasonic Plasma TV WD RED 4TB
Re: Vantar straumbreyti fyrir USA rafmagn
Held nú að aron hafi bara verið að nota þessa mynd sem dæmi til að sýna hvernig er hægt að lesa hve mörg amper tækið dregur :-)
-
- Gúrú
- Póstar: 539
- Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
- Staða: Ótengdur
Re: Vantar straumbreyti fyrir USA rafmagn
Svo heitir þetta sem þú ert að óska eftir spennubreytir ekki straumbreytir.
Spenna er td 110-220v
Spenna er td 110-220v