Ekki ef maður bakkar upp nokkur hundruð GB á mánuði, eða notar Plex til að streyma efni út fyrir hús. Það er engin spurning um að með þessu er Síminn að losa sig við alla powerusera.appel skrifaði: Ef ég skil þetta rétt þá er stærsti pakkinn að fara úr 200 gb í 600 gb fyrir nær sama verð, þannig að þú ættir að geta horft á 3x meira Netflix en áður fyrir sama kostnað. Er þaggi?
Síminn telur allt gagnamagn
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 1478
- Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
- Staðsetning: Reykjavík, Iceland
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Þú misskilur. Hvort að þetta sé bara að gerast í B2C eða líka í B2B. Þið verðið að muna að það eru content providerar í viðskiptum við Símann ( t.d. Morgunblaðið og fleirri ) sem senda frá sér gífurlega mikið af gögnum og hafa í raun og veru bara greitt fixed fee fyrir það. Ef Síminn fer að rukka þessi fyrirtæki fyrir innlent upphal gætu þeir misst þó nokkur fyrirtæki.GuðjónR skrifaði:Þú getur alveg bókað það, að Síminn færi aldrei út í svona framkvæmd nema vera fullviss um að hinir geri slíkt hið sama.depill skrifaði:Það verður mest áhugavert hvort að Síminn ætli að gera þetta á móti fyrirtækjum líka, þar sem þá fyrst færi þetta að verða sárt.
Fyrirtæki í fákeppni, hvort sem það eru bankar, olíufélög, byggingavöruverslanir eða fjarskiptafélög rotta sig alltaf saman hvort sem tekst að sanna það eða ekki. Enda hafa þau öll á einhverjum tímapunkti verið tekin til rannsóknar. Viðurlögin eru bara svo slök að það er hagstæðara að fyrir þau að standa saman gegn neytendum og borga hugsanlegar sektir en að spila heiðarlega.
Annars gæti þetta skipt minna og minna máli. Samkeppnisforskot innlendra hýsingaraðila hverfur mikið ef öll fjarskiptafyrirtækin elta þetta.
-
- Nýliði
- Póstar: 7
- Skráði sig: Þri 24. Jún 2003 01:00
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Þurfa þeir þá ekki að rukka fyrir download í Sjónvarpi Símans líka? Ég þarf að borga fyrir download ef ég kaupi af filma.is Ætli samkeppnislög leyfi að fyrirtæki í eigu Símans sé undanskilið þessu?
Re: Síminn telur allt gagnamagn
IPTV er allt annað mál og mun ólíklega verða eð issue meðfram þessu.pathfinder skrifaði:Þurfa þeir þá ekki að rukka fyrir download í Sjónvarpi Símans líka? Ég þarf að borga fyrir download ef ég kaupi af filma.is Ætli samkeppnislög leyfi að fyrirtæki í eigu Símans sé undanskilið þessu?
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Ætli það ekki? IPTV er innlent download, miðað við yfirlýsinguna þá hlýtur það að telja, muna bara að slökkva á IPTV lyklinum þegar þú ert ekki að horfa.pathfinder skrifaði:Þurfa þeir þá ekki að rukka fyrir download í Sjónvarpi Símans líka? Ég þarf að borga fyrir download ef ég kaupi af filma.is Ætli samkeppnislög leyfi að fyrirtæki í eigu Símans sé undanskilið þessu?
Af hverju er ekki hægt að hafa þetta eins og í Svíþjóð? Borgar bara fast gjald og ekkert talið, hvorki innanlands né utan.
-
- Kóngur
- Póstar: 5917
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
GuðjónR skrifaði:Ætli það ekki? IPTV er innlent download, miðað við yfirlýsinguna þá hlýtur það að telja, muna bara að slökkva á IPTV lyklinum þegar þú ert ekki að horfa.pathfinder skrifaði:Þurfa þeir þá ekki að rukka fyrir download í Sjónvarpi Símans líka? Ég þarf að borga fyrir download ef ég kaupi af filma.is Ætli samkeppnislög leyfi að fyrirtæki í eigu Símans sé undanskilið þessu?
Af hverju er ekki hægt að hafa þetta eins og í Svíþjóð? Borgar bara fast gjald og ekkert talið, hvorki innanlands né utan.
Þetta er málið og þá er þetta farið að meika sens.
Hver er breytilegur kostnaður við netnotkun?
Hvað þurfa þeir að borga mikið meira ef utilization á búnaði fer úr 30-40% í dag og upp í 60-70% ?
Ef gagnamagn tvöfaldast, þá eykst kostnaður ekki í sama hlutfalli = bara græðgi.
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Ég hringdi í Hringdu, þar sem ég er í viðskiptum við þá.
Strákurinn sem svaraði mér var bara hissa þegar ég sagði honum hvað síminn væri að gera og sagðist allavega ekki vita af neinum svona breytingum hjá þeim.
