Símasölufólk að ónáða mig !

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 3992
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af jonsig »

sælir ,

Ég er að pirrast yfir því að það er búið að hringja í mig tvisvar að reyna selja mér eitthvað rugl bara Í dag ! Ég er "bannmerktur" í símaskránni sem flestir vita að þá má fólk ekki vera hringja í mig til að selja mér stuff . Samt er hringt í mig ! Það er ástæða fyrir að ég lét bannmerkið við mig á sínum tíma , ég var að vera geðveikur á þessu .
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]
Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1726
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af Danni V8 »

Eru þetta ekki bara "ráðgjafar"? Það má ekki hringja í fólk sem er með rautt X í skránni til að selja þeim eitthvað, en það má hver sem er hringja og ráðleggja þér að tryggja hjá þessu félagi frekar en hinu. Það vill bara svo heppilega til að þessir ráðgjafar geta komið ferlinu af stað fyrir þig og svona.
Mynd
Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x

olibui
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Sun 18. Okt 2009 18:34
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af olibui »

Af vef persónuverndar:

Persónuvernd berst að jafnaði nokkuð af fyrirspurnum varðandi það hvort og þá hvaða viðurlög liggja við því að úthringingar söluaðila ýmiskonar séu framkvæmdar þrátt fyrir að sá sem hringt er í hafi merkt við með rauðum krossi í símaskrá sem merki um að ekki sé heimilt að hringja í viðkomandi.


Af þessu tilefni ber fyrst að nefna að í lögum um fjarskipti nr. 81/2003 er að finna ákvæði í 5. mgr. 46. gr. laganna sem hljóðar svo:

,,Notendur sem nota almenna talsímaþjónustu sem lið í markaðssetningu skulu virða merkingu í símaskrá sem gefur til kynna að viðkomandi áskrifandi vilji ekki slíkar hringingar í símanúmer sitt.”

Póst- og fjarskiptastofnun skal hafa eftirlit með ákvæðum laga nr. 81/2003, skv. 2. mgr. 2. gr. laganna.


Í 16. kafla laganna er m.a. fjallað um hvaða viðurlög gildi við brotum á lögunum (sjá einkum 74. gr. laganna).


Það athugast þó að bannmerking í símaskrá felur eingöngu í sér bann við því að hafa samband við viðkomandi símleiðis í markaðssetningartilgangi. Bannmerking í símaskrá felur því ekki í sér bann við því að senda fólki markpóst.


Hins vegar gilda ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga einnig um starfsemi þeirra sem nota skrár í markaðssetningarstarfsemi. Hér að neðan verður fjallað stuttlega um hvernig álitaefni sem þetta varða snúa að lögum nr. 77/2000.


Hér ber einkum að líta til 28. gr. laganna. Ákvæði 2. mgr. 28. gr. laganna hljóðar svo:

,,Hagstofa Íslands skal halda skrá yfir þá sem andmæla því að nöfn þeirra séu notuð í markaðssetningarstarfsemi, en Hagstofa Íslands setur nánari reglur um gerð og notkun slíkra skráa og hvaða upplýsingar skuli koma þar fram í samráði við Persónuvernd. Ábyrgðaraðilar sem starfa í beinni markaðssókn og þeir sem nota skrá með nöfnum, heimilisföngum, netföngum, símanúmerum og þess háttar eða miðla þeim til þriðja aðila í tengslum við slíka starfsemi skulu, áður en slík skrá er notuð í slíkum tilgangi, bera hana saman við skrá Hagstofunnar til að koma í veg fyrir að markpóstur verði sendur eða hringt verði til einstaklinga sem hafa andmælt slíku. Persónuvernd getur heimilað undanþágu frá þessari skyldu í sérstökum tilvikum.”

Í 4. mgr. 28. gr. laganna segir:

,,Skylt er að nafn ábyrgðaraðila komi fram á áberandi stað á útsendum markpósti og hvert þeir sem andmæla því að fá slíkan markpóst og marksímtöl geti snúið sér. Viðtakandi markpósts á rétt á að fá vitneskju um hvaðan þær upplýsingar koma sem liggja úthringingu eða útsendingu til grundvallar. Þetta gildir ekki um markaðssetningu ábyrgðaraðila á eigin vöru og þjónustu sem notar eigin viðskiptamannaskrár, enda beri útsent efni með sér hvaðan það kemur. Ef markpóstur er sendur með rafrænum hætti er skylt að fram komi á ótvíræðan hátt um leið og hann er móttekinn að um slíkan póst sé að ræða.”

