Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??

Fyrir svona nokkrum árum (kanski 2-3) þá var ég vanur að fara stundum á hlöllabát (á Selfossi) til að fá mér 1 góðan bát og eitthvað gos til þess að drekka með. Það sem að ég keypti oftast var hádegistilboð sem að var 12 tommu bátur (keypti oftast beikon bát) og stór gos. Þetta kostaði 1000kr sléttar. Eftir þó nokkuð hlé frá hlölla ákvað ég að kíkja þangað í hádeginu áðan. Núna kostaði þetta sirka 1400kr! Bara fyrir bátinn og gos. Ekkert annað. Og þetta er bara fyrir basic báta. Sumir bátar kosta jafnvel meira! Hér er matseðilinn þar sem að þið getið skoðað verðinn http://www.hlollabatar.com/#!matsedlar/cjdh" onclick="window.open(this.href);return false;
"Verðbólga!" segja sumir, en mér finnst að það geti varla útskýrt hækkunina að því að almennt verð á öðrum skindibita (allavega á Selfossi) eins og til dæmis á Subway er ekki svona hátt. Hvað segja stuðningsmenn Hlölla við þessu? Af hverju er þetta orðið svona andskoti dýrt?

Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
eru ekki 2 Hlöllabátar fyrirtæki til?
höllabátar hjá ártúnsbrekku eru ekki þeir sömu og eru t.d í smáralind
eða er ég að bulla eitthvað?
höllabátar hjá ártúnsbrekku eru ekki þeir sömu og eru t.d í smáralind
eða er ég að bulla eitthvað?
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Og hver ber ábyrgð á ofnunum hérna??! Það er alltaf, það er alltaf eitthvað bank í þeim! Það er alltaf eins og þeir séu fullir af lofti??! Hver á að hleypa því út??! Á á ég að gera það?
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 3992
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Útaf því fólk heldur áfram að versla líkt og ekkert hafi í skorist
[style size="10px"]
Kane lives !!
[/style]Dark Base pro 700, DarkPower P11 850W, 5800X, RX 6900XT, x570 Strix/ 2x360rad + EK-Quantum Kinetic
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Það er nú bara allur skyndibiti orðinn dýr, eins og ef maður verslar sér hamborgara og franskar í sjoppum í dag fær maður það lítið af frönskum með að það gæti verið fyrir kettling.
Sjónvarp: Samsung UE49KS8005TXXE Blu-ray spilari: Samsung UBD-K8500XE Magnari: Onkyo TX-NR515 Hátalarar: Jamo S 626 HCS Bassabox: Jamo J 12 SUB Hljóðkerfi: 5.1
Sjónvarp: Samsung UE32K5105AKXXE Blu-ray spilari: Samsung BD-J4500RXE
Sjónvarp: Samsung UE32K5105AKXXE Blu-ray spilari: Samsung BD-J4500RXE
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Já fokk þoli það ekki þegar þeir sem selja haldi að þeir séu geðveikt sniðugir með því að gefa geiðveikt lítið af frönskum. Halda líklega að þeir séu að spara. Kanski eru þeir að gera það, Íslendingar eru jú hálvitarsvanur08 skrifaði:Það er nú bara allur skyndibiti orðinn dýr, eins og ef maður verslar sér hamborgara og franskar í sjoppum í dag fær maður það lítið af frönskum með að það gæti verið fyrir kettling.
-
- FanBoy
- Póstar: 785
- Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
- Staðsetning: 404 - Location Not found.
- Staða: Ótengdur
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
svanur08 skrifaði:Það er nú bara allur skyndibiti orðinn dýr, eins og ef maður verslar sér hamborgara og franskar í sjoppum í dag fær maður það lítið af frönskum með að það gæti verið fyrir kettling.
KFC fær hrós frá mér þar sem þeir leyfa mér að borga '150kr' eða einhvað svipað fyrir stærra gos og mun meira af frönskum sem er bara mjög sangjarnt.
sáttur líka með magnið sem þú færð standard, kanski bara afvþví að borgarinn er svo stór enn svipað magn og hjá öðrum búllum.
Olís ætti enginn að versla við, vilja rukka mig 400kr fyrir meiri franskar, 'osturinn' kostar aukalega og franskarnar væru fínar í barnabox.