Strákurinn sem svaraði mér var bara hissa þegar ég sagði honum hvað síminn væri að gera og sagðist allavega ekki vita af neinum svona breytingum hjá þeim.
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Af því að við erum nokkrar hræður á skeri úti í rassgatiGuðjónR skrifaði: Af hverju er ekki hægt að hafa þetta eins og í Svíþjóð? Borgar bara fast gjald og ekkert talið, hvorki innanlands né utan.
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless
Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz
EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Það að starfsmaður hjá öðrum ISP hafi ekki haft glóru um að þetta hafi verið næst á dagskrá gefur honum ekki beint mikinn trúverðugleika, né ýtir það undir líkurnar á því að hann hafi í raun nokkra hugmynd um hvað sé að gerast á efri stigum fyrirtækisins.snjokaggl skrifaði:Ég hringdi í Hringdu, þar sem ég er í viðskiptum við þá.
Strákurinn sem svaraði mér var bara hissa þegar ég sagði honum hvað síminn væri að gera og sagðist allavega ekki vita af neinum svona breytingum hjá þeim.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
-
- Geek
- Póstar: 835
- Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
GuðjónR skrifaði:Ætli það ekki? IPTV er innlent download, miðað við yfirlýsinguna þá hlýtur það að telja, muna bara að slökkva á IPTV lyklinum þegar þú ert ekki að horfa.pathfinder skrifaði:Þurfa þeir þá ekki að rukka fyrir download í Sjónvarpi Símans líka? Ég þarf að borga fyrir download ef ég kaupi af filma.is Ætli samkeppnislög leyfi að fyrirtæki í eigu Símans sé undanskilið þessu?
Af hverju er ekki hægt að hafa þetta eins og í Svíþjóð? Borgar bara fast gjald og ekkert talið, hvorki innanlands né utan.
IPTV er ekki talið í þessu
CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1020
- Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
- Staðsetning: Reykjanesbær
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Tekið beint af facebook síðu hringdu.
Við viljum vekja athygli á því að Síminn hyggst rukka fyrir allt gagnamagn, bæði innlent og erlent hvort sem það er upphal eða niðurhal frá september 2014. Viðskiptavinir Hringdu þurfa ekki að hafa áhyggjur af slíkum breytingum. Hjá okkur verður áfram einungis erlent niðurhal talið.
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Hvað er verra ef Gagnamagn til dæmis hækkar úr 100GB í 300GB? Ekki downloada ég mikið innanlands
Sjónvarp: Samsung UE49KS8005TXXE Blu-ray spilari: Samsung UBD-K8500XE Magnari: Onkyo TX-NR515 Hátalarar: Jamo S 626 HCS Bassabox: Jamo J 12 SUB Hljóðkerfi: 5.1
Sjónvarp: Samsung UE32K5105AKXXE Blu-ray spilari: Samsung BD-J4500RXE
Sjónvarp: Samsung UE32K5105AKXXE Blu-ray spilari: Samsung BD-J4500RXE
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1903
- Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
það er Klárt mál að maður er farin frá símanum, finna einhvern annan ISP
CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 1478
- Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
- Staðsetning: Reykjavík, Iceland
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
ekki myndi ég þá fara til vodafoneplayman skrifaði:það er Klárt mál að maður er farin frá símanum, finna einhvern annan ISP
http://www.dv.is/neytendur/2014/6/3/siminn-rukkar-fyrir-innlent-nidurhal/ skrifaði: „Þetta er ekkert úr takti við það sem hefur tíðkast víðast hvar um heiminn. Það hefur verið frekar sérstakt að telja eingöngu þetta erlenda niðurhal. En að því sögðu hefur engin ákvörðun verið tekin hér um að fara þessa leið,“ segir Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone, aðspurður hvort Vodafone ætli sér að taka upp sama fyrirkomulag og Síminn.
Hrannar segir að þessi leið Símans geri það að verkum að rukkað verður fyrir internetnotkun með svipuðum hætti og gert er fyrir internetnotkun í gegnum símtæki. „En hvað almennt mun verða get ég ekki sagt, en að sama skapi er ekki hægt að útiloka neitt.“
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 259
- Skráði sig: Mið 12. Feb 2014 12:56
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Viðskiptavinir Hringdu þurfa ekki að hafa áhyggjur af breytingum í takt við það sem Síminn er að gera. Einungis erlent niðurhal verður áfram talið. Að auki speglum við töluvert af efni á innlenda þjóna og er það ekki heldur talið sem erlent gagnamagn.
Fyrir hönd Hringdu,
Egill.
Fyrir hönd Hringdu,
Egill.
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1020
- Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
- Staðsetning: Reykjanesbær
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Sýnist ég vera að fara skipta yfir í Hringdu.