Af þessu má ráða að þeir sem skrá sig á bannskrá Hagstofunnar eiga að vera öruggir fyrir því að fá hvorki sendan markpóst né að hringt verði til þeirra (sbr. 2. mgr. 28. gr.). Þetta úrræði hentar vel fyrir þá sem vilja aldrei vera ónáðaðir með markpósti eða marksímtölum. Hagstofa Íslands heldur utan um bannskrá þessa og ber því að hafa samband við Hagstofuna til að fá sig skráðan á slíka skrá.


Ákvæði 4. mgr. 28. gr. laganna tryggir hins vegar að sá sem fær markpóst eða marksímtal frá ákveðnum aðila geti með auðveldum hætti haft samband við þennan tiltekna aðila og óskað eftir því að fá ekki framvegis símtal eða póst í markaðssetningartilgangi frá þeim aðila. Viðkomandi fyrirtæki þarf því að halda skrá yfir þá sem óska eftir því að fá framvegis ekki markpóst eða marksímtal. Þetta úrræði tryggir þannig að viðkomandi verður ekki ónáðaður með markpósti eða marksímtali frá þessu tiltekna fyrirtæki í framtíðinni en kemur eðli málsins skv. ekki í veg fyrir markpóst eða marksímtöl frá öðrum aðilum.


Kvartanir vegna hugsanlegra brota á ákvæðum laga nr. 81/2003 ber að senda til Póst- og fjarskiptastofnunar. Kvartanir vegna hugsanlegra brota á ákvæðum laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga má beina til Persónuverndar. Þarf stofnuninni þá að berast kvörtun og nánari málsatvikalýsing. Eyðublað fyrir kvörtun er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (http://www.personuvernd.is" onclick="window.open(this.href);return false;) undir hnappinum ,,Umsóknir og önnur eyðublöð”.


Eins og má ráða hér að ofan eru þau ákvæði laga sem fjalla um markaðssetningarstarfsemi nokkuð flókin og ekki til hægðarauka að fjallað sé um slíkt í ákvæðum bæði laga um fjarskipti sem og lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Hins vegar hefur Persónuvernd vakið athygli á þessu og mun leggja áherslu á að ákvæði þessi verði einfölduð og um leið gerð skilvirkari, t.d. með því að fella þau inn í einn og sama lagabálkinn.
Skjámynd

GullMoli
Stjórnandi
Póstar: 2309
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Staðsetning: NGC 3314.
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af GullMoli »

Þetta minnir mig bara á;
http://web.archive.org/web/200607201349 ... =0&id=2028" onclick="window.open(this.href);return false;
|| Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || GTX 1070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 3992
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af jonsig »

Hahaha ! Ætli það ekki . Ég þekki mann rá kanada , og það var non stop síminn hans þótt símsala sé bönnuð þar í landi ef þú ert merktur svona . Þá taka símsölumennirnir til þess ráðs að "hringja frá öðru" landi . Og komast þannig hjá lögsóknum haha .
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]
Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Skjámynd

Nariur
Bara að hanga
Póstar: 1574
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af Nariur »

Að vera bannmerktur í símaskrá þýðir bara að það má ekki fletta þér upp í símaskrá og hringja í þig í þeim tilgangi. Það þýðir ekki að það megi ekki hringja í þig almennt í þeim tilgangi, þ.e. ef númerið þitt er fengið annarsstaðar en í símaskránni. Flest svona fyrirtæki eru með beina tengingu við Þjóðskrá, þú þarft að láta bannmerkja þig þar.
AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED
Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 3992
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af jonsig »

djöfullsins vesen er þetta fólk að skapa manni .
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]
Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Skjámynd

Saber
FanBoy
Póstar: 727
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:29
Staðsetning: 104
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af Saber »

Blacklist í Cyanogenmod FTW!
Intel Core i5 4690K @ ? GHz Custom water cooling Build log: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=1&t=53292
Skjámynd

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6292
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af AntiTrust »

Afskrá þig úr símaskránni? Ég sé ekki eftir því amk.
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 3992
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af jonsig »