Ekkert gos fylgir heldur, bara verst að kfc sé ekki nálægt mér.
-
- Vaktari
- Póstar: 2259
- Skráði sig: Fim 02. Sep 2010 18:20
- Staðsetning: Grafarvogur
- Staða: Ótengdur
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Í sundagörðum er KFC og Olís á sama bílaplanirango skrifaði:svanur08 skrifaði:Það er nú bara allur skyndibiti orðinn dýr, eins og ef maður verslar sér hamborgara og franskar í sjoppum í dag fær maður það lítið af frönskum með að það gæti verið fyrir kettling.
KFC fær hrós frá mér þar sem þeir leyfa mér að borga '150kr' eða einhvað svipað fyrir stærra gos og mun meira af frönskum sem er bara mjög sangjarnt.
sáttur líka með magnið sem þú færð standard, kanski bara afvþví að borgarinn er svo stór enn svipað magn og hjá öðrum búllum.
Olís ætti enginn að versla við, vilja rukka mig 400kr fyrir meiri franskar, 'osturinn' kostar aukalega og franskarnar væru fínar í barnabox.
Ekkert gos fylgir heldur, bara verst að kfc sé ekki nálægt mér.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2309
- Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
- Staðsetning: NGC 3314.
- Staða: Ótengdur
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Hlölli uppá höfða er upprunalegi alvöru, þeir eru líka stundum með vagn niðrí bæ. Allt hitt er ekki það sama.Kristján skrifaði:eru ekki 2 Hlöllabátar fyrirtæki til?
höllabátar hjá ártúnsbrekku eru ekki þeir sömu og eru t.d í smáralind
eða er ég að bulla eitthvað?
|| Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || GTX 1070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
afhverju að borga 150 kall til að fá meira af verstu frönskum sem fyrir finnast á þessu landi!?rango skrifaði:svanur08 skrifaði:Það er nú bara allur skyndibiti orðinn dýr, eins og ef maður verslar sér hamborgara og franskar í sjoppum í dag fær maður það lítið af frönskum með að það gæti verið fyrir kettling.
KFC fær hrós frá mér þar sem þeir leyfa mér að borga '150kr' eða einhvað svipað fyrir stærra gos og mun meira af frönskum sem er bara mjög sangjarnt.
sáttur líka með magnið sem þú færð standard, kanski bara afvþví að borgarinn er svo stór enn svipað magn og hjá öðrum búllum.
Olís ætti enginn að versla við, vilja rukka mig 400kr fyrir meiri franskar, 'osturinn' kostar aukalega og franskarnar væru fínar í barnabox.
Ekkert gos fylgir heldur, bara verst að kfc sé ekki nálægt mér.
flott option, en þessar franskar
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Mér þykir persónulega ekkert að þessum frönskum, skárri en Hlölla franskarnar allavegana.vikingbay skrifaði:afhverju að borga 150 kall til að fá meira af verstu frönskum sem fyrir finnast á þessu landi!?rango skrifaði:svanur08 skrifaði:Það er nú bara allur skyndibiti orðinn dýr, eins og ef maður verslar sér hamborgara og franskar í sjoppum í dag fær maður það lítið af frönskum með að það gæti verið fyrir kettling.
KFC fær hrós frá mér þar sem þeir leyfa mér að borga '150kr' eða einhvað svipað fyrir stærra gos og mun meira af frönskum sem er bara mjög sangjarnt.
sáttur líka með magnið sem þú færð standard, kanski bara afvþví að borgarinn er svo stór enn svipað magn og hjá öðrum búllum.
Olís ætti enginn að versla við, vilja rukka mig 400kr fyrir meiri franskar, 'osturinn' kostar aukalega og franskarnar væru fínar í barnabox.
Ekkert gos fylgir heldur, bara verst að kfc sé ekki nálægt mér.
flott option, en þessar franskar
Loksins edrú og aldrei í mínu fullorðins lífi liðið betur né liðið jafn mikið eins og manneskju. Nú byrjar restin af lífinu.