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Ég mun bíða og sjá hvernig þetta reynist hjá TAL ( Þeir fylgja þessu alveg bókað ) sjá hvernig þetta reynist fyrsta mánuðinn (sept) og ef það reynist þörf á að skipta.
En klárt mál er það að ekki fer ég til Hringdu sama hvað.
En klárt mál er það að ekki fer ég til Hringdu sama hvað.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Allt sem þú gerir telur, allt!svanur08 skrifaði:Hvað er verra ef Gagnamagn til dæmis hækkar úr 100GB í 300GB? Ekki downloada ég mikið innanlands
Þegar þú skoðar vaktina þá telur það, þegar þú skoðar fréttamiðla þá telur það, þegar þú hlustar á útvarp í tölvunni þá telur það...
Fólk gerir sér enga grein fyrir því hvað það notar mikla bandvídd í sína daglegu netnotkun.
Þið getið séð notkunina í routernum ykkar, ég restartaði mínum fyrir 4 dögum og segir:
(Sent/Received) [GB/GB]: 3,32 / 89,96
En hringdu.is/gagnamagn
Notkun í júní 2014: 11 GB (þetta eru reyndar bara þrír dagar v.s. 4.5 dagar í router)
Þannig að innanlandsnotkunin er alveg slatti.
-
- Græningi
- Póstar: 41
- Skráði sig: Mið 02. Jan 2013 15:23
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Hrannar segir þetta í samtali við DV. Þá spyr ég, hvar í Evrópu er borgað fyrir niðurhal. Ég hef búið erlendis og það er alla vega ekki á Spáni og Bretlandi sem rukkað er með sama hætti og hér á landi. Þar er ótakmarkað og ekkert talið hjá stærstu fyrirtækjunum alla vega.„Þetta er ekkert úr takti við það sem hefur tíðkast víðast hvar um heiminn. Það hefur verið frekar sérstakt að telja eingöngu þetta erlenda niðurhal. En að því sögðu hefur engin ákvörðun verið tekin hér um að fara þessa leið,“ segir Hrannar Pétursson í samtali við DV,
Er einhver síða á netinu sem heldur utanum upplýsingar varðandi þessi mál?
Re: Síminn telur allt gagnamagn
IPTV er ekki eina dreifingarleið Símans að sjónvarpi. Til að mynda væri sjónvarpsappið sem þeir sjálfir dreifa núna gjaldskylt skv. þessari nýju talningu.Jón Ragnar skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ætli það ekki? IPTV er innlent download, miðað við yfirlýsinguna þá hlýtur það að telja, muna bara að slökkva á IPTV lyklinum þegar þú ert ekki að horfa.pathfinder skrifaði:Þurfa þeir þá ekki að rukka fyrir download í Sjónvarpi Símans líka? Ég þarf að borga fyrir download ef ég kaupi af filma.is Ætli samkeppnislög leyfi að fyrirtæki í eigu Símans sé undanskilið þessu?
Af hverju er ekki hægt að hafa þetta eins og í Svíþjóð? Borgar bara fast gjald og ekkert talið, hvorki innanlands né utan.
IPTV er ekki talið í þessu
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
HringduEgill skrifaði:Viðskiptavinir Hringdu þurfa ekki að hafa áhyggjur af breytingum í takt við það sem Síminn er að gera. Einungis erlent niðurhal verður áfram talið. Að auki speglum við töluvert af efni á innlenda þjóna og er það ekki heldur talið sem erlent gagnamagn.
Fyrir hönd Hringdu,
Egill.
Enda eruð þið langflottastir!
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1903
- Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Hversu stöðugir eru hringdu?
Nánast eina sem að maður hefur heirt af þeim er eitthvað neikvætt.
Bjóða þeir líka uppá ljósleiðara?
Nánast eina sem að maður hefur heirt af þeim er eitthvað neikvætt.
Bjóða þeir líka uppá ljósleiðara?
CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9
-
- Stjórnandi
- Póstar: 15436
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Búnir að vear mjög stöðugir í marga mánuði núna, er með VDSL hjá þeim og alltaf með topphraða.playman skrifaði:Hversu stöðugir eru hringdu?
Nánast eina sem að maður hefur heirt af þeim er eitthvað neikvætt.
Bjóða þeir líka uppá ljósleiðara?
Gagnaveitan mun leggja ljósleiðara inn til mín í sumar og þá mun ég vera með ljósið hjá þeim en þjónustuna hjá Hringdu.
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Svíjar, norðmenn og danir held ég líka, eru bara með fast verð. Næ ekki þessari afsökun að segja að þetta sé gert í evrópu.
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6350
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Staðsetning: https://viktor.ms
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Síminn telur allt gagnamagn
Þetta er mjög svipað í Norður Kóeruhfwf skrifaði:Svíjar, norðmenn og danir held ég líka, eru bara með fast verð. Næ ekki þessari afsökun að segja að þetta sé gert í evrópu.