Maður vill alls ekki vera dónalegur við símasölufólk en þetta er að verða gott . Þeir hafa nr hjá manni þótt maður afskrifi sig úr símaskrá ?
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]
Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Skjámynd

roadwarrior
Gúrú
Póstar: 539
Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af roadwarrior »

Hef alltaf verið með leyninúmer. Alveg gersamlega laus við allt símasölu lið og svo frv. Þeir sem þurfa að ná í mig eru einungis þeir sem þekkja mig og þeir vita númerið mitt. Rest is history :fly

Gislinn
FanBoy
Póstar: 763
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af Gislinn »

Saber skrifaði:Blacklist í Cyanogenmod FTW!
Blacklist FTW, trikkið hjá mér er einfalt. Ef það er hringt í mig þá fer samtalið eitthvað á þennan veg:
ég: Halló
söluaðilinn: Góða kvöldið ég hringi hér frá blablabla
ég: ég er smá upptekinn núna, getur þú hringt aftur eftir svona korter?
söluaðilinn: Já ekkert mál

og ég set númerið á blacklist. :guy
common sense is not so common.
Skjámynd

bixer
</Snillingur>
Póstar: 1022
Skráði sig: Lau 14. Nóv 2009 14:38
Staðsetning: 101
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af bixer »

"pabbi er ekki heima"
"ég er bara 16 ára"
"ég vinn hjá samkeppninni" hefur alltaf virkað hjá mér
Skjámynd

Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af Frantic »

Sendu póst á skra@skra.is.
Þarft bara að gefa upp kennitölu og segir "Ég vill ekki láta hringja í mig, væriðu til í að setja bannmerki við mig?".
Problem Solved.
Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 3992
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af jonsig »

Frantic skrifaði:Sendu póst á skra@skra.is.
Þarft bara að gefa upp kennitölu og segir "Ég vill ekki láta hringja í mig, væriðu til í að setja bannmerki við mig?".
Problem Solved.
takk kærlega fyrir þetta , en ég efast um að það verði hætt að hringja í mig hehe . Ég er svo arðvænlegur.
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]
Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Skjámynd

methylman
vélbúnaðarpervert
Póstar: 901
Skráði sig: Fim 13. Mar 2008 00:39
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af methylman »

Svona á samtalið að vera
Hún/Hann Sæll viltu kaupa hefurðu áhuga á...
Þú Sæl/l hvað heitir þú ?
Hún/Hann Ha ?
Þú: hjá hverjum vinnur þú ? Mig vantar nafn og kennitölu á þessu fyrirtæki sem er að hringja í mig ég er á bannlista eða geturðu gefið mér kennitölu yfirmanns ykkar þarna í úthringiverinu ? Ég ætla að kvarta við PFS á morgun
Hún/Hann Bless

Mér varð það nefnilega á að gefa einusini eitthvað í einhverja söfnun sem ég man ekkert hver var og síðan var hringt í mig á tveggja vikna fresti það var bara merkt við mig í verinu sem easy prey :no
Ekki treysta því að fólk skilji þig þó að það setji upp gáfulegan svip og segji já.

braudrist
vélbúnaðarpervert
Póstar: 993
Skráði sig: Mán 06. Sep 2004 13:22
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af braudrist »

Hagstofa Íslands, Umhyggjusamir Einstaklingar, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Miðlun Ehf., Capacent Gallup o.fl. Þetta eru allt fyrirtæki / félög sem hafa verið að bögga mig. Alltaf verið að sníkja eða betla eitthvað.
Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af appel »

Hata þegar einhver tryggingafélög hringja í mig og spyrja mig hvort ég vilji ekki "skoða málin hjá þeim?". Hví koma þessir kauðar ekki bara og banka á stofugluggan hjá mér, æpa inn um bréfalúguna?
Í mínum huga eiga fyrirtæki ekki að hringja nema það sé tilefni til, t.d. að viðkomandi er viðskiptavinur hjá fyrirtækinu og það tengist því.

Annað pirrandi er að hitta þessa sölumenn í Kringlunni eða Smáralind, þeir ganga upp að manni og koma með einhverja leiðandi frasa einsog "Ert þú viðbótarlífeyrissparnað?" og bera það þannig fram að manni finnst þurfa svara því játandi eða neitandi. Ekkert "Afsakið, má ég spyrja þig spurningar?" ... nei þeir koma bara beint með spurninguna í fjésið á þér.