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Hlölla franskanar eru nú meira kex heldur en franskarHalistaX skrifaði:Mér þykir persónulega ekkert að þessum frönskum, skárri en Hlölla franskarnar allavegana.vikingbay skrifaði:afhverju að borga 150 kall til að fá meira af verstu frönskum sem fyrir finnast á þessu landi!?rango skrifaði:svanur08 skrifaði:Það er nú bara allur skyndibiti orðinn dýr, eins og ef maður verslar sér hamborgara og franskar í sjoppum í dag fær maður það lítið af frönskum með að það gæti verið fyrir kettling.
KFC fær hrós frá mér þar sem þeir leyfa mér að borga '150kr' eða einhvað svipað fyrir stærra gos og mun meira af frönskum sem er bara mjög sangjarnt.
sáttur líka með magnið sem þú færð standard, kanski bara afvþví að borgarinn er svo stór enn svipað magn og hjá öðrum búllum.
Olís ætti enginn að versla við, vilja rukka mig 400kr fyrir meiri franskar, 'osturinn' kostar aukalega og franskarnar væru fínar í barnabox.
Ekkert gos fylgir heldur, bara verst að kfc sé ekki nálægt mér.
flott option, en þessar franskar
-
- 1+1=10
- Póstar: 1103
- Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
- Staðsetning: 104 Rvk
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
ronneh88 skrifaði:Og hver ber ábyrgð á ofnunum hérna??! Það er alltaf, það er alltaf eitthvað bank í þeim! Það er alltaf eins og þeir séu fullir af lofti??! Hver á að hleypa því út??! Á á ég að gera það?
Ofnaþjónustan ehf hérna
Já afsakið töfina, við sendum mann til að redda þessu fyrir þig prontó!
Last edited by Stuffz on Sun 06. Apr 2014 10:50, edited 1 time in total.
Tölva og Stuffz..
Viðskiptarándýr&bráð.
Viðskiptarándýr&bráð.
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 230
- Skráði sig: Mið 22. Mar 2006 20:09
- Staða: Ótengdur
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Sammála því, hef bókstaflega aldrei smakkað eins vondar franskar á skyndabitastað.vikingbay skrifaði:afhverju að borga 150 kall til að fá meira af verstu frönskum sem fyrir finnast á þessu landi!?rango skrifaði:svanur08 skrifaði:Það er nú bara allur skyndibiti orðinn dýr, eins og ef maður verslar sér hamborgara og franskar í sjoppum í dag fær maður það lítið af frönskum með að það gæti verið fyrir kettling.
KFC fær hrós frá mér þar sem þeir leyfa mér að borga '150kr' eða einhvað svipað fyrir stærra gos og mun meira af frönskum sem er bara mjög sangjarnt.
sáttur líka með magnið sem þú færð standard, kanski bara afvþví að borgarinn er svo stór enn svipað magn og hjá öðrum búllum.
Olís ætti enginn að versla við, vilja rukka mig 400kr fyrir meiri franskar, 'osturinn' kostar aukalega og franskarnar væru fínar í barnabox.
Ekkert gos fylgir heldur, bara verst að kfc sé ekki nálægt mér.
flott option, en þessar franskar
Varðandi þessa hækkun, þá veit ég ekki hversu lengi þetta platar landann.
Fyrir mitt leiti þá er ég alveg farinn að sniðganga þetta alltsaman og versla frekar bara allar mínar vörur í Krónunni eða Bónus, tek ekki þátt í þessari vitleysu sem þetta land er orðið
Og ef mig langar í gott, þá nota ég 2fyrir1.is , hopkaup.is, aha.is og sms tilboð hjá Nova. Þar er nánast alltaf e-h gott að finna.
Cooler Master HAF932 - Gigabyte GA-X58A-UD7 - Intel i7 930 @3,8GHz - Kingston 6GB HyperX DDR3 1730MHz - Crucial RealSSD C-300 128GB og 2x1TB samsung spinpoint F3 í Raid0 - Gigabyte HD5770 1GB - Noctua NH-D14 - Cooler Master Silent ProM 850W - "25" Full Hd I-Inc
-
- Gúrú
- Póstar: 561
- Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
- Staða: Ótengdur
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Það sem er nú líka sorglegt við þennan varning er að ekkert kjötmeti er lengur framreitt á þessu. Brauðið hefur stækkað til muna frá því sem var.