Svo þoli ég ekki það að ganga inn í einhverja sérvöruverslun og maður er bara að skoða hlutina, en þá líta sölumenn á mann, ganga upp að manni og spyrja "Get ég aðstoðað?". Alltaf þarf maður að segja "bara að skoða" til þess að réttlæta veru sína þarna inni. Sumir kalla þetta þjónustu, en ég kalla þetta bara áreiti. Finnst IKEA fyrirkomulagið best, maður getur gengið inn og skoðað alveg óáreittur og fengið aðstoð óski maður eftir.
*-*
Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4270
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af KermitTheFrog »

appel skrifaði:Svo þoli ég ekki það að ganga inn í einhverja sérvöruverslun og maður er bara að skoða hlutina, en þá líta sölumenn á mann, ganga upp að manni og spyrja "Get ég aðstoðað?". Alltaf þarf maður að segja "bara að skoða" til þess að réttlæta veru sína þarna inni. Sumir kalla þetta þjónustu, en ég kalla þetta bara áreiti. Finnst IKEA fyrirkomulagið best, maður getur gengið inn og skoðað alveg óáreittur og fengið aðstoð óski maður eftir.
Það er bara mjög misjafnt hvað fólki finnst um þetta. Það er ekki eins og það sé mikið mál fyrir þig að segja "nei, ég er bara að skoða". Minna mál en fyrir einhvern annan að leita að starfsmanni. Ekki veit ég hve lengi ég hef staðið í IKEA og leitað að starfsmanni.

Sent from my GT-I9505 using Tapatalk
Skjámynd

Stuffz
1+1=10
Póstar: 1103
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
Staðsetning: 104 Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af Stuffz »

skrítið, það er aldrei hringt í mig :)

ég líka geng á eftir að hlutirnir séu gerðir.
Tölva og Stuffz..
Viðskiptarándýr&bráð.
Skjámynd

Sallarólegur
Internetsérfræðingur
Póstar: 6350
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Staðsetning: https://viktor.ms
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af Sallarólegur »

appel skrifaði: Svo þoli ég ekki það að ganga inn í einhverja sérvöruverslun og maður er bara að skoða hlutina, en þá líta sölumenn á mann, ganga upp að manni og spyrja "Get ég aðstoðað?". Alltaf þarf maður að segja "bara að skoða" til þess að réttlæta veru sína þarna inni. Sumir kalla þetta þjónustu, en ég kalla þetta bara áreiti.
Fyrir mér hljómar eins og þú sért félagsfælinn með meiru og þurfir að leita þér hjálpar :happy
Thinkpad P1 • i7-10875H • NVIDIA Quadro T1000 • Samsung 32GB 3200Mhz • Toshiba 1TB SSD

G Pro Wireless • WASD V2 Ch.MX brown • Arctics Pro Wireless

Alienware Ultrawide 34.1" WQHD 1900R IPS 3440 x 1440p 4ms 120Hz

EdgeRouter-X • TOUGHSwitch TS-5-POE • Unifi AP AC LITE • Raspberry Pi Unifi controller
Skjámynd

Höfundur
jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 3992
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af jonsig »

Líka ef hann þykir líklegur til að vera stela , þá er sagt starfsmönnum að það eigi að ganga upp að grunsamlegu fólki og spyrja þessarar spurningar :D
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]
Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 15436
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af GuðjónR »

Ég þoli ekki símasölu áreyti, sérstaklega ekki á kvöldin eftir kl 21:00
Fyrir löngu síðan endaði ég með leyninúmer þar sem sölumenn virtu hvorki rautt bannmerki í símaskrá né bannmerkingu hjá þjóðskránni.
Eftir margra ára "frið" þá ákvað ég að prufa að skrá númerið aftur en hélt bannmerkingnum, bæði hjá símaskrá og þjóðskrá.
Nánast samstundis byrjaði áreytið, Gallup, Stöð2, Skjárinn, öll tryggingafélögin, bóksölumenn svo eitthvað sé nefnt.
Í þremur tilfellum prófði ég að kæra til P&S bara til þess að komast að því að P&S er enn ein sýndarmennskustofnunin sem gerir ekkert.
Breytti númerinu aftur í leyninúmer í fyrra og hef bara tvisvar lent í áreyti síðan.