Ég ákvað að kaupa svona í neyð um daginn því að eldhúsið var óstarfhæft heima fyrir og þegar heim var komið þá var ég orðlaus sökum þess að ein kjötsneið var sitt hvorum megin á brauðinu. Sjá mynd hér að neðan.
Ég hringdi nú og bað um að fá peningana mína endurgreidda og keyrði til baka og skilaði þeim vörunni. Fólk á ekki að láta bjóða sér svona vinnubrögð. Þessi staður var á Þórðarhöfða. En meðan það er til fólk sem lætur bjóða sér svona lagað þá heldur fólk áfram að selja annars flokks vöru.

- Viðhengi
-
- Hlollabatur_sorglegt.jpg (58.58 KiB) Skoðað 2539 sinnum
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Þetta er það sem böggar mig mest. Ég skil verðhækkanir, sumstaðar. Sumstaðar er ég tilbúinn til þess að horfa framhjá því að verðið er umtalsvert hærra en nokkur verðbólga segir til um. Það sem gjörsamlega fyllir mælinn hjá mér er þegar bæði verðið er orðið óeðlilega hátt og ég fæ ekki lengur magafylli af alvöru mat, verið að minnka kjötskammta í öllu, aukaskammtur kostar á við heila kjúklingabringu og maður þarf að grátbiðja í tvígang um að fá aðeins meira kál eða papriku.
Fyrir 1000-1500kr vil ég fá magafylli, ekki smakk eða 75% kolvetni þegar aðalrétturinn er kjötmeti.

Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Ertu viss um að þeir hafi ekki bara sett vitlaust á bátinn? Ég hef pantað mér báta á hlölla sem að hafa haft meira af álegi.Televisionary skrifaði:Það sem er nú líka sorglegt við þennan varning er að ekkert kjötmeti er lengur framreitt á þessu. Brauðið hefur stækkað til muna frá því sem var.
Ég ákvað að kaupa svona í neyð um daginn því að eldhúsið var óstarfhæft heima fyrir og þegar heim var komið þá var ég orðlaus sökum þess að ein kjötsneið var sitt hvorum megin á brauðinu. Sjá mynd hér að neðan.
Ég hringdi nú og bað um að fá peningana mína endurgreidda og keyrði til baka og skilaði þeim vörunni. Fólk á ekki að láta bjóða sér svona vinnubrögð. Þessi staður var á Þórðarhöfða. En meðan það er til fólk sem lætur bjóða sér svona lagað þá heldur fólk áfram að selja annars flokks vöru.
-
- Gúrú
- Póstar: 561
- Skráði sig: Þri 17. Feb 2009 15:26
- Staða: Ótengdur
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Auðvitað var það mér efst í huga að fá það magn af kjöti sem ég hafði væntingar til en allt kom fyrir ekki þetta var forskriftin samkvæmt söluaðilanum og þeim ekki hvikað. Ég reyndi að útskýra fyrir þeim að þó báturinn kostaði 2500 krónur og væri úttroðinn af kjöti þá kæmi maður og keypti þá. En kjötlaus samlokubátur sem hefur verið þekktur fyrir "nautakjöt" í meira en tvo áratugi er eitthvað sem maður kemur til með að kaupa aldrei aftur.
hakkarin skrifaði:Ertu viss um að þeir hafi ekki bara sett vitlaust á bátinn? Ég hef pantað mér báta á hlölla sem að hafa haft meira af áleggi.Televisionary skrifaði:Það sem er nú líka sorglegt við þennan varning er að ekkert kjötmeti er lengur framreitt á þessu. Brauðið hefur stækkað til muna frá því sem var.
Ég ákvað að kaupa svona í neyð um daginn því að eldhúsið var óstarfhæft heima fyrir og þegar heim var komið þá var ég orðlaus sökum þess að ein kjötsneið var sitt hvorum megin á brauðinu. Sjá mynd hér að neðan.
Ég hringdi nú og bað um að fá peningana mína endurgreidda og keyrði til baka og skilaði þeim vörunni. Fólk á ekki að láta bjóða sér svona vinnubrögð. Þessi staður var á Þórðarhöfða. En meðan það er til fólk sem lætur bjóða sér svona lagað þá heldur fólk áfram að selja annars flokks vöru.