Ég spurði alltaf þá sem hringdu hvar þeir hefðu fengið númerið mitt, yfirleitt kom upp vandræðaleg þögn og alltaf reyndi fólkið að fara undan í flæmingi, allir áttu það þó sameiginlegt segja að þeir væru bara með "lista" með nöfnum og númerum og vissu ekkert hvaðan þessi listi væri kominn. P&S hafði engan áhuga á að komast að því þrátt fyrir beiðni um það, enn sölumaðurinn missti þó út úr sér að listinn hans væri kominn frá ja.is
Og þegar ég spurði hann hvort hann sæji ekki rauða X'ið þá viðurkenndi hann það og baðst afsökunar.
Halda þessir sölumenn að maður kaupi vörur/þjónustu þegar þeir frekjast svona gróflega?
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 4081
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af appel »

Sallarólegur skrifaði:
appel skrifaði: Svo þoli ég ekki það að ganga inn í einhverja sérvöruverslun og maður er bara að skoða hlutina, en þá líta sölumenn á mann, ganga upp að manni og spyrja "Get ég aðstoðað?". Alltaf þarf maður að segja "bara að skoða" til þess að réttlæta veru sína þarna inni. Sumir kalla þetta þjónustu, en ég kalla þetta bara áreiti.
Fyrir mér hljómar eins og þú sért félagsfælinn með meiru og þurfir að leita þér hjálpar :happy
Ég hef gengið inn í verslun sem var ekkert að gera í, einn sölukall á gólfinu. Þegar ég geng inn þá gengur hann strax upp að mér "Get ég aðstoðað þig?". Ég segi "Nei", og held áfram að rölta um og skoða. Hann röltir svona fyrir aftan mig, fylgist með mér, líklega til þess að vera "þjónustureiðubúinn!"... svo stoppa ég við einhvern hlut og svona horfi aðeins á en þá kemur sölukallinn "Já... þetta er fallegur gripur, ertu að pæla í honum?". Svo næst segir hann eitthvað einsog "Ertu að leita að einhverju sérstöku?".

Persónulega vil ég ekki svona "þjónustu", mér finnst þetta vera pirrandi áreiti. Ég vil ekki hafa svona vökult auga yfir því hvað ég er að gera, ekki miklu frekar en að hafa einhvern sölumann netverslunar sitjandi við hliðina á mér og horfa á allt vefrápið mitt á netversluninni spyrjandi mig hvort ég vilji ekki kaupa þetta. Stundum er maður bara að skoða og vill skoða í friði.
*-*

Icarus
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Símasölufólk að ónáða mig !

Póstur af Icarus »

appel skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:
appel skrifaði: Svo þoli ég ekki það að ganga inn í einhverja sérvöruverslun og maður er bara að skoða hlutina, en þá líta sölumenn á mann, ganga upp að manni og spyrja "Get ég aðstoðað?". Alltaf þarf maður að segja "bara að skoða" til þess að réttlæta veru sína þarna inni. Sumir kalla þetta þjónustu, en ég kalla þetta bara áreiti.
Fyrir mér hljómar eins og þú sért félagsfælinn með meiru og þurfir að leita þér hjálpar :happy
Ég hef gengið inn í verslun sem var ekkert að gera í, einn sölukall á gólfinu. Þegar ég geng inn þá gengur hann strax upp að mér "Get ég aðstoðað þig?". Ég segi "Nei", og held áfram að rölta um og skoða. Hann röltir svona fyrir aftan mig, fylgist með mér, líklega til þess að vera "þjónustureiðubúinn!"... svo stoppa ég við einhvern hlut og svona horfi aðeins á en þá kemur sölukallinn "Já... þetta er fallegur gripur, ertu að pæla í honum?". Svo næst segir hann eitthvað einsog "Ertu að leita að einhverju sérstöku?".

Persónulega vil ég ekki svona "þjónustu", mér finnst þetta vera pirrandi áreiti. Ég vil ekki hafa svona vökult auga yfir því hvað ég er að gera, ekki miklu frekar en að hafa einhvern sölumann netverslunar sitjandi við hliðina á mér og horfa á allt vefrápið mitt á netversluninni spyrjandi mig hvort ég vilji ekki kaupa þetta. Stundum er maður bara að skoða og vill skoða í friði.
Sammála, ég hika stundum við að fara inn í verslanir sem eru galtómar því ég býst bara við áreiti frá starfsmanninum og geta ekki fengið að skoða í friði.
Svara