-
- Kóngur
- Póstar: 4139
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
AntiTrust skrifaði:Þetta er það sem böggar mig mest. Ég skil verðhækkanir, sumstaðar. Sumstaðar er ég tilbúinn til þess að horfa framhjá því að verðið er umtalsvert hærra en nokkur verðbólga segir til um. Það sem gjörsamlega fyllir mælinn hjá mér er þegar bæði verðið er orðið óeðlilega hátt og ég fæ ekki lengur magafylli af alvöru mat, verið að minnka kjötskammta í öllu, aukaskammtur kostar á við heila kjúklingabringu og maður þarf að grátbiðja í tvígang um að fá aðeins meira kál eða papriku.
Fyrir 1000-1500kr vil ég fá magafylli, ekki smakk eða 75% kolvetni þegar aðalrétturinn er kjötmeti.
Djöfull er ég sammála, virðist nánast vera þannig að mjög fáir staðir átta sig ekki á því að ef að kjöt væri meira í ákveðnum réttum og gróði per stk væri kannski hlutfallslega minni þá væri hagnaður samt hærri þar sem miklu fleira fólk myndi vilja kaupa þetta!
Löngu orðinn þreyttur á að fara á Subway/Hlölla eða laumast í "börger" þegar mér langar þó að ég fari gríðarlega sjaldan.. maður verður svangur 45min seinna út af öllu þessu kolvetni.
massabon.is
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Held þið vanmetið það hve stór hluti viðskiptanna kemur frá námsmönnum sem eiga auðveldara með að réttlæta
fyrir sér 1000-1200 króna máltíðir þó þær séu matarminni en 1400+ króna máltíðir.

Ertu viss um að það virki þannig?vesley skrifaði:maður verður svangur 45min seinna út af öllu þessu kolvetni.
Modus ponens
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Hlöllabátar eru með mjög fínt skólatilboð, 990kr fyrir stórann bát og 500ml gos í dós
Microsoft Surface Pro 2017 [i7 - 16GB RAM - 512GB SSD] + Thinkvision P27Q
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Tjah, prótín gefur meiri seddutilfinningu og er lengur að meltast, ein af mörgum ástæðum fyrir því að high-protein kúrar eru notaðir m.a. til megrunar.Gúrú skrifaði: Ertu viss um að það virki þannig?
Σ = 29Ghz, 96GB DDR, 54TB.
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Þess má til gamans geta að það eru náttúrulega engin kolvetni (e: hydrocarbons) í matvælum (vona ég). Kolvetni eru jarðefnaeldsneyti og afleiður (og mögulega fleiri hlutir) þess meðan gumsið sem maður étur ætti með réttu að vera nefnt "kolvötn" (sbr carbohydrates á ensku) eins óþjált og það kann að hljóma.AntiTrust skrifaði:Tjah, prótín gefur meiri seddutilfinningu og er lengur að meltast, ein af mörgum ástæðum fyrir því að high-protein kúrar eru notaðir m.a. til megrunar.Gúrú skrifaði: Ertu viss um að það virki þannig?
Skál fyrir því.
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Já mér fannst þetta svosem bara skringilega orðað hjá honum, eins og að kolvetni létu mann verða svangan.AntiTrust skrifaði:Tjah, prótín gefur meiri seddutilfinningu og er lengur að meltast, ein af mörgum ástæðum fyrir því að high-protein kúrar eru notaðir m.a. til megrunar.Gúrú skrifaði: Ertu viss um að það virki þannig?
Modus ponens
-
- Kóngur
- Póstar: 4139
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Af hverju eru Hlöllabátar orðnir svona dýrir??!??
Gúrú skrifaði:Já mér fannst þetta svosem bara skringilega orðað hjá honum, eins og að kolvetni létu mann verða svangan.AntiTrust skrifaði:Tjah, prótín gefur meiri seddutilfinningu og er lengur að meltast, ein af mörgum ástæðum fyrir því að high-protein kúrar eru notaðir m.a. til megrunar.Gúrú skrifaði: Ertu viss um að það virki þannig?
Veist alveg hvað ég meina.
Að s.s. maður verður fljótt saddur af öllu þessu brauði en 45min seinna er maður nánast aftur orðinn svangur vegna þess hve mikil kolvetni eru í matnum og lítið af öllu öðru sem gagnast manni.
massabon